Góður andi, nýir stjórnarmenn og merkilegt erindi

Aðalfundur Deildar verslunar- og skrifstofufólks innan Framsýnar var haldinn í gær. Fundurinn fór vel fram og góðar umræður urðu um starfsemi deildarinnar sem var lífleg á síðasta ári. Að venju fór stjórnarkjör fram á fundinum. Jóna Matthíasdóttir verður áfram formaður og Jónína Hermannsdóttir varaformaður. Þrjú koma ný inn í stjórn, það eru þau Anna Brynjarsdóttir, Dómhildur Antonsdóttir og Karl Hreiðarsson. Allt magnað fólk. Þess má geta að Dómhildur var um tíma formaður Verslunarmannafélags Húsavíkur sem nú er deild innan Framsýnar. Eftir venjuleg aðalfundarstörf kom gestur fundarins,  Greta Bergrún Jóhannesdóttir, sterk inn og flutti magnað erindi um verslun og þjónustu í Þingeyjarsýslum. Gréta Bergrún starfar á rannsóknarsviði hjá Þekkingarneti Þingeyinga.  Hér að neðan má lesa ársskýrslu stjórnar Deildar verslunar- og skrifstofufólks innan Framsýnar.
Kæru félagsmenn!

Fyrir hönd stjórnar Deildar verslunar- og skrifstofufólks býð ég ykkur velkomin til aðalfundar deildarinnar.

Eins og þið þekkið eru innan raða Framsýnar stéttarfélags tvær sjálfstæðar deildir, sjómannadeild og Deild verslunar- og skrifstofufólks.
Á síðasta starfsári var stjórn deildarinnar þannig skipuð; Jóna Matthíasdóttir formaður, Jónína Hermannsdóttir varaformaður, Birgitta Bjarney Svavarsdóttir ritari og í varastjórn sátu Þórunn Ágústa Kristjánsdóttir og Emilía Aðalsteinsdóttir.
Birgitta, Þórunn og Emilía láta nú af störfum og viljum við þakka þeim sérstaklega fyrir góð störf í þágu félagsins.
Stjórnin hélt tvo formlega stjórnarfundi á árinu auk þess að taka þátt í jólafundi stjórnar og trúnaðarmannaráðs Framsýnar. Milli funda er tekið á málefnum í formi tölvupósta eða símtala. Samkvæmt lögum félagsins er formaður deildarinnar einnig sjálfskipaður í stjórn Framsýnar sem fundar reglulega. Formaður er starfandi ritari í stjórn Framsýnar og aðrir fulltrúar aðalstjórnar sitja einnig í stjórnum og ráðum innan Framsýnar.
Stjórn deildarinnar vill þakka starfsmönnum og formanni félagsins fyrir gott og árangursríkt samstarf auk veittrar þjónustu til stjórnar og félagsmanna.
Formaður og varaformaður deildarinnar tóku þátt í  formannafund LÍV í lok febrúar. þar sem helsta umræðuefni voru nýsamþykktir kjarasamningar auk starfsmenntunarmála en þar voru m.a. kynntar breytingar á reglum Starfsmenntunarsjóðsins.
Dagana 26.- 28. október var 42. þing ASÍ haldið í Reykjavík og var formaður einn 83 þingfulltrúa úr röðum LÍV auk þess sem varaformaður sat þingið sem fulltrúi Framsýnar. Unnið var í hópum og helstu málaflokkar á þinginu velferðarmál, vinnumarkaður og jafnrétti, mennta- og atvinnumál auk þess sem alsherja- og laganefnd sat að störfum.  Þingfulltrúar tóku einnig umræðu samningslíkanið, svokallað SALEK, en miklar og skiptar skoðanir eru um ágæti þessa norræna samningslíkans en fulltrúar töldu skorta á upplýsingagjöf og fræðslu um fyrirkomulag og útfærslu þess.

Félagatal
Á árinu 2016 greiddu 211 manns til félagsins, þar af eru konur í miklum meirihluta eða 150 á móti 61 karlmanni.  Fjöldi félagsmanna innan deildarinnar stendur í stað, milli ára fjölgaði um tvo, eina konu og einn karl.

Fjármál
Skrifstofa stéttarfélaganna er rekin sameiginlega af stéttarfélögunum í Þingeyjarsýslum, auk þess sem Verkalýðsfélag Þórshafnar er með þjónustusamning við hana. Rekstur skrifstofunnar gekk vel á sl. ári. Innheimta og innkoma félags- og iðgjalda var með svipuðu sniði og árið á undan. Almennt eru launagreiðendur samviskusamir að skila félagsgjöldum og mótframlögum á réttum tíma.
Með auknum fjölda starfsmanna á svæðinu hefur fjöldi félagsmanna og greiðenda aukist með auknum tekjum til félagsins en þýðir einnig aukna vinnu og kostnað fyrir félagið. Endurskoðaður ársreikningur félagsins verður lagður fram á aðalfundi þess sem haldinn verður með vorinu. Stjórn Framsýnar og starfsmenn kappkosta að gæta hagsmuna félagsins og þar með félagsmanna með því að standa vörð um fjármuni þess hér eftir sem hingað til.

Kjara og samningamál

Kjarasamningar voru samþykktir á árinu 2015 og því rólegra yfir í kjaramálum. Ákvæði í þeim samningi kvað á um árlega endurskoðun og í lok janúar á síðasta ári var skrifað undir nýjan samning sem gildir til ársloka 2018. Sá samningur felur í sér viðbætur við þær hækkanir sem samið var um árinu áður og byggist á rammasamkomulagi aðila vinnumarkaðsins frá lok okt 2015 og eldri bókun um lífeyrisréttindi og er ætlað að tryggja jafnræði í kjaraþróun á grundvelli sameiginlegrar launastefnu og jöfnun lífeyrisréttinda.
Nú í febrúar kemur endurskoðunarnefnd aftur saman og mun taka sérstaklega til skoðunar nokkur ákvæði, þau helstu er m.a. að aukinn kaupmáttur launa hafi gengið eftir, að stjórnvaldsákvarðanir og lagabreytingar í húsnæðismálum hafi og muni ganga eftir og að sú launastefna og launahækkanir sem í samningum felast hafi verið stefnumarkandi fyrir aðra samningagerð á vinnumarkaði.

Orlofsmál
Aðildarfélög Skrifstofu stéttarfélaganna hafa með sér gott samstarf í orlofsmálum sem eru sem fyrr mikilvægur þáttur í starfi félagsins. Boðið er upp á fjölmarga kosti; m.a. orlofshús, gistiávísanir á hótelum og farfuglaheimilum auk endurgreiðslu á gistikostnaði á tjaldsvæðum og vegna kaupa á útilegukortum. Helstu samstarfsaðilar eru Foss- og Edduhótelin, Hótel Keflavík, Hótel KEA, Hótel Norðurland,  Hótel Reykjavík Lights, Gistihús Keflavíkur auk þess sem Icelandair hótelin hafa bæst við í flóru hótelgistinga, t.d. á Akureyri og Hotel Natura í Reykjavík.
Þá viljum við sérstaklega nefna orlofsíbúð á Spáni sem við tókum í leigu síðast liðið haust og félagsmenn geta nýtt sér.
Jöfn og góð nýting er á íbúðum okkar á höfuðborgarsvæðinu og er það vel. Leitast er við að sem flestir félagsmenn sem sækja um orlofshús fái úthlutun en eins og þið vitið er ekkert punktakerfi við lýði hjá stéttarfélögunum okkar.
Okkur til mikillar ánægju var skrifað undir áframhaldandi samning milli Skrifstofu Stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslu og flugfélagsins Ernis um kaup á flugmiðum fyrir félagsmenn Framsýnar og tengdra aðila. Um er að ræða eina bestu kjarabót sem okkur félagsmönnum stendur til boða. Nýr samningur er áætlaður að tryggja okkur verð á flugmiða aðra leið milli Húsavíkur og Reykjavíkur fyrir kr. 8.900 út árið 2017 og er það vel. Óhætt er að segja að með samningi þessu séu Stéttarfélögin í Þingeyjarsýslu að styrkja við og stuðla að frekari flugsamgöngum um Húsavíkurflugvöll.
Þjónusta Ernis er til fyrirmyndar, boðið er upp á áætlunarflug sex daga vikunnar, alls 12 ferðir á viku og mikið um aukaflug á álagsdögum.
Á síðasta ári má ætla að ríflega 2000 miðar hafi verið seldir en uppgjör síðasta árs liggur ekki fyrir hjá félaginu.

Fræðslu- og kynningarmál
Félagið er aðili að Starfsmenntunarsjóði verslunar og skrifstofufólks. Nokkur fækkun var milli ára á fjölda félagsmanna og lægri styrkupphæð heldur árinu áður. Á síðasta ári fengu 35 félagsmenn starfsmenntastyrki, alls að upphæð kr. 1.553.355.– Upphæð ársins 2015 var 2.314.455- krónur og bak við þá fjárhæð 54 félagsmenn. Um áramótin 2015 -2016 tók í gildi nýjar reglur í Starfmenntasjóði verslunar- og skrifstofufólks sem hafði m.a. áhrif á aukin réttindi þeirra sem eru í lægri tekjuhóp.
Við viljum minna félagsmenn á að kynna sér fjölmörg önnur réttindi sem eru einnig í boði og nýta það sem til staðar. Starfmenn skrifstofu félagsins liðsinna ykkur með þær upplýsingar og þær má einnig finna á vefsíðu og í kynningarbæklingi Framsýnar sem er uppfærður reglulega.
Deild verslunar – og skrifstofufólks hefur ekki almennt staðið fyrir sérstökum fundum fyrir félagsmenn sína, heldur eru haldnir opnir almennir félagsfundir Framsýnar um margvísleg málefni, m.a. kjarasamninga sem og önnur málefni.

Fréttabréf og heimasíðan www.framsyn.is
Stöðugt birtast fréttir á vefsíðu Framsýnar www.framsyn.is úr starfi Félagsins og aðila Skrifstofu stéttarfélagana auk þess sem fréttir um málefni líðandi stundar í samfélaginu slæðist stundum með. Á tveggja mánaða fresti er gefið út Fréttabréf stéttarfélaganna sem dreift er frítt til allra heimila á félagssvæðinu.  Fréttabréfið tekur á helstu málefnum úr starfi stéttarfélaganna. Þar koma m.a. fram upplýsingar til félagsmanna varðandi kjör og starfsemi stéttarfélaganna auk úrdráttur helstu frétta sem birtast á heimasíðunni. Fréttabréfinu er dreift frítt á öll heimili á félagssvæðinu og kemur út á tveggja mánaða fresti.

Málefni skrifstofunnar
Rekstur skrifstofu stéttarfélaganna gekk vel á síðasta starfsári sem fyrr. Þar eru starfandi 5 starfsmenn í fullu starfi á skrifstofu og einn starfsmaður er í hlutastarfi við ræstingar. Til viðbótar eru þrír starfsmenn í 0,4% stöðugildum við umsjón á orlofsíbúðum/húsum sem eru í eigu félagsins og við þjónustu við félagsmenn Framsýnar á Raufarhöfn.
Mikið álag er á skrifstofu félagsins í tengslum við uppbyggingu á orkufrekum iðnaði á svæðinu auk þess sem talsvert umfang er af sölu flugmiða til félagsmanna eins og má skilja. Þrátt fyrir breytingu á bókunarfyrirkomulagi í flugmálum hefur það ekki tekið allt álag af afgreiðslu skrifstofunnar.
Nýr starfsmaður kom til starfa á skrifstofunni á síðasta ári, Aðalsteinn J. Halldórsson, sem gegnir starfi eftirlitsfulltrúa í iðnaði og ferðaþjónustu auk annarra starfa.
Mikið og gott samstarf er við Ágúst Óskarsson starfsmann VIRK-Starfsendurhæfingarsjóðs í Þingeyjarsýslum, sem hefur viðtæka reynslu úr fyrri störfum sínum fyrir félagið auk þess sem góður árangur er af starfi Virk og þjónustu hans við notendur svæðisins.
Hér í félagsaðstöðu okkar er góð nýting, bæði á vegum stéttarfélaganna sem og aðrir leigja hér aðstöðu fyrir fundi og mannfagnaði. Gott samstarf er við þau fyrirtæki og verktaka sem hafa bæst í hóp atvinnurekenda á svæðinu og þeim fylgir aukin útleiga fundarsalar.
Á jarðhæðinni leigir Enor endurskoðun skrifstofupláss og á efri hæð eru framkvæmdir vel á veg komnar. Þar er áætlað að opna í lok mars skrifstofuhúsnæði með átta skrifstofurýmum auk fundarsalar og starfsmannaaðstöðu.

Lokaorð
Með þessari stuttu samantekt hef ég gert grein fyrir því helsta úr starfsemi deildarinnar frá síðasta aðalfundi.
Starf deildarinnar sem slíkt, er ekki kraftmikið eða viðburðaríkt en við erum ómissandi í starfi félagsins.  Ég vil hvetja ykkur öll til þess að taka þátt í þeim viðburðum sem í boði eru, láta ykkur umræðu um kjaramál og velferð í starfi máli skipta og koma tillögum og hugmyndum um úrbætur eða fræðslu á framfæri. 
Stjórn deildarinnar vill þakka öllum þeim félagsmönnum sem hafa gengt trúnaðarstörfum fyrir félagið, félagsmönnum okkar og starfsmönnum skrifstofu fyrir vel unnin störf og gott samstarf á árinu.

Jóna Matthíasdóttir, formaður.

adalversun0217 019

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Stjórn Deildar verslunar- og skrifstofufólks klár í slaginn. Á myndina vantar Karl Hreiðarsson sem komst ekki á fundinn í gær.

adalversun0217 007

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Trausti Aðalsteins var á svæðinu og var málefnalegur að vanda.

adalversun0217 015

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Erindi Grétu var virkilega áhugavert um vihorf þingeyinga til verslunar og þjónustu í héraðinu. Þekkingarnet Þingeyinga gerði könnun fyrir nokkrum árum á viðhorfi fólks til þessara þátta sem hún gerði grein fyrir.

adalversun0217 005

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Miklar umræður urðu á fundinum í gær, ekki síst undir erindi Grétu.

Hér má sjá glærur er viðkoma erindinu hjá Grétu.

adalversun0217 008adalversun0217 009adalversun0217 018

 

Nýtt alþingi fellur á fyrsta prófinu

Framsýn stéttarfélag tekur heilshugar undir með miðstjórn Alþýðusambands Íslands sem telur forsætisnefnd Alþingis hafa fallið á fyrstu prófraun sinni og sýnt að Alþingi skortir jarðsamband og tengsl við almenning í landinu. Sl. haust ofbauð landsmönnum ákvörðun kjararáðs um fordæmalausa hækkun launa og fastra greiðslna til alþingismanna. Síðan þá er búið að skipta um helming þingmanna og snérust kosningarnar í haust ekki síst um breytt siðferði.

Nýir þingmenn höfðu tækifæri til að beita sér og sýna í verki að alvara lá að baki kosningaloforðum og taka til baka hækkun þingfaralauna umfram það sem hinn almenni launamaður hefur fengið í sitt umslag.

Miðstjórn Alþýðusambandsins mótmælir hálfkáki forsætisnefndar þingsins og krefst þess að Alþingi taki málið upp og afturkalli hækkanir kjararáðs. Miðstjórn ASÍ minnir á að forsenduákvæði kjarasamninga eru til endurskoðunar nú í febrúar og hækkanir til alþingismanna og æðstu embættismanna geta sett framhald kjarasamninga alls þorra landsmanna í uppnám.

Skorað á Samherja að halda áfram með starfsemi í fiskvinnslu á Húsavík

Stjórn og trúnaðarráð Framsýnar hefur samþykkt að senda frá sér svohljóðandi áskorun til Samherja vegna ákvörðunar Reykfisks, sem er í eigu Samherja, að hætta starfsemi á Húsavík 1. maí 2017. 

Áskorun

Stjórn og trúnaðarráð Framsýnar samþykkti á fundi sínum að skora á stjórnendur Samherja að falla frá því að hætta rekstri Reykfisks ehf.  á Húsavík frá og með 1. maí 2017.

Um er að ræða mikilvægan vinnustað á Húsavík sem veitt hefur um 20 starfsmönnum vinnu við almenn fiskvinnslustörf. Innan fyrirtækisins er mikill mannauður.

Í ljósi þess að kvótastaða Samherja er einstaklega góð ætti ekki að vera erfitt fyrir fyrirtækið að mæta tímabundum sveiflum í markaðs- og gengismálum með því að halda starfseminni áfram gangandi á Húsavík.

Verði niðurstaðan sú að fyrirtækið hætti endanlega starfsemi 1. maí verður það verulegur skellur fyrir starfsfólkið og samfélagið á Húsavík enda um verðmæt störf að ræða.

Húsavík 1. febrúar 2017

Fh. Framsýnar, stéttarfélags

Aðalsteinn Árni Baldursson

Orlofsnefnd fundar

Orlofsnefnd fundaði í hádeginu í dag. Farið var yfir kosti í orlofshúsum fyrir næsta sumar en eins og flestir vita hafa stéttarfélögin boðið upp á margvíslega kosti í þeim efnum. Að sjálfsögðu verður þar framhald á og lögðust þeir kostir sem reifaðir voru á fundinum ágætlega í fundarmenn.

Vinnustaðafundur á Þeistareykjum

Í dag heimsóttu starfsmenn stéttarfélaganna Þeistareyki og áttu þar fund með forsvarsmönnum Stálsmiðjunar og Íslenskrar verkmiðlunar auk starfsmanna. Fyrirtækin sjá um stóran verkþátt í Þeistareykjarvirkjun er varðar uppsetningu á búnaði stöðvarhússins.

Eins og alltaf leggur Framsýn áherslu á gott samstarf með öllum aðilum borðsins með það að markmiði að hlutirnir séu til fyrirmyndar. Fundir sem þessi sem haldinn var í dag er hluti af því ferli. Fundurinn var hinn ágætasti. Sumir starfsmannanna eru gamlir góðkunningjar Framsýnar en þeir höfðu áður unnið hjá öðru fyrirtæki sem var með verkefni á Þeistareykjum. Það var afar ánægjulegt að sjá þá komna aftur hingað til vinnu.

Á heimleiðinni skutu upp kollinum enn eldri kunningjar en það voru þeir Sveinn Freysson og Þórarinn Illugason sem starfa við máliningarverkefni á Þeistareykum. IMG_1682Formaður Framsýnar ásamt forsvarsmönnum Stálsmiðjunnar framtaks og Íslenskrar verkmiðlunar.IMG_1671IMG_1668IMG_1667IMG_1665IMG_1664IMG_1685Eins og sjá má eru Sveinn og Þórarinn hæstánægðir á hálendinu.

Kjörbúð opnar á Þórshöfn

Kjörbúðin opnaði á Þórshöfn síðastliðinn föstudag en það er ný verslunarkeðja sem tekur við af Samkaup Strax búðunum víða um land. Ómar Valdimarsson forstjóri Samkaupa sagði að stefnan væri að bjóða verð sem væri í það minnsta samkeppnishæft við lágvöruverðsverslanir en þessar breytingar eru gerðar eftir víðtæka könnun hjá viðskiptavinum Samkaup Strax um allt land. Þá er einnig lengdur opnunartími sem er mikil þjónustu aukning. Það er gömul saga og ný að fólk geri stórinnkaup í lágvöruverðsverslunum í stærri byggðarlögum þegar leiðin liggur þangað en með þessum breytingum og lægra vöruverði eflist vonandi verslun í heimabyggð. Elías Pétursson sveitarstjóri Langanesbyggðar afhenti Sóleyju Indriðadóttur verslunarstjóra Kjörbúðarinnar blómakörfu fyrir hönd sveitarfélagsins og lýsti yfir ánægju með þessar breytingar, sem bæta kjör íbúa. Starfsfólk hefur staðið í ströngu undanfarna daga, ásamt her manns úr röðum Samkaupa, við ýmsar lagfæringar og breytingar. Viðskiptavinum var boðið uppá kaffi og köku, auk þess sem ýmis opnuartilboð eru í gangi næstu daga. /GBJ

kjorbud 1 kjorbud 2

Reykfiskur hættir starfsemi – áföll í atvinnumálum fylgja 1. maí

Forsvarsmenn Reykfisks sem er í eigu Samherja tilkynntu  starfsmönnum fyrirtækisins og forsvarsmönnum Framsýnar, stéttarfélags í morgun að þeir ætluðu að leggja af starfsemina á Húsavík frá og með 1. maí nk. Þetta er annað áfallið í atvinnumálum sem ber upp á 1. maí. Eins og kunnugt er lokaði Vísir hf.  starfsemi fyrirtækisins á Húsavík þann 1. maí 2014. Við það misstu um 60 starfsmenn vinnuna í fiskvinnslu á Húsavík.

Hjá Reykfiski starfa um þessar mundir 20 starfsmenn í 18 stöðugildum. Þegar mest hefur verið hafa hátt í 30 starfsmenn starfað hjá fyrirtækinu sem hefur verið í eigu Samherja frá árinu 2009. Þar áður hafði fyrirtækið verið starfandi frá árinu 2005 undir nafninu Fjörfiskur. Reykfiskur hefur sérhæft sig í vinnslu á reyktum ýsuflökum á erlenda markaði. Framleiðslan á síðasta ári var um 700 tonn af reyktum flökum.

Á fundinum í morgun kom fram að reksturinn hefur gengið frekar illa tvö síðustu ár ekki síst vegna gengi krónunnar, markaðsmála og tollamála. Þess vegna væri ráðist í þessar aðgerðir. Á fundinum hvöttu forsvarsmenn Framsýnar fyrirtækið til að endurskoða ákvörðunina ekki síst í ljósi þess að vinnustaðurinn væri mikilvægur í samfélaginu og hefði á að skipa frábæru starfsfólki.

Fiskvinnsla er á undanhaldi á Húsavík, fækkað hefur um 100 störf í fiskvinnslu á allra síðustu árum með lokun Vísis hf. og nú Reykfisks hf. Að sögn formanns Framsýnar, Aðalsteins Árna Baldurssonar er þetta sláandi þróun, ekki síst fyrir stað eins og Húsavík. Stjórn Framsýnar hefur verið kölluð saman til fundar eftir helgina til að ræða þessi ömurlegu tíðindi.

aðaldís0309 125

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Félagarnir Jónas og Siggi Hákonar störfuðu um árabil hjá Reykfiski en hafa nú snúið sér að öðrum verkefnum. Þeirra gamla vinnustað verður lokað eftir nokkra mánuði.

 

Aðalfundur sjómannadeildar Verkalýðsfélags Þórshafnar

Aðalfundur sjómannadeildar Verkalýðsfélags Þórshafnar var haldinn þann 27.janúar 2017. Góðar umræður voru á fundinum og voru samningar sjómanna helsta umræðuefnið enda mál málanna meðal sjómanna í dag.

Á fundinum var samþykkt eftirfarandi ályktun: „Aðalfundur sjómannadeildar Verkalýðsfélags Þórshafnar skorar á SFS að sýna þá ábyrgð að ganga að kröfum sjómanna og semja nú þegar“

Þá var einnig kosið í stjórn félagsins en hana skipa Einar Örn Einarsson formaður, Árni Bragi Njálsson varaformaður og Jóhann Ægir Halldórsson ritari. Varamenn eru Óli Ægir Steinsson og Jón Arnar Beck.

„Óttumst ekki lagasetningu“

Formaður Sjó­manna­sam­bands­ins seg­ir fyr­ir­svars­menn sjó­manna hafa fengið skýr skila­boð um að standa fast­ir fyr­ir á kröf­um sín­um og hvika ekki frá þeim. Hann ótt­ast ekki laga­setn­ingu  enda hafi tveir ráðherr­ar lýst því yfir að sú leið verði ekki far­in.

„Við erum bara ró­leg­ir í verk­fall­inu,“ seg­ir Val­mund­ur Val­munds­son, formaður Sjó­manna­sam­bands Íslands.

Hann seg­ir stöðuna grafal­var­lega á meðan menn tal­ist ekki við, og slíkt sé upp á ten­ingn­um nú. „Það er nátt­úr­lega verið að reyna að búa til þrýst­ing úr báðum átt­um, en við erum ró­leg­ir ennþá. Þetta eru aðgerðir til að bæta kjör manna, og slíkt tek­ur stund­um tíma,“ seg­ir hann.

Lækk­un ol­íu­kostnaðar og bæt­ur vegna sjó­manna­afslátt­ar

Að sögn Val­mund­ar eru ýtr­ustu kröf­ur sjó­manna varðandi ol­íu­kostnað þær að gólfið verði hækkað um 3%, eða verði 27% óskipt­ur frá­drátt­ur afla­verðmæt­is til út­gerðar í stað 30% eins og verið hef­ur hingað til. Hann seg­ir að sú breyt­ing myndi þýða 4,3% hækk­un á skipta­hlut til sjó­manna.

„Ef miðað er við árið 2015 telst okk­ur til að út­gerðir inn­an Sam­taka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS) hafi verið að greiða í kring­um 45 millj­arða í laun og launa­tengd gjöld til sjó­manna. Sú hækk­un sem við erum að fara fram á að þessu leyti myndi þýða hækk­un upp á um það bil 1,8 millj­arða. Sá er nú kostnaður­inn við þenn­an lið,“ seg­ir Val­mund­ur.

Tals­menn sjó­manns­stétt­ar­inn­ar hafa jafn­framt sett fram þá kröfu á út­gerðina að greidd­ar verði bæt­ur til sjó­manna vegna af­náms sjó­manna­afslátt­ar­ins.

„Ítrasta krafa okk­ar þar er að sjó­mönn­um verði greidd­ar 2.000 krón­ur á dag. Við vit­um fyr­ir víst að það er um það bil ein millj­ón lög­skrán­ing­ar­daga sjó­manna á Íslandi ár­lega. Með sund­ur­grein­ingu reikn­ast okk­ur til að fé­lög inn­an vé­banda SFS eigi 600.000 af þeim. Krafa okk­ar um þenn­an tvöþúsund­kall þýðir þá 1,2 millj­arðar fyr­ir þá,“ seg­ir Val­mund­ur.

„Auðvitað finnst mönn­um þetta vera stór­ar upp­hæðir en fé­lags­menn SFS eru 140 tals­ins, svo okk­ar ýtr­ustu kröf­ur kosta þá hvern út­gerðarmann um það bil 22 millj­ón­ir á ári. Ég geri mér grein fyr­ir að út­gerðir eru mis­stór­ar og kostnaður­inn dreif­ist eft­ir því, en þetta eru meðal­töl­urn­ar sem við erum að vinna með,“ bæt­ir hann við.

Mik­il samstaða og skýr skila­boð

Val­mund­ur seg­ir al­ger­an ein­hug ríkja meðal sjó­manna um að hvika ekki frá þess­ari kröfu­gerð.

„Það mættu tæp 60% þeirra sjó­manna sem eru í verk­falli á fundi for­ystu­mann­anna í síðustu viku. Þetta voru yfir 25 fund­ir sem haldn­ir voru vítt og breitt um landið, og við erum með skila­boð frá hverj­um ein­asta þeirra um að halda fast við þess­ar kröf­ur og standa á þeim. Við höf­um fengið á okk­ur gagn­rýni fyr­ir að taka ekki aðrar kröf­ur, svo sem ný­smíðaálagið, með okk­ur í þenn­an pakka en samn­inga­nefnd­irn­ar urðu sam­mála um þess­ar kröf­ur. Á þeim segja menn okk­ur að standa og við ger­um það,“ seg­ir hann.

Val­mund­ur seg­ir að þegar þess­ar kröf­ur sjó­manna hafi verið sett­ar fram á samn­inga­fundi með SFS hafi þeir ein­fald­lega sagst ekki geta komið til móts við þær og því hafi slitnað upp úr viðræðunum.

„Sjá­um hvað ger­ist þegar líður á störu­keppn­ina“

En ótt­ast þeir ekki að lög verði sett á verk­fall sjó­manna?

„Nei, það ger­um við ekki. Það eru tveir ráðherr­ar rík­is­stjórn­ar­inn­ar bún­ir að lýsa því yfir í okk­ar áheyrn að ekki verði sett lög á okk­ur svo við erum ekki hrædd­ir við það. Auðvitað ber okk­ur samn­ingsaðilum þessa máls að finna lausn á því og leysa þessa deilu, en svona er staðan núna. Við skul­um sjá til hvað ger­ist þegar líður á störu­keppn­ina,“ seg­ir Val­mund­ur Val­munds­son, formaður Sjó­manna­sam­bands Íslands.

(þessi frétt er tekin af mbl.is)

Stjórn og trúnaðarráð Framsýnar fundar á mánudaginn

Stjórn og trúnaðarráð Framsýnar kemur saman til fundar næsta mánudag, 30. janúar kl. 17:00 í fundarsal félagsins. Fulltrúum úr stjórn Framsýnar-UNG er boðið að sitja fundinn.

Dagskrá:

1. Fundargerð síðasta fundar
2. Inntaka nýrra félaga
3. Verkfall sjómanna- verkfallsbætur
4. Bankaviðskipti félagsins
5. Formannafundur LÍV
6. Aðalfundur Deildar verslunar- og skrifstofufólks innan Framsýnar
7. Staðan í samskiptum við verktaka á svæðinu
8. Kynnisferð til Póllands
9. Heimsókn SGS til Norðurlandana
10. Olís: Trúnaðarmaður
11. LNS-Saga: Trúnaðarmaður
12. Framkvæmdir G-26
13. Orlofsbyggðin Illugastöðum-ljósleiðari
14. Önnur mál

Árangursrík ferð til Norðurlandana

Fulltrúar aðildarfélaga Starfsgreinasambandsins voru á ferð um Noreg og Danmörku til að kynna sér kjarasamningsgerð og uppbyggingu verkalýðshreyfingarinnar þar í löndum. SGS hittu Fällesforbundet i Noregi, sem eru systursamtök SGS og stærstu landssamtök innan norska ASÍ (LO). Þá var haldin kynning á framkvæmd verkfalls starfsfólks í hótel- og veitingagreinum í fyrrasumar sem SGS studdi með ráðum og dáð, auk þess sem farið var yfir verklag  við kjarasamningagerð. Í Danmörku hitti sendinefndin félaga okkar í 3F sem er stærsta stéttarfélag Danmörku. Þar þáðu Íslendingarnir fræðslu um kjarasamningagerð, vinnulag, laun og önnur réttindi starfsfólks á danska vinnumarkaðinu. Þá var farið sérstaklega yfir muninn á Norðurlöndunum varðandi kaup og kjör. Ljóst er að ferðin hefur verið árangursrík og fulltrúar aðildarfélaga SGS koma betur undirbúin heim undir umræður um framtíðarskipan kjarasamningsmála á Íslandi.

Tveir fulltrúar fóru í þessa ferð á vegum Framsýnar sem tókst í alla staði mjög vel en mikið var fundað með fulltrúum frá systursamtökum Starfsgreinasambandsins í Noregi og Danmörku. Ferðir sem þessar eru afar mikilvægar í norrænu samstarfi. Sjá myndir sem teknar voru í heimsókninni.20170119_10005620170119_10013420170118_19573220170117_21010120170118_13260020170117_131450_001

IMG_185720170118_153242_00120170117_124735

Nýjir aðilar taka við hótelstjórn á Fosshótel Húsavík

Þann 1. febrúar næstkomandi verða hótelstjóraskipti hjá Fosshótel Húsavík. Jóna Árný Sigurðardóttir sem verið hefur hótelstjóri hefur ákveðið að fara í nám eftir farsæl störf fyrir hótelið. Í hennar stað hafa Einar Karl Guðmundsson verið ráðinn sem hótelstjóri og Brynja Jóhannesdóttir sem aðstoðarhótelstjóri en þau eru hjón. Einar Karl og Brynja hafa lengi starfað í ferðaþjónustu. Þau litu við á Skrifstofu stéttarfélaganna í gær til að kynna sig og fara yfir þau áform sem þau hafa varðandi eflingu á starfsemi hótelsins á svæðinu jafnframt því að óska eftir góðu samstarfi við Framsýn um málefni starfsmanna.

fosshotel0117 003

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Einar Karl og Brynja eru hér ásamt Jónu sem hættir sem hótelstjóri um næstu mánaðamót. Þau áttu góða samverustund með forsvarsmönnum Framsýnar, þeim Aðalsteini Árna og Huld Aðalbjarnar skrifstofu- og fjármálastjóra stéttarfélaganna.

Formenn LÍV funduðu fyrir helgina

Formannafundur LÍV (Landssamband íslenskra verzlunarmanna) var haldinn í Reykjavík í síðustu viku. Fulltrúi Framsýnar, Jóna Matthíasdóttir formaður deildar verslunar- og skrifstofufólks, sat fundinn sem var vel sóttur af formönnum aðildarfélaganna.
Dagskráin var nokkuð viðamikil, Henný Hinz fór yfir stöðu efnahagsmála og hvaða tækifæri og áskoranir eru þar til staðar áður en Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ tók fyrir stöðu kjaramála. Hann ræddi m.a. helstu forsenduatriði samningsins sem þarf að taka sérstaklega til umræðu og endurskoðunar nú í febrúar mánuði samkvæmt bókun í kjarasamningi. Helstu forsenduatriði eru m.a. að aukinn kaupmáttur launa hafi gengið eftir, að stjórnvaldsákvarðanir og lagabreytingar í húsnæðismálum hafi og muni ganga eftir og að sú launastefna og launahækkanir sem í samningum felast hafi verið stefnumarkandi fyrir aðra samningagerð á vinnumarkaði.
Tómas Möller lögfræðingur Lífeyrissjóðs verslunarmanna fór vel yfir ýmis atriði sem snúa að réttindum og greiðslum í lífeyrissjóði og það gerði einnig Margrét Kristinsdóttir deildarstjóri lífeyrisdeildar VR.
M.a. bentu þau á mikilvægi þess að þekkja lífeyrisréttindi sín og minntu m.a.á að hægt er að nálgast upplýsingar á eigin síðum hjá viðkomandi lífeyrissjóði þar sem einnig er hægt að tengjast lífeyrisgátt og skoða réttindi, séu þau til staðar í fleirum en einum sjóði.
Fundinum lauk með yfirferð og upprifjun Elíasar Magnússonar á kjarasamningi VR/LÍV auk málefnalegra umræða fundarmanna.

Allt í hnút í kjaradeilu sjómanna

Upp úr viðræðum milli sjómanna og útvegsmanna slitnaði á fundi hjá ríkissáttasemjara í dag og hefur nýr fundur ekki verið boðaður. Viðræðuhlé var milli aðila frá þriðjudeginum 17. janúar síðastliðnum til dagsins í dag. Aðildarfélög Sjómannasambandsins notuðu hléið til að funda með sjómönnum og fara yfir stöðuna. Skilaboð sjómanna frá þeim fundum voru skýr um að samninganefndir sjómanna ættu ekki að hvika frá kröfunum um lagfæringu á olíuverðsviðmiðuninni og bætur vegna niðurfellingar sjómannaafsláttarins. Útvegsmenn töldu sig ekki geta komið til móts við sjómenn varðandi þessar kröfur og því sigldu viðræðurnar í strand. Óvissa er því um framhaldið.

 

 

Vegna umsókna úr vinnudeilusjóði

Sjómenn sem nú eru í verkfalli eiga rétt á greiðslum úr vinnudeilusjóði. Við viljum minna á hvernig hægt er að sækja um þessar greiðslur en um það má lesa hér.

Umsóknarblaðið má nálgast með því að smella á hnappinn á bleika borðanum á toppi heimasíðunnar.

Baráttuhugur meðal sjómanna á Húsavík – slitnar upp úr á morgun?

Sjómannadeild Framsýnar stóð fyrir fjölmennum fundi um stöðuna í kjaramálum sjómanna á föstudagskvöldið. Formaður félagsins, Aðalsteinn Árni Baldursson og formaður Sjómannadeildarinnar, Jakob Gunnar Hjaltalín, fóru yfir stöðuna og þau tilboð sem gengið hafa milli samningsaðila, það er Sjómannasambandsins og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi til lausnar á kjaradeilunni. Í  máli þeirra kom fram að staðan væri mjög alvarleg þar sem útgerðarmenn hafa ekki verið viljugir til að ganga að kröfum sjómanna þrátt fyrir góða afkomu greinarinnar.

Þrjú atriði hafa þokast áfram, það er kostnaðarþátttaka útgerðarinnar er varðar fæðismál, hlífðarfatnað og netkostnað sjómanna um borð í fiskiskipum. Útgerðarmenn hafa hins vegar hafnað alfarið breytingum á olíuviðmiðinu og bótum vegna afnáms  á sjómannaafslættinum. Þá hefur kröfum sjómanna um breytingar á nýsmíðaálaginu verið vísað útaf borðinu og eru þær því ekki í endanlegum tillögum sjómanna til lausnar kjaradeilunni.

Útgerðarmenn hafa lagt fram tillögur að  breytingum  á samningnum sem sjómenn taka ekki vel í enda um að ræða skerðingar á núgildandi kjarasamningi. Sérstaklega varðandi breytingar á veikinda- og slysarétti sjómanna sem og aukinni þátttöku sjómanna í slysatryggingum útgerðarinnar.

Eftir miklar og góðar umræður samþykktu sjómenn innan Framsýnar að standa fastir á þeim tveimur atriðum sem standa útaf. Leynileg atkvæðagreiðsla fór fram á fundinum.

Niðurstaðan var skýr, 100%  þeirra sem tóku afstöðu sögðust ekki sætta sig við annað en að gengið yrði að kröfum sjómanna varðandi olíuverðsmyndunina og bætur vegna afnáms  sjómannaafsláttarins kæmu til. Þá mótmæla sjómenn harðlega hugmyndum útgerðarinnar um aukna þátttöku sjómanna í slysatryggingum útgerðarinnar og að breytingar verði gerðar á veikindarétti sjómanna.  Niðurstaðan getur ekki verið skýrari, sjómenn eru tilbúnir að standa og falla með framlögðum kröfum Sjómannasambandsins.

Skoðunum sjómanna innan Sjómannadeildar Framsýnar hefur verið komið á framfæri við samninganefnd Sjómannasambands Íslands og var það gert í dag.

Á morgun, mánudag, hefur verið boðað til samningafundar í deilunni hjá Ríkissáttasemjara. Miðað við viðbrögð sjómanna á Húsavík og víða um land eru miklar líkur á því að upp úr viðræðum slitni á morgun nema útgerðarmenn komi að borðinu með samningsviljann að vopni. Því miður er ekkert sem bendir til þess í augnablikinu.

batar080002

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Deila sjómanna og útgerðarmanna harðnar með hverjum degi sem líður. Svo virðist sem útgerðarmenn bíði eftir því að sett verði lög á deiluna í boði nýrrar ríkistjórnar þrátt fyrir yfirlýsingar þeirra um annað.

 

Uppgangur hjá Rein

Starfsmaður stéttarfélaganna var á ferðinni á Húsavík á dögunum og heimsótti Trésmiðjuna Rein, en eins og flestir vita er það eitt rótgrónasta fyrirtæki svæðisins.
Mikið er um að vera hjá fyrirtækinu um þessar mundir. Fljótlega verður tekin í gagnið skemma sem byggð var á seinni hluta ársins 2016. Þar verður áhersla lögð á einingaframleiðslu en framleiðsla á þeim er í fullum gangi nú þegar. 25 starfsmenn eru að störfum hjá fyrirtækinu og útlit fyrir að þeim fjölgi á næstu dögum.
Verkefnin eru af margvíslegum toga en um þessar mundir eru nýsmíðaverkefni fyrir ferðaþjónustuaðila áberandi. Um er að ræða hús sem notuð verða sumarið 2017. Það er mikill akkur fyrir fyrirtækið að geta forunnið verkefni sem þessi innandyra, nú á þeim tíma árs þegar hefð er fyrir verkefnaskorti meðal iðnaðarmanna vegna veðurs og myrkurs.
Hér að neðan eru nokkrar myndir frá þessari ánægjulegu heimsókn.

88Meðlimir Þingiðnar voru margir á svæðinu í gær.
77Hér er í smiðum hús sem notað verður í ferðaþjónustu á komandi sumri.
66Líkast til ekki fyrsta skipti sem þessi sagar DOKA bita.
55Hápunktur heimsóknarinnar var að sjá þennan glæsilega hlaupakött sem er í nýju skemmunni. Þetta er klárlega með glæsilegri vélbúnaði á svæðinu um þessar mundir.
44330011Höfundur ásamt Ragnari Hermannssyni hjá Trésmiðjunni Rein.

Sjómenn athugið! Áríðandi fundur!

Fundur verður haldinn í Sjómannadeild Framsýnar á föstudaginn næstkomandi, 20. janúar klukkan 18:00. Meðlimir Sjómannadeildarinnar sem starfa eftir kjarasamningi Sjómannasambands Íslands og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi eru eindregið hvattir til að mæta, ræða stöðuna og næstu skref í kjaradeilu sjómanna.

Sjómannadeild Framsýnar

Framkvæmdir ganga vel

Þessa dagana er unnið að því að ganga frá 8 nýjum skrifstofum í húsnæði stéttarfélaganna á Húsavík. Framkvæmdirnar ganga vel og á þeim að vera lokið 1. mars nk. Hér má sjá iðnaðarmenn og sérhæfða verkamenn við störf fyrir helgina. Húsnæðið er um 300m2 í heildina.framsynung0117 009 framsynung0117 010