Lögfræðiþjónusta fyrir stéttarfélögin

Aðildarfélög Skrifstofu stéttarfélaganna eru með samning við Sókn lögmannstofu á Egilsstöðum um að þjónusta félögin. Lögfræðiþjónustan fellst í því að lögmannsstofan mun veita ráðgjöf til starfsmanna stéttarfélaganna í daglegum störfum þeirra er varða hagsmuni félagsmanna, kjarasamningsbundin réttindi, innheimtumál og slysamál og eftir atvikum á málum á öllum sviðum lögfræðinnar er starfsmenn stéttarfélaganna ákveða að vísa til lögfræðistofunnar. Sókn lögmannsstofa var stofnuð haustið 2010 af þremur lögmönnum, Hilmari Gunnlaugssyni, Jón Jónsson og Evu Dís Pálmadóttir. Áður höfðu þau starfað saman í lögmennsku um árabil. Öll hafa þau leyfi til málflutnings fyrir héraðsdómstólum, Landsrétti og Hæstarétti Íslands.  Hjá Sókn lögmannsstofu  er að finna breiða þekkingu á ýmsum sviðum lögfræðinnar. Framkvæmdastjóri Sóknar lögmannsstofu er Eva Dís Pálmadóttir sem jafnframt verður aðallögmaður stéttarfélaganna sem aðild eiga að Skrifstofu stéttarfélaganna á Húsavík. Það eru; Framsýn stéttarfélag, Starfsmannafélag Húsavíkur, Þingiðn félag iðnaðarmanna í Þingeyjarsýslum og Verkalýðsfélag Þórshafnar.

Almenn lögfræðiþjónusta í boði fyrir félagsmenn

Aðildarfélög Skrifstofu stéttarfélaganna eru með samning við PACTA lögmenn um almenna þjónustu við félagsmenn sem þurfa á lögfræðiþjónustu að halda er varðar þeirra einkamál. Þetta á ekki við um kjara- og slysamál. Önnur lögmannsstofa sér um þau mál, Sókn lögmannsstofa. Samkomulag stéttarfélaganna við PACTA lögmenn sem er með starfsemi víða um land byggir á því að félagsmenn geta leitað til þeirra með þjónustu. Ekki þarf að greiða fyrir fyrsta tímann sem er gjaldfrjáls. Komi til þess að lögmenn PACTA þurfi að vinna frekar í málum fyrir félagsmenn fá þeir 15% afslátt frá fullu gjaldi. Til fróðleiks má geta þess
að PACTA býður upp á alla almenna lögfræðiþjónustu fyrir einstaklinga, fyrirtæki, sveitarfélög og stofnanir.

Félagsmenn sem vilja nýta sér þessa þjónustu er bent á að hafa samband við Ásgeir Örn Blöndal lögmann asgeirorn@pacta.is. Heimasíða PACTA, lögmanna er pacta.is og símanúmerið er 440-7900.

Deila á