8. mars – Greiðum konum mannsæmandi laun

Leiðréttum skakkt verðmætamat – Greiðum konum mannsæmandi laun
Alþjóðlegur baráttudagur kvenna er runninn upp en í rúma öld hefur 8. mars verið táknrænn fyrir baráttu kvenna fyrir bættum kjörum og lífsaðstæðum, og í seinni tíð fyrir baráttuna gegn ofbeldi og áreitni.

Baráttukonur fyrri tíma veltu steininum af stað og fóru fram á að vinnuframlag kvenna væri metið að verðleikum. Það er sorglegt til þess að hugsa að kröfur kvenna um allan heim í dag séu í grófum dráttum þær sömu og þær voru fyrir meira en öld síðan, það er að störf þeirra séu metin að verðleikum og að vinnuaðstæður séu mannsæmandi. Það er enn merkilegra þegar því er haldið fram að jafnrétti muni einhvern vegin koma af sjálfu sér með tíð og tíma, enda sýnir sagan okkur að það er rangt.

Lykilfólkið í faraldrinum
Á hátíðarstundum er stundum talað um mikilvægi starfsstétta þar sem konur eru í meirihluta, gjarnan nefndar kvennastéttir. Nú hefur kórónaveirufaraldurinn dregið fram í sviðsljósið hvaða fólk er sannkallað lykilstarfsfólk samfélagsins. Það kom kannski sumum á óvart en ómissandi starfsfólkið í okkar samfélagi er fólkið sem starfar í heilbrigðis- og félagsþjónustu, löggæslu, skólum, við ræstingar, í almenningssamgöngum, matvöruverslunum og heimsendingum.

Flest þessara starfa eiga tvennt sameiginlegt. Meirihluti þeirra sem sinnir þeim er konur og þetta eru almennt láglaunastörf. Heildarlaun þeirra eru lægri en laun sambærilegra stétta þar sem karlar eru í meirihluta. Það að þessir hópar séu á lægri launum en sambærilegir karlahópar er ákvörðun. Það er ekki eitthvað sem gerist af sjálfu sér. Þetta er ákvörðun stjórnvalda, ákvörðun atvinnurekenda og ákvörðun samfélags í heild sinni. Kannski sprettur þessi ákvörðun af aðgerðaleysi eða skökku verðmætamati samfélagsins, en hún er engu að síður ákvörðun. Þetta óréttlæti veldur því að stór hluti kvenna á vinnumarkaði nýtur ekki launa í samræmi við framlag.

Hvaða fólk er það sem vinnur þessi störf? Þetta eru til dæmis konurnar sem hjúkra okkur þegar við veikjumst, annast fólkið okkur á ævikvöldinu, aðstoða fólk með fötlun, starfa með og kenna börnum og ungmennum og þrífa vinnustaðina okkar. Þessar konur þurfa að lifa með þeirri staðreynd að samfélagið vanmetur kerfisbundið hversu krefjandi og mikilvæg störf þeirra eru.

Störfin eiga það sameiginlegt að þar vinna konur í nánum persónulegum samskiptum við fólk, sumt hvert í mjög viðkvæmum aðstæðum eða ástandi. Stundum með fólki sem ræður ekki sínum gjörðum, áreitir þær kynferðislega eða beitir annarskonar ofbeldi. Þessar konur búa við þá kröfu að þær eigi að hlaupa hratt þó að eitt af því mikilvægasta sem þær geri í sínu starfi sé að gefa fólki tíma, sýna því hlýju, alúð og samkennd. Þær búa við lítinn sveigjanleika í störfum, geta ekki skroppið frá þó ástæður séu brýnar og hafa stundum ekki tíma til að grípa sér matarbita. Möguleikar á framþróun í starfi eru oft litlir og þar með möguleikar á að bæta kjörin.

Eftir að vinnudegi þessara kvenna lýkur liggja ekki eftir þær áþreifanleg verðmæti. Þær byggja ekki hús, leggja ekki vegi og ávaxta ekki peninga, en án þeirra framlags til verðmætasköpunar myndi samfélagið okkar einfaldlega ekki ganga upp. Það sjáum við skýrar en nokkru sinni vegna heimsfaraldursins.

Tökum á grundvallar misréttinu
Síðustu ár hefur ýmislegt áunnist í jafnréttismálum en áherslan hefur verið á að leiðrétta launamun innan vinnustaða, til dæmis með jafnlaunastaðlinum. Þó það sé góðra gjalda vert er jafnlaunastaðallinn ekki verkfæri sem tekur á því grundvallar misrétti sem viðgengst í samfélaginu, hann leiðréttir ekki skakkt verðmætamat kvennastétta. Verkefnið okkar er ekki bara að tryggja að konur og karlar í sömu störfum fái sömu laun. Við verðum að endurmeta frá grunni mikilvægi starfa sem stórar kvennastéttir sinna. Það er augljóst öllum sem það vilja sjá að kvennastéttirnar búa við verri kjör en aðrar stéttir með sambærilegt álag, menntun og reynslu og það sættum við okkur ekki við lengur.

Það er engin ein ástæða fyrir því að vinnumarkaðurinn er kynskiptur. Ein af ástæðunum eru hugmyndir okkar um hvað konur og karlar geti gert og eigi að vera að gera. Þær skoðanir byggja flestar ómeðvitað á viðhorfinu sem ríkti í samfélagi þar karlar voru fyrirvinnur, þar sem konur máttu ekki mennta sig og máttu ekki kjósa, þegar konur áttu að sinna heimili og börnum í stað þess að vera á vinnumarkaði eins og karlarnir. Áhugasviðið hefur líka áhrif og sú staðreynd að konur bera enn meginábyrgðina á uppeldi barna og heimilishaldi.
Þetta eru ekki viðhorf sem breytast af sjálfu sér. Við þurfum að breyta þeim og það gerum við með því að móta skýra stefnu um hvernig það verður gert og fylgja henni eftir með aðgerðum.

Viðurkennum misréttið og breytum samfélaginu
Sterk samfélög ráða við það verkefni að endurskoða fyrri ákvarðanir og rétta kúrsinn af þegar fólk áttar sig á því að við erum ekki á réttri leið. Við getum ákveðið að stokka upp úrelt verðmætamat sem varð til í samfélagi fyrri tíma og gefa upp á nýtt. Við getum sem samfélag ákveðið að meta færni, ábyrgð, starfsskilyrði og álag ólíkra starfa óháð því hvað starfað er við.
Heimsfaraldurinn hefur varpað skýru ljósi á mikilvægi starfa stórra kvennastétta. Nýtum þessa reynslu til nauðsynlegra umbóta. Horfumst í augu við misrétti á vinnumarkaði og gerum þær breytingar sem þarf til að við getum kallað okkur nútímalegt samfélag. Við skorum á ykkur öll að taka þátt í því að rétta samfélagsgerðina okkar við. Vinnum öll að jafnrétti, saman.


Drífa Snædal forseti ASÍ
Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB
Þórunn Sveinbjarnardóttir formaður BHM

(Þessi frétt er tekin af vef ASÍ)

SA og ASÍ hafa náð saman um breytingar á kjarasamningi um lífeyrismál

Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins hafa gert breytingar á kjarasamningi aðila um lífeyrismál, en samningurinn er stofnskjal og bakhjarl lífeyrissjóða á almennum vinnumarkaði.

Breytingarnar felast í umgjörð fyrir hugsanlega afturköllun tilnefningaraðila á umboði stjórnarmanna, auk skerpingar ákvæða um sjálfstæði stjórnarmanna í lífeyrissjóðum.

Sjálfstæði stjórnarmanna er áréttað með eftirfarandi viðbótargrein í kjarasamninginn:

Stjórnarmenn skulu rækja skyldur sínar af heilindum, hafa möguleika á að verja þeim tíma til stjórnarstarfa sem slík seta krefst og taka sjálfstæðar ákvarðanir í hverju máli fyrir sig.

Tvö ákvæði um hugsanlega afturköllun tilnefningaraðila á umboði stjórnarmanna bætast við samninginn og varða formlegt ferli og aðkomu fulltrúaráðs lífeyrissjóða að þeirri ákvörðun:

Tilnefningaraðila er heimilt að afturkalla umboð stjórnarmanns á grundvelli laga og samþykkta lífeyrissjóðs. Tilkynna skuli stjórn sjóðsins með formlegum hætti rökstudda ákvörðun með tilvísun í viðeigandi lagaákvæði, samþykktir og reglur.

Afturkalli tilnefningaraðili umboð stjórnarmanns skal fulltrúaráð staðfesta þá ákvörðun ásamt tilnefningu nýs stjórnarmanns fram að næsta ársfundi.

Hér má sjá samkomulagið um breytingar kjarasamningi SA og ASÍ um lífeyrismál

Við höldum áfram að bjóða upp á áhugaverð námskeið

Gerður hefur verið samningur við við Akademias skólann um fulla fjármögnun á MASTERCLASS og styttri námskeiðum. Um er að ræða stutt og hnitmiðuð fjarnámskeið sem í boði eru í samstarfi við aðildarfélög Landsmenntar, Ríkismenntar, Sveitamenntar og Sjómenntar. Framsýn stéttarfélag er eitt þessara stéttarfélaga sem tryggir félagsmönnum aðgengi að þessum námskeiðum á sérkjörum. Í fyrstu verður hægt að skrá sig á þrjú námskeið sem eru á verði eins og reikningar verða sendir beint á fræðslusjóði viðkomandi félagsmanna sem sækja námskeiðin. Auglýsing vegna þessa verður sett inn á heimasíðu sjóðanna og facebook síðu sjóðanna.

Til viðbótar má gera þess að öll Covid átaksverkefni fræðslusjóðanna gilda fram að sumri eða til 1. júní 2021.

MasterClass námskeið eru rafræn námskeið á netinu en með skráningu fæst aðgangur að námskeiðum í 12 mánuði. Nemendur geta því lært hvar og hvenær sem er en jafnframt farið oft yfir námsefnið á tímabilinu.

Hér má sjá lista yfir MasterClass námskeið Akademias: https://www.akademias.is/masterclass-og-styttri-namskeid.

Fyrir allar nánari upplýsingar og skráningu hafið samband við Ásdísi, asdis@akademias.is eða á Skrifstofu stéttarfélaganna á Húsavík.

Þingiðn – Námssamningar verða á forræði skólanna

Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, hefur gefið út nýja reglugerð um vinnustaðanám sem tekur gildi 1. ágúst næstkomandi. Reglugerðin felur í sér grundvallarbreytingu í þjónustu við nemendur, að því er segir á vef Stjórnarráðsins.

Þar kemur fram að með nýju reglugerðinni færist ábyrgðin á vinnustaðanáminu yfir á skólana sjálfa. Fram til þessa hafa nemendur verið sjálfir ábyrgir fyrir því að komsat á námssamning.

Skólarnir munu bera ábyrgð á því að finna vinnustað þar sem neminn fær leiðsögn og æfingu við raunaðstæður. Ef ekki tekst að koma nemanda á samning tekur við svokölluð skólaleið, þar sem skólinn þarf að sjá til þess að nemandinn fái þá þjálfun sem hann þarf. Það getur verið þjálfun á fleiri en einum vinnustað.

Loks felur reglugerðin í sér að horft verður til hæfni nemandans við ákvörðun um lengd vinnustaðanáms. Hæfnisþættir hafa verið skilgreindir fyrir hverja námsgrein og þarf nemandinn að ná tökum á þeim handbrögðum. Á vefnum segir að fyrir vikið verði vinnustaðanámið markvissara en verið hefur – og nemendur hafi tök á því að útskrifast fyrr.

Fram kemur að ráðuneytið muni vinna náið með hagsmunaaðilum að frekari þróun verkferla í tengslum við reglugerðina, sem og skipulagi náms.

Blásið til fundar í stjórn og trúnaðarráði Framsýnar

Í ljósi þess að losað hefur verið um hömlur hvað varðar þann fjölda sem má koma saman er hér með boðað til langþráðs fundar í stjórn og trúnaðarráði Framsýnar mánudaginn 8. mars kl. 17:00 í fundarsal félagsins. Að sjálfsögðu nær fundarboðið líka til stjórnar Framsýnar-ung.

Í upphafi fundar verður fundarmönnum boðið upp á vöfflur með rjóma og rabarbarasultu.

Dagskrá:

1. Fundargerð síðasta fundar

2. Inntaka nýrra félaga

3. Afmæli félagsins

4. Félagsmenn og tekjur félagsins

5. Fjármál félagsins

6. Orlofsmál 2021

7. Lagabreytingar/skipuð nefnd

8. Erindi frá Björgunarsveitinni á Raufarhöfn

9. Uppgjör vegna VHE

10. Ráðningarbréf endurskoðanda

11. Bílakaup

12. Þing SGS 21.-22. okt.

13. Aðalfundur Orlofsbyggðarinnar á Illugastöðum

14. Félagsmannasjóður

15. Vinnutímabreytingar 1. maí

16. Hátíðarhöldin 1. maí

17. Kjör á trúnaðarmönnum: Olís – Pálína Þórunn GK 49

18. Formannafundur SGS

19. Hvalaskoðunarsamningur  

20. Önnur mál

a) Staða lágtekjufólks

Fjölgum hlutastörfum og aukum sveigjanleika á vinnumarkaði

VIRK Starfsendurhæfingarsjóður sinnir því mikilvæga hlutverki að styðja og efla starfsgetu einstaklinga sem hafa vilja og getu til þess að komast aftur á vinnumarkað eftir veikindi eða slys.

VIRK leggur áherslu á að skapa fjölbreytt tækifæri fyrir einstaklinga í þjónustu og styðja þá til endurkomu inn á vinnumarkaðinn. Á hverju ári útskrifast fjöldi einstaklinga úr starfsendurhæfingu frá VIRK og er tæplega 80% þeirra virk á vinnumarkaðinum við útskrift; fer í vinnu, nám eða virka atvinnuleit. Árið 2020 útskrifuðust 1.601 einstaklingur frá VIRK og voru 1.265 þeirra, eða 79% af þeim, virkir á vinnumarkaði við útskrift.

Umtalsverður hluti þeirra sem útskrifast úr starfsendurhæfingu fara aftur til sinna fyrri starfa eða í ný störf með aðstoð ráðgjafa VIRK í starfsendurhæfingu. Þó er ávallt ákveðinn hluti einstaklinga sem ljúka þjónustu hjá VIRK en eru enn með skerta starfsgetu við útskrift. Þessi hópur þarf oft aukna aðstoð við að komast inn á vinnumarkaðinn á farsælan hátt og því stendur þeim til boða að þiggja þjónustu frá sérstökum atvinnulífstenglum sem starfa hjá VIRK.

VIRK Atvinnutenging

Þegar ráðgjafar VIRK telja að einstaklingar í starfsendurhæfingu gætu nýtt sér frekari aðstoð við endurkomu á vinnumarkað geta þeir vísað þeim til atvinnulífstengla VIRK. Þjónustan sem atvinnulífstenglar veita er meðal annars aðstoð við gerð ferilskrár og kynningarbréfs, undirbúningur fyrir atvinnuviðtöl og aðstoð við atvinnuleitina sjálfa. Meginmarkmiðið er að undirbúa þessa einstaklinga sem best fyrir atvinnuleit og fylgja þeim síðan eftir, jafnvel eftir að í starf er komið eða eins og þörf er á, en ferlið er sniðið eftir þörfum hvers og eins.

Lögð er áhersla á að þeir þjónustuþegar sem þess þurfa fái tækifæri til að koma inn á vinnumarkaðinn með stigvaxandi hætti og í þeim tilfellum er oft unnin sérstök virkniáætlun í samvinnu við einstaklingana sjálfa og yfirmenn þeirra. Í slíkum áætlunum er tekið mið af verkefnum, vinnuferlum, aðstæðum og vinnutíma á viðkomandi vinnustað.

Lögð er áhersla á að styðja bæði einstaklinginn og ekki síður vinnustaðinn. Meðan á eftirfylgni stendur aðstoða atvinnulífstenglar við úrlausn vandamála sem upp geta komið í endurkomuferlinu í samráði við starfsmanninn og vinnustaðinn.

Gott samstarf við fyrirtæki

Markmiðið með atvinnutengingunni er að ljúka starfsendurhæfingu á farsælan hátt með því að tengja einstaklinga við störf við hæfi og útvega fyrirtækjum gott starfsfólk ásamt því að halda uppi virkri atvinnuþátttöku á Íslandi og stuðla að heilbrigðu samfélagi.

Gott samstarf við fyrirtæki er því grundvöllur farsællar atvinnutengingar. Atvinnulífstenglar VIRK gegna lykilhlutverki í því að tengja einstaklinga við fyrirtæki eða stofnanir út frá óskum beggja og aðstoða einstaklinginn, en ekki síður vinnustaðinn, við aðlögun og endurkomu til vinnu.

Samstarf við fyrirtæki og stofnanir hefur gengið vel og viðtökur verið góðar. Yfir 1.300 fyrirtæki eru skráð inni í upplýsingakerfi VIRK og er stór hluti þeirra með skráða tengiliði, en það auðveldar öll samskipti við fyrirtækin þegar leitað er að störfum hjá þeim. Af þessum fyrirtækjum eru yfir 300 fyrirtæki búin að undirrita sérstakan samstarfssamning við VIRK. Í gegnum allt þetta ferli hafa hundruð einstaklinga fengið vinnu með aðstoð atvinnulífstengla VIRK.

Könnunin kallaði fram samfélagslegt mikilvægi þess að skapa rými á vinnumarkaðinum fyrir einstaklinga með mismunandi starfsgetu með því m.a. að fjölga hlutastörfum.

Mikilvægi hlutastarfa

Þátttaka á vinnumarkaði á Íslandi er mismunandi milli hinna ýmsu þjóðfélagshópa, t.d. er atvinnuþátttaka einstaklinga með skerta starfsgetu minni en hjá einstaklingum með fulla starfsgetu. Einstaklingar með skerta starfsgetu sem eru á vinnumarkaðinum eru einnig mun líklegri til að vera í hlutastörfum í samanburði við þá sem eru með fulla starfsgetu.

Rannsóknir sýna að það að vera með vinnu er mikilvægt fyrir bæði heilsu og velferð einstaklingsins og því er mikilvægt að fjölga tækifærum einstaklinga með skerta starfsgetu til þátttöku á vinnumarkaði. Fjölgun hlutastarfa á íslenskum vinnumarkaði væri ein leið til þess en samkvæmt tölum frá Hagstofunni eru einungis um 23% af öllum störfum í landinu skilgreind sem hlutastörf.

Telja mögulegt að fjölga hlutastörfum

Skráning fyrirtækja hjá VIRK hófst árið 2016 í tengslum við þróunarverkefnið Aukin atvinnutenging í starfsendurhæfingu, sem við lok verkefnis var innleitt inn í ferli starfsendurhæfingar sem VIRK Atvinnutenging. Árið 2018 fékk VIRK gott tækifæri til að skoða afstöðu fyrirtækja sem skráð voru í upplýsingagrunn VIRK. Það ár tók VIRK þátt í undirbúningi og útfærslu á rannsókn sem velferðarráðuneytið stýrði, þar sem kanna átti styðjandi og hindrandi þætti fyrir atvinnuþátttöku einstaklinga með skerta starfsgetu út frá sjónarmiðum atvinnurekenda.

Spurningakönnunin var framkvæmd af Gallup og var um að ræða þversniðskönnun meðal íslenskra fyrirtækja, fyrsta könnunin sem gerð hefur verið á viðhorfum vinnuveitenda á Íslandi gagnvart því að ráða starfsfólk með skerta starfsgetu í vinnu.

Niðurstöður könnunarinnar, sem kynntar voru í ársriti VIRK 2019 og sjá má hér, sýna m.a. að nær helmingur fyrirtækjanna (45%) sem tóku þátt í rannsókninni töldu mögulegt að fjölga hlutastörfum á vinnustaðnum þeirra.

Niðurstöðurnar sýndu einnig að vinnuveitendur með fyrri reynslu af því að ráða einstaklinga með skerta starfsgetu voru marktækt líklegri til að vilja ráða aftur slíka starfsmenn á næstu tveimur árum og þeir voru líka líklegri til að telja mögulegt að fjölga hlutastörfum á vinnustaðnum. Tæp 60% fyrirtækjanna sem höfðu reynslu af því að ráða starfsmenn með skerta starfsgetu sögðu reynsluna hafa verið frekar eða mjög góða. Einungis 4% fyrirtækjanna sögðu reynsluna hafa verið frekar eða mjög slæma. Fyrirtækin með góða reynslu af slíkum ráðningum voru líka marktækt líklegri til að svara játandi að hægt væri að fjölga hlutastörfum á vinnustaðnum þeirra.

VIRK leitar stöðugt eftir samstarfi við ný fyrirtæki og stofnanir sem eru hvött til þess að afla sér nánari upplýsinga á virk.is eða hafa samband við atvinnulífstengla VIRK með því að senda póst á atvinnutenging@virk.is.

Fjölbreytileiki á vinnumarkaði mikilvægur

Í könnuninni kom einnig skýrt fram mikilvægi þess að vera í góðu sambandi við vinnuveitendur, þar sem þátttakendur frá fyrirtækjum sem voru úr upplýsingagrunni VIRK en þau höfðu fengið sérstaka kynningu á starfsemi VIRK og atvinnutengingu fyrir einstaklinga með skerta starfsgetu, sýndu jákvæðari viðhorf en önnur fyrirtæki í rannsókninni gagnvart þessum hópi starfsmanna hvað varðar t.d. fjarveru frá vinnu og sveigjanleika í vinnu. Þeir töldu enn fremur að fjölbreytileikinn sem skapaðist við að ráða starfsmenn með skerta starfsgetu væri mikilvægur fyrir vinnustaðinn.

Könnunin kallaði fram samfélagslegt mikilvægi þess að skapa rými á vinnumarkaðinum fyrir einstaklinga með mismunandi starfsgetu með því m.a. að fjölga hlutastörfum.

Hafðu samband!

Mikilvægur þáttur í starfi atvinnulífstengla VIRK er að vera í góðu sambandi við vinnustaði og veita bæði almenna fræðslu og stuðning sem og meira sérhæfða ráðgjöf þegar einstaklingar sem eru að ljúka starfsendurhæfingu eru að koma til baka inn á vinnustaðinn.

VIRK leitar stöðugt eftir samstarfi við ný fyrirtæki og stofnanir sem eru hvött til þess að afla sér nánari upplýsinga á virk.is eða hafa samband við atvinnulífstengla VIRK með því að senda póst á atvinnutenging@virk.is.

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 25. febrúar.

Formaður Þingiðnar fundaði með Byggðaráði

Formaður Þingiðnar, Jónas Kristjánsson, var kallaður fyrir Byggðaráð Norðurþings í gær til að ræða stöðuna í atvinnumálum hjá iðnaðarmönnum ásamt framkvæmdastóra félagsins. Fundurinn fór vel fram og skiptust menn á skoðunum. Í máli Jónasar kom fram að almennt er staðan mjög góð hjá iðnaðarmönnum sérstaklega þó hjá trésmiðum innan félagsins. Töluvert hefur verið um nýbyggingar og viðhaldsverkefni á svæðinu. Að sjálfsögðu munaði um stórar framkvæmdir á okkar mælikvarða eins og framkvæmdir Búfesti á Húsavík, nýja fjölbýlishúsið við Útgarð og framkvæmdir fiskeldisfyrirtækja í Kelduhverfi og Öxarfriði. Allt væru þetta mannfrek verkefni. Frekari verkefni væru í farvatninu sem kæmu til með að skipta verulega miklu máli á næstu árum hvað byggingariðnaðinn varðaði s.s. bygging á nýju hjúkrunarheimili á Húsavík. Jafnframt væri til skoðunar að reisa húsnæði undir þaraverksmiðju, vonandi næði sú hugmynd fram að ganga. Þá kæmi til með að lifna yfir öðrum iðnaði þegar starfsemi PCC á Bakka færi aftur á stað í vor. Jónas sagði bjart yfir iðnaðarmönnum um þessar mundir enda mikið að gera og lítið sem ekkert atvinnuleysi meðal þeirra ólíkt öðrum atvinnugreinum.

Frábær námskeið í boði fyrir atvinnuleitendur

NTV skólinn í samstarfi við Vinnumálstofnun býður einstaklingum í atvinnuleit uppá sérstakt námskeið í „Sölu-, markaðs- og rekstrarmálum“ sem byrja nú í vikulok og standa yfir fram í byrjun júnímánaðar.

Námskeiðin eru tvö aðskilin námskeið þar sem annað er á íslensku og hitt er kennt á ensku.

Námskeiðin verða keyrð sem staðarnám og fjarnám.

Námskeiðin byggja á námsbrautinni „Sölu-, markaðs- og rekstrarnám“ sem NTV skólinn hefur boðið í mörg ár.

VMST niðurgreiðir námskeiðin þannig að hlutur þátttakenda er 28.000,- kr. Þátttakendur eiga möguleika á að sækja sinn hluta í starfsmenntasjóði.

VMST þarf að samþykkja hvern og einn umsækjanda inn á námskeiðin.

Rétt er að hvetja félagsmenn Framsýnar sem eru á atvinnuleysiskrá að kynna sér þessi ágætu námskeið – örfá sæti laus. Sjá frekar inn á www.ntv.is

                 

106 sóttu um tvær lausar stöður hjá Persónuvernd á Húsavík

Persónuvernd auglýsti nýverið eftir starfsfólki á nýja starfsstöð stofnunarinnar á Húsavík. Auglýst var eftir einum lögfræðingi og einum sérfræðingi í þjónustuver. Umsóknarfrestur var til 8. febrúar sl. Alls sóttu 28 um stöðu lögfræðings og 78 um stöðu sérfræðings. Verið er að vinna úr umsóknum en fyrirséð er að ráðningarferlið taki nokkrar vikur. (Heimild: personuvernd.is)

Samkvæmt fyrirliggjandi heimildum er gríðarlegur áhugi fyrir þessum auglýstu störfum á vegum Persónuverndar á Húsavík. Ekki síst í ljósi þess er full ástæða til að hvetja Persónuvernd og aðrar stofnanir á vegum ríkisins að fjölga stöfum enn frekar á Húsavíkursvæðinu enda greinilega mikil eftirspurn eftir störfum sem þessum.

Nýr dómur – bílstjórar Uber eru launamenn

Breski vinnudómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu 2016 að bifreiðastjórar sem óku undir merkjum Uber á Bretlandi væru launamenn en ekki verktakar eða sjálfstætt starfandi. Hæstiréttur Bretlands hefur staðfest þá niðurstöðu.

Dómurinn sem er frá 19. febrúar 2021 er mikill sigur fyrir allt það launafólk sem gert er að vinna í ótryggum ráðningarsamböndum. Tilurð slíkra sambanda eru gjarnan rökstudd með vísan til nýrrar tækni, nýs skipulags vinnunnar, fjórðu iðnbyltingarinnar og svo framvegis. Í enda dags er kjarni málsin alltaf sá að einhver ræður í reynd framkvæmd og skipulagi vinnunnar og sá aðili er að jafnaði sá sem á endanum hirðir arðinn af henni. Réttarstaða aðilana er ójöfn og verður ekki jöfnuð nema með skipulögðum vinnumarkaði sem byggir á réttindum og skyldum sem samkomulag tekst um í kjarasamningum þar sem stéttarfélög hvers réttarstaða er varin í lögum og alþjóðasamningum, koma fram fyrir ótilgreindan hóp launamanna. Í því efni hefur ekkert breyst frá því launafólk byrjaði að skipuleggja sig í upphafi 20 aldar.

Fjallað var um hinn áfrýjaða dóm í frétt ASÍ 8. nóvember 2016. Hæstiréttur Bretlands hefur nú staðfest hann að öllu leyti. Niðurstöðu sína um skilgreiningu bifreiðastjóra Uber sem launamanna byggir Hæstiréttur í meginatriðum á fimm þáttum er lúta að stjórnunarrétti Uber.

1. Þóknun bifreiðastjóranna er alfarið og einhliða ákveðin af Uber.
2. Samningur bifreiðastjóranna og Uber og öll samningskjör eru einhliða ákveðin af Uber.
3. Bifreiðastjórar ráða í reynd ekki hvenær eða hvort þeir vinna því um leið og þeir skrá sig inn í Uber appið er þeim skylt að taka allar ferðir. Haldið er utanum hvort þeir þiggi allar ferðir sem bjóðast og uppfylli þeir ekki markmið Uber í því efni eru þeir afskráðir úr appinu.
4. Uber ræður hvernig bifreiðar eru notaðar og tæknin sem notuð er og er óaðskiljanlegur hluti þjónustunnar er alfarið eign Uber.
5. Uber lágmarkar öll samskipti bifreiðastjóra og farþega og gerir sérstakar ráðstafanir til þess að hindra að framhaldandi viðskiptasamband geti stofnast milli aðila.

Þetta eru megin rökin en þau má finna í málsgreinum 94-101 í dóminum. Um aðgreiningu launamanna og verktaka er fjallað á vinnuréttarvef ASÍ.

Hér má lesa dóminn í heild sinni.

Einungis tvö sveitarfélög af 15 bjóða upp á lægri leikskólagjöld fyrir atvinnulausa

Í nýrri úttekt Verðlagseftirlitsins er farið yfir þróun á leikskólagjöldum og gjöldum fyrir skóladagvistun. Sérstaklega er sjónum beint að forgangshópum, hverjir tilheyra þeim og afsláttum sem bjóðast þeim hópum. Með forgangshópum er átt við einstæða foreldra, námsmenn, öryrkja og atvinnulausa en misjafnt eru hverjir tilheyra þessum hópum hjá sveitarfélögunum og eiga rétt á afsláttum. Þá var skoðað hvernig gjöld breytast við það að börn fari úr leikskóla yfir í grunnskóla en þar sem mun færri sveitarfélög bjóða upp á afslætti af skóladagvistunargjöldum en leikskólagjöldum, hækkar kostnaður fyrir fólk sem tilheyrir forgangshópum í mörgum tilfellum töluvert þegar þau færast milli skólastiga.

Helstu niðurstöður:

  • Öll 15 sveitarfélögin bjóða upp á lægri leikskólagjöld fyrir forgangshópa
  • Einungis 4 sveitarfélög af 15 bjóða upp á lægri gjöld fyrir skóladagvistun/frístund.
  • Kostnaður hækkar því töluvert í flestum sveitarfélögum hjá forgangshópum, einstæðum foreldrum, námsmönnum og öðrum sem tilheyra forgangshópum við það að barn færist milli skólastiga. Gjöldin hækka síður hjá þeim sem greiða almenn gjöld.
  • Mjög misjafnt er hverjir tilheyra forgangshópum hjá sveitarfélögunum. Þeir sem tilheyra forgangshópum og greiða lægri leikskólagjöld eru einstæðir foreldrar og námsmenn og er afsláttur af leikskólagjöldum í boði fyrir þessa hópa í öllum sveitarfélögunum.
  •  Einungis 2 sveitarfélög af þeim 15 sem verðlagseftirlitið gerði úttekt á leikskólagjöldum og gjöldum fyrir skóladagvistun bjóða upp á lægri leikskólagjöld fyrir atvinnulausa foreldra.
  • Einungis fjögur sveitarfélög bjóða upp á lægri skóladagvistunargjöld fyrir forgangshópa en það eru Kópavogsbær, Garðabær, Akraneskaupstaður og Seltjarnarnesbær. Gildir afslátturinn fyrir einstæða, öryrkja og námsmenn.
  • Ekkert sveitarfélag er með lægri gjöld skóladagvistunargjöld fyrir börn atvinnulausa.
  • Forgangshópar greiða því í flestum tilfellum sömu gjöld og aðrir þegar börnin eru komin í grunnskóla og hækka gjöldin því töluvert hjá forgangshópum þegar barnið fer úr leikskóla yfir í grunnskóla
  • Hafa verður í huga að það að afslættir bjóðist í einu sveitarfélagi en ekki öðru þarf það ekki að þýða að viðkomandi sveitarfélag sé með lægri gjöld. Í fréttinni sem linkur er á hér að neðan má finna gröf þar sem er hægt að sjá hversu há gjöldin eru miðað við í öðrum sveitarfélögum.

Fréttina í heild sinni má nálgast hér:

https://www.asi.is/frettir-og-utgafa/frettir/verdlagsfrettir/adeins-tvo-af-15-sveitarfelogum-bjoda-upp-a-laegri-leikskolagjold-fyrir-atvinnulausa/

Lægri leikskólagjöld og skóladagvistunargjöld fyrir forgangshópa ein leið til að hlífa börnum og barnafjölskyldum í kreppu 

Nauðsynlegt er að hlífa börnum fyrir afleiðingum kreppunnar en lægri gjöld fyrir leikskólagjöld og skóladagvistun er ein leið til að vinna að því markmiði. Samkvæmt rannsóknarskýrslu frá 2019 um lífskjör og fátækt barna á Íslandi á árunum 2004- 2016 versnuðu lífskjör barna meira en lífskjör almennings í kjölfar hrunsins og hlutfall barna sem bjuggu við fjárhagsþrengingar jókst meira hjá þeim börnum sem bjuggu á heimilum í viðkvæmri stöðu en hjá þeim sem gerðu það ekki. Börn á heimilum í viðkvæmri stöðu, svo sem börn einstærða foreldra, öryrkja og atvinnulausra eru einnig mun líklegri til að búa við fjárhagsþrengingar en önnur börn. Brýnt er að bæta kjör barna sem búa á heimilum í viðkvæmri stöðu en nærri fjögur af hverju 10 undir lágtekjumörkum eru börn einstæðra foreldra og er staða barna öryrkja sambærileg stöðu einstæðra foreldra.

Fækkun félagsmanna og atvinnuleysi í hámarki

Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum er mikill efnahagssamdráttur á Íslandi sem tengist heimsfaraldrinum. Reyndar er talað um einn mesta efnahagssamdrátt í heila öld. Almennt atvinnuleysi á Íslandi er um 11,6% um þessar mundir og jókst úr 10,7% milli mánaða, það er milli desember og janúar. Almennt er atvinnuleysið mest á Suðurnesjunum eða um 24,5%. Á Norðurlandi eystra, þar á meðal á félagssvæði Framsýnar, er það um 10%. Skrifstofa stéttarfélaganna á Húsavík fylgist stöðugt með gangi mála á vinnumarkaði og fjölda félagsmanna. Athygli vekur að greiðandi félagsmönnum fækkaði verulega milli ára eða úr 3.079 í 2.648 félagsmenn árið 2020. Ástæðan er einföld, verulegur samdráttur í atvinnulífinu, sérstaklega í ferðaþjónustu, hefur leitt til þess að félagsmönnum hefur fækkað umtalsvert. Samhliða þessu hafa tekjur Framsýnar farið niður enda mun færi sem greiða félagsgjald til félagsins milli ára. Ekki er ólíklegt að tekjuskerðingin milli ára 2019/20 verði um 12 til 15% þegar tekið er tillit til félagsgjalda og kjaratengdra gjalda s.s. greiðslna atvinnurekenda í orlofs- og sjúkrasjóð félagsins

Um þrjú hundruð söngfuglar komu í heimsókn

Öskudagurinn var haldinn hátíðlegur um land allt í dag. Á Húsavík fór hann vel fram í góðu veðri og fjölmenntu börn og unglingar um bæinn til að syngja fyrir starfsmenn fyrirtækja og stofnanna. Söngfuglarnir fóru ekki tómhentir heim þar sem þeim var boðið upp á mæru og ýmislegt annað góðgæti fyrir sönginn. Um þrjú hundruð gestir komu í heimsókn á Skrifstofu stéttarfélaganna í dag og er þeim þakkað fyrir komuna og fallegan söng.   

Deilan við SFS um skiptaverðið tapast fyrir Félagsdómi

Þann 6. maí 2020 sendi SFS bréf til samtaka sjómanna þar sem tilkynnt var um uppsögn á ákvæði kjarasamningsins sem undirritaður var þann 18. febrúar 2017. Um er að ræða  ákvæðið í grein 1.29.1. um 0,5% hækkun á skiptaverðmætishlutfallinu þegar afli er seldur til skyldra aðila.

Sjómannasamband Íslands taldi að SFS gæti ekki sagt þessu ákvæði upp einhliða þar sem hingað til hefði ekki verið ágreiningur milli aðila um að síðast gildandi samningur gilti þar til nýr væri gerður. Samningurinn hafði gildistíma til 1. desember 2019 en þar sem nýr kjarasamningur hefur ekki verið gerður milli aðila taldi SSÍ að kjarasamningurinn sem undirritaður var þann 18. febrúar 2017 væri enn í gildi enda unnið eftir honum. Sjómannasamband Íslands vísaði því málinu til Félagsdóms til að leysa úr þessum ágreiningi milli SFS og SSÍ um að 0,5% hækkun á skiptaverðmætishlutfallinu þegar afli er seldur skyldum aðila gildi þar til nýr samningur kæmist á milli aðila.

Í gær var kveðinn upp dómur í Félagsdómi þar sem SFS er sýknað af af kröfu SSÍ. Frá og með 1. júní 2020 er því skiptaverðið það sama hvort sem aflinn er seldur skyldum eða óskyldum aðila. Dómurinn fellst á að síðastgildandi samningur haldi gildi sínu að því undanskildu að frá 1. júní 2020 fellur 0,5% hærra skiptaverðmætishlutfallið brott úr grein 1.29.1. Rökin virðast þau að ekki hafi verið haldinn fundur eftir 1. desember 2019 í starfshópnum sem vinna átti í bókunum samningsins á samningstímanum. Miðað við málflutning SFS fyrir Félagsdómi er ljóst að þau samtök voru aldrei á samningstímanum að vinna að heilindum í að ljúka vinnu við bókanirnar. Niðurstaða þessa máls setur því kjaraviðræðurnar við SFS í enn meiri hnút en þær viðræður voru í fyrir og því ljóst að viðræður við SFS munu ekki halda áfram nema undir handleiðslu ríkissáttasemjara.

Sjá dóminn.

Fræðslufundir um vinnutímabreytingar 1. maí 2021

Þann 1. maí 2021 mun vinnuvika starfsfólks, í fullu starfi, í vaktavinnu styttast úr 40 klukkustundum í 36 á viku. Frekari stytting í allt að 32 klukkustundir er möguleg og grundvallast á vægi vinnuskyldustunda. Launamyndun vaktavinnufólks breytist og mun taka meira mið af vaktabyrði en áður. Vaktaálagsflokkum fjölgar og greiddur er sérstakur vaktahvati sem tekur mið af fjölda og fjölbreytileika vakta. Stór hluti vaktavinnufólks vinnur hlutastarf og eru breytingarnar til þess fallnar að auka möguleika vaktavinnufólks til að vinna hærra starfshlutfall og auka ævitekjur sínar.

Upplýsingar um breytingu á vinnutíma vaktavinnufólks er að finna í fylgiskjali 2 þeirra stéttarfélaga sem sömdu um slíkt, þar á meðal Framsýnar. Hér má sjá fylgiskjal 2.

Um er að ræða verulegar breytingar og því er mikilvægt að hlutaðeigandi starfsmenn séu vel inn í þeim. Hvað það varðar, hafa starfsmenn verið duglegir við að leita eftir upplýsingum á Skrifstofu stéttarfélaganna sem og  stjórnendur stofnanna. Formaður Framsýnar var beðinn um að funda með forstöðumönnum og starfsmönnum sambýlanna í gærmorgun auk þess sem Framsýn stóð fyrir kynningarfundi kl. 16:00 í gær með stjórnendum og starfsmönnum Heilbrigðisstofnunar Norðurlands, Hvamms heimils aldraðra og sambýlanna á Húsavík. Gestur fundarins var Bára Hildur Jóhannsdóttir sem farið yfir fyrir innleiðingarhópnum hvað varðar þessar miklu breytingar á vinnutíma vaktavinnufólks. Um er að ræða mjög flóknar breytingar. Afar mikilvægt er að menn kynni sér þær vel með því m.a. að fara inn á vefinn. www.betrivinnutimi.is Þá er alltaf hægt að fræðast um þær með því að setja sig í samband við starfsmenn Skrifstofu stéttarfélaganna.

Allir velkomnir á Öskudaginn

Skrifstofa stéttarfélaganna bíður alla velkomna í heimsókn á Öskudaginn. Ekki er verra að menn taki lagið og þiggi smá glaðning í staðin. Að sjálfsögðu verður vel hugað að sóttvörnum. Mikilvægt er að menn hafi í huga að forðast óþarfa snertingar, þvoi sér um hendurnar og viðhaldi tveggja metra reglunni.

Páskaúthlutun íbúða/orlofshúsa

Þá er komið að því, páskarnir framundan með tilheyrandi gleði og hamingju. Þeir sem ætla að sækja um dvöl í íbúðum og orlofshúsum stéttarfélaganna, Framsýnar-Þingiðnar-STH um páskana eru beðnir um að sækja um fyrir 22. febrúar nk.. Um er að ræða íbúðir stéttarfélaganna í Kópavogi, Reykjavík og á Akureyri auk orlofshúss Framsýnar á Illugastöðum. Tímabilið sem um ræðir er frá 30. mars til 6. apríl. Umsóknirnar verða teknar fyrir 22. febrúar og félagsönnum úthlutað íbúðum/orlofshúsum í kjölfarið.

Bolluát á bolludag – yfir milljón bolla bakaðar

Starfsmenn Skrifstofu stéttarfélaganna settust aðeins niður í morgun og fengu sér bollur úr Heimabakaríi á Húsavík. Að sjálfsögðu smökkuðust þær vel enda Heimabakarí þekkt fyrir góðar bollur og annað brauð.

Á Íslandi hefur tíðkast í yfir hundrað ár að borða bollur á þessum degi og í Þjóðólfi 1910 er talað um bolluát á bolludaginn.[3] Þó mun það hafa þekkst eitthvað áður og í matreiðslubók Þ.A.N. Jónsdóttur frá 1858 er uppskrift að langaföstusnúðum, þ.e. bolludagsbollum. Reykvísk bakarí fara að auglýsa bollur á bolludaginn á öðrum áratug aldarinnar og í Morgunblaðinu 1915 er kvartað yfir hnignun bolludagsins: „… það eina sem virðist vera eftir af kætinni frá fyrri tímum á »bolludaginn«, er óhemju kökuát barnanna — og full búðarskúffan af smápeningum hjá bökurum bæjarins. »Bollan« kostar því miður þrjá tveggeyringa í þetta sinn!“[4]

Áætlað hefur verið að íslenskir bakarar baki um eina milljón bolla fyrir bolludaginn en einnig eru margir sem baka bollur heima. Bollurnar eru nú oftast bornar fram með sultu og rjóma innan í og hattur bollunnar skreyttur með súkkulaðihulu eða glassúr en þó eru margar aðrar útgáfur til. Tvær tegundir af bollum eru algengastar: vatnsdeigsbollur (sem eru mjúkar og frauðkenndar) og gerbollur (sem eru öllu fastari í sér). Bollur bolludagsins hafa breyt lítið frá ári til árs, en bolluskrautið hefur breytist þó nokkuð á liðnum árum eftir smekk tímans.

Hvetur til samstöðu meðal sjómanna og SFS

Heiðrún Lind Marteinsdóttir framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi leit við á Skrifstofu stéttarfélaganna á föstudaginn. Þar hitti hún fyrir formann Framsýnar, Aðalsteinn Árna Baldursson. Til stóð að Jakob G. Hjaltalín formaður Sjómannadeildar félagsins tæki þátt í spjallinu við Heiðrúnu en hann átti ekki heimangengt.  

Fundurinn var vinsamlegur og fór vel fram og skiptumst Heiðrún og Aðalsteinn á skoðunum um hagsmuni sjómanna og útgerða innan SFS. Umræður urðu um helstu baráttumál sjómanna og áherslur útgerðarmanna varðandi breytingar á núgildandi kjarasamningum sem hafa verið lausir frá því í desember 2019. Aðalsteinn sagði það óviðunandi með öllu að sjómenn væru búnir að vera samningslausir á annað ár. Taldi hann skyldu SFS og samtaka sjómanna að setja aukinn kraft í viðræðurnar. Sjómenn væru mjög óánægðir með stöðuna sem væri afar eðlilegt. Þá fór hann yfir helstu atriði úr kröfugerð sjómanna sem snúa meðal  annars að því að jafna lífeyrisréttindi meðal launþega með því að útgerðir greiði sambærilegt mótframlag af sjómönnum í lífeyrissjóð og þekkist á almenna vinnumarkaðinum.  Verðmyndunarmál, mönnunamál sem og önnur hagsmunamál sjómanna fengu einnig góða umræðu á fundi Aðalsteins og Heiðrúnar.   

Greinilegur áhugi fyrir störfum hjá Persónuvernd

Ef marka má þann mikla fjölda sem skoðaði frétt heimasíðunnar um auglýsingu starfa á vegum Persónuverndará Húsavík ætti ekki að vera erfitt að ráða í starfið. Samkvæmt vefmælinum skoðuðu 1.250 manns fréttina á vefnum.  Þess má geta að Persónuvernd hefur auglýst tvær stöður hjá stofnuninni til umsóknar í nýrri starfsstöð á Húsavík. Um er að ræða eina stöðu lögfræðings og eina stöðu sérfræðings í þjónustuveri. Leitað er að framúrskarandi einstaklingum sem eru tilbúnir að takast á við krefjandi verkefni með samhentu teymi hjá Persónuvernd segir í auglýsingunni.  Full ástæða er til að fagna því að Persónuvernd sem er sjálfstætt stjórnvald, hafi ákveðið að efla þjónustuna enn frekar með því að opna fjarþjónustu á Húsavík.