Guðrún fagnar 100 ára afmæli á aldarafmæli Vonar

Heiðurskonan Guðrún Glúmsdóttir húsfreyja á Hólum í Reykjadal varð 100 ára þann 25. apríl síðastliðinn og fagnaði þeim merka áfanga heima hjá syni sínum  og tengdadóttur á Hólum 2 í faðmi fjölskyldunnar. Guðrún fæddist í Vallakoti í Reykjadal 25. apríl fullveldisárið 1918. Eiginmaður Guðrúnar var Haraldur Jakobsson bóndi í Hólum, en hann lést árið 1996. Þau eignuðust þrjá syni og eina dóttur, sem lést barnung.

Guðrún er enn að, býr heima að Hólum ásamt tveimur sonum sínum og sinnir léttari heimilisstörfum. Hún er við ágæta heilsu, en hefur farið nokkrum sinnum í hvíldarinnlagnir á sjúkahúsið á Húsavík. Guðrún sem  ávallt hefur verið mjög félagslynd starfaði lengi í Kvenfélagi Reykdæla og söng í kórum. Hún hafði sérlega gaman af að ferðast.

Guðný Grímsdóttir nágrannakona Guðnýjar starfar í trúnaðarráði Framsýnar. Hún færði afmælisbarninu ljóðabók á dögunum fyrir hönd félagsins, en bókin hefur að geyma valin ljóð eftir baráttukonuna og skáldið Björgu Pétursdóttur sem var ein þeirra kvenna sem hafði frumkvæði að því að stofna verkakvennafélagið Von á Húsavik, en það var stofnað á fæðingarári Guðrúnar, þann 28. apríl 1918. Framsýn gefur ljóðabókina út í tilefni þeirra tímamóta.

 

Ávarp formanns Framsýnar, Aðalsteins Árna á afmælisfagnaðinum í gær

Forsætisráðherra, Katrín Jakobsdóttir og aðrir gestir, verið velkomin á þessa afmælishátíð sem haldin er til heiðurs þeim konum sem stofnuðu Verkakvennafélagið Von, 28. apríl 1918. Dagurinn markar ákveðin tímamót í sögu verkalýðsbaráttu í Þingeyjarsýslum. Þennan dag fyrir 100 árum komu 46 konur saman til að stofna verkalýðsfélag fyrir konur sem flestar áttu það sameiginlegt að vera fátækar, með litla formlega menntun og reynslulitlar til félagslegra átaka. Félagsleg staða kvenna var nokkuð önnur þá en í dag, enda mættu konur þess tíma víða skilningsleysi og hleypidómum hjá samtíðafólki sínu.  Áður höfðu karlar á Húsavík stofnað með sér verkamannafélag. Framsýn stéttarfélag ætlar að minnast þessara tímamóta með útgáfu á afmælisblaði, ljóðabók og opnun á ljósmyndasýningu af konum við störf. Það er ánægjulegt til þess að vita að þrátt fyrir miklar annir er Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra mætt til Húsavíkur til að gleðjast með okkur. Í tilefni af því mun hún flytja ávarp, ásamt varaformanni Framsýnar, Ósk Helgadóttur sem jafnframt er formaður afmælisnefndar félagsins. Þá mun ung stúlka, Klara Hrund Baldursdóttir,  flytja ljóð eftir formóður sína Björgu Pétursdóttur. Að sjálfsögðu munum við brjóta upp samkomuna með tónlistaratriðum m.a. með kvennakór, sem er vel við hæfi enda starfræktu konur innan Vonar kvennakór á sínum tíma, sem var hluti af þeirra göfuga starfi. Eins og fram hefur komið töldum við hjá Framsýn við hæfi að minnast þessara merku tímamóta með samkomu, opnun á ljósmyndasýningu og útgáfu á ljóðabók með ljóðum eftir kvenskörunginn  Björgu Pétursdóttur sem fór fyrir stofnun Verkakvennafélagsins á sínum tíma. Það gerði hún þrátt fyrir að heimilisaðstæður hennar væru þannig að þær heimtuðu hana óskipta. Hún fann þó að slíku málefni var ekki sæmandi að stinga undir stól, þörfin var brýn og markmiðið göfugt. Viðhorfið til framkvæmda var hins vegar ískyggilega fast sveipað vanavéum afturhaldsins. Það þurfti kjarkaða einstaklinga til að stíga fram á þessum tíma með það að markmiði að hvetja kynsystur sínar til að rísa upp gegn óréttlæti og misskiptingu. Virðing fyrir störfum kvenna var lítil á þessum tíma, enda kjörorðin „frelsi, jafnrétti og bræðralag“ enn bundin kjarabaráttu karla. Björg var fædd á Birningsstöðum í Laxárdal 1875, dóttir hjónanna Péturs Kristjánssonar frá  Stóru-Reykjum í Reykjahreppi  og  Friðbjargar Þorsteindóttur frá Hafralækjargerði í Nessókn. Björg fluttist ásamt foreldrum sínum 11 ára gömul til Húsavíkur og bjó þar til æfiloka. Þegar hún var 24 ára gömul giftist hún Þórði Markússyni. Snemma varð ljóst að hugur Bjargar hneigðist til kveðskapar. Ljóð hennar lýsa sterkri ættjarðarást, virðingu fyrir náttúrunni og því sem lifir. Erfið lífsreynsla markaði Björgu til lífstíðar, hún orti um látna ástvini þar sem sorgin flæðir í gegnum ljóðin. Þess má geta að Björg lifði sex af níu börnum sínum. Sorgin var fylgikona Bjargar.   fundargerðarbókum Vonar má sjá að Björg var fengin til að flytja eigin ljóð á fundum í félaginu. Ljóðum sem hefur verið safnað saman og prýða ljóðabókina „Tvennir tímar“  með tilvísun í eitt ljóða hennar. Framsýn stendur að útgáfunni ásamt afkomendum Bjargar sem söfnuðu saman ljóðum til birtingar eftir formóður sína. Samstarfið við afkomendur hefur gengið afar vel og fyrir það ber að þakka. Sérstaklega þeim Birgi Þór Þórðarsyni og Björgu Ragúels. Einnig ber að þakka starfsmönnum Ásprents á Akureyri sem sáu um setningu og prentun á bókinni fyrir þeirra framlag, sem og Jóhannesi Sigurjónssyni fyrir yfirlestur og ráðgjöf. Bókin er öll hin glæsilegasta og verður afhent hér formlega á eftir. Það er von okkar að lesendur bókarinnar eigi eftir að virða þetta sameiginlega framtak Framsýnar og afkomenda Bjargar Pétursdóttur og njóti kveðskapar þeirrar framsýnu konu sem markaði brautina í réttindabaráttu kvenna í héraðinu á erfiðum tímum. Ég skal fúslega viðurkenna að eftir að hafa kynnt mér sögu þessarar merkilegu konu er ég þeirrar skoðunar að hún sé með merkilegri konum, ef ekki sú merkilegasta sem hér hefur búið. Hún átti sér draum og steig fram líkt og Martin Luther King Jr. sem barðist fyrir réttindum blökkumanna. Draumur Bjargar miðaðist við að gera samfélag kvenna sterkara og sanngjarnara til jafns við stöðu karlmanna. Hún var hugsjónamanneskja líkt og Martin Luther King Jr, um það verður ekki deilt og verðskuldar að hennar sé minnst með viðeigandi hætti. Þegar samið var um lífeyrissjóðakerfið um 1970 þótti við hæfi að skýra lífeyrissjóð verkafólks í Þingeyjarsýslum í höfuðið á Björgu, það er Lsj, Björg. Þá hefur verið ákveðið að nefna nýjan fundarsal í húsi stéttarfélaganna á efri hæð Garðarsbrautar 26 í höfuðið á heimili Bjargar, en hún bjó um tíma í Þröskuldi á Húsavík. Afmælisnefnd Framsýnar sem skipuð er þeim Ósk Helgadóttur, Dómhildi Antonsdóttur og Sigurveigu Arnardóttur hafa ekki „bara“ komið að því að gefa út ljóðabók heldur hefur nefndin átt gott samstarf við starfsmenn Safnahússins á Húsavík, þau Sif Jóhannesdóttir og Snorra G. Sigurðsson um að taka saman gamlar ljósmyndir úr eigu  Ljósmyndasafns Þingeyinga af konum við störf á starfstíma verkakvennafélagsins. Hinn eini sanni, Pétur Jónasson ljósmyndari á Húsavík, var fenginn til að vinna myndirnar sem sjá má hér á veggjum til hliðar ásamt ljósmyndum að formönnum Vonar á starfstíma félagsins. Myndirnar verða til sýnis hér í safnahúsinu næstu vikurnar áður en þeim verður komið endanlega fyrir í fundarsal stéttarfélaganna að Garðarsbraut 26, efri hæð. Myndunum er ætlað segja sögu af starfsháttum og aðbúnaði verkakvenna fram yfir miðja 20. öld og falla flestar innan þess tíma er félagið starfaði. Smá texti er meðfylgjandi myndunum, það er hverjir eru á þeim eftir því sem best er vitað og áhugaverðar tilvitnanir úr sögu félagsins. Á gleðistundum sem þessum ber að þakka fyrir vel unnin störf. Sif, Snorri, Pétur og Ósk Helgadóttir hafið kærar þakkir fyrir ykkar framlag til verksins, það er að koma upp þessari ljósmyndasýningu sem mikill sómi er af. Það er ómetanlegt að hafa aðgengi að fólki eins og ykkur og gerir alla svona vinnu bæði áhugaverða og skemmtilega. Egill Páll Egilsson sem þessa dagana  er að leggja lokahönd á afmælisblað sem tileinkað verður þessum tímamótum fær einnig kærar þakkir fyrir samstarfið þrátt fyrir að hafa ekki formlega lokið verkefninu. Blaðið kemur út í næsta mánuði. Að lokum vil ég svo þakka stjórn og trúnaðarráði Framsýnar fyrir ákvörðunina um að ráðast í þessi verkefni, það er að gefa út afmælisblað, ljóðabók og prentun á völdum ljósmyndum frá starfstíma Verkakvennafélagsins Vonar. Hafið kærar þakkir fyrir sem og afmælisnefnd félagsins sem er að skila góðu verki af sér hér í dag. Takk fyrir.

 

 

 

100 ára afmælishátíð Verkakvennafélagsins Vonar

Þennan dag, 28. apríl árið 1918 var Verkakvennafélagið Von stofnað á Húsavík og er því orðið 100 ára. Framsýn, stéttarfélag stóð af þessu tilefni fyrir glæsilegum afmælisfagnaði í dag í Menningarmiðstöð Þingeyinga klukkan 14:00.

Aðalsteinn Á. Baldursson, formaður Framsýnar opnaði hátíðina með stuttu ávarpi og stýrði síðan dagskránni eins og honum einum er lagið.

Ósk Helgadóttir varaformaður Framsýnar, flutti magnað ávarp þar sem hún fór yfir aðdragandann að stofnun Vonar og rakti sögu félagsins. Björg Pétursdóttir var ein af stofnendum Vonar og það var því vel til fundið að í dag kom út bók með ljóðum eftir hana. Sérstakur gestur hátíðarinnar, Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra fékk afhent fyrsta eintakið og flutti hún stutt ávarp við það tækifæri.

Langa langa langömmubarn Bjargar, hún Klara Hrund Baldursdóttir steig í pontu og flutti ljóð eftir formóður sína af miklu listfengi. Afi Klöru, Birgir Þór Þórðarsson ávarpaði samkomuna fyrir hönd afkomenda Bjargar sem stóðu að útgáfu bókarinnar.

Kvennakór Húsavíkur undir stjórn Hólmfríðar Benediktssdóttur bauð upp á tónlistaratriði við undirleik Steinunnar Halldórsdóttur. Hjónakornin Lára Sóley Jóhannsdóttir og Hjalti Jónsson luku dagskránni með nokkrum hressandi lögum. Að dagskrá lokinni var opnuð ljósmyndasýning með myndum af konum við störf á tímum Verkakvennafélagsins Vonar. Og að sjálfsögðu var boðið upp á kaffi og með því.

Framsýn notaði tilefnið til að gefa nokkrar góðar gjafir eins og venja er í afmælum. Stéttarfélagið færði Kvennfélagasambandi S-Þingeyinga 150 eintök af ljóðabók Bjargar og afkomendum hennar fengur 100 eintök að gjöf. Þá gaf Framsýn, Menningarmiðstöð Þingeyinga hljóðkerfi að verðmæti 200 þúsund og nokkur eintök af bókinni fyrir bókasöfnin í sýslunni. Það var Sif Jóhannesdóttir, forstöðumaður Menningarmiðstöðvarinnar sem veitti gjöfinni viðtöku.

Þá gafst gestum sem voru á á þriðja hundrað einng færi á því að eignast bók en fólk hafði fólk orð á því að vel hafi tekist til og þessum tímamótum hafi verið minnst á fallegan og viðeigandi hátt. /epe

Framsýn gefur umsögn um frumvarp

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um réttindi og skyldur erlendra fyrirtækja sem senda tímabundið starfsmenn til Íslands liggur fyrir Alþingi þessa dagana. Eins og gefur að skilja hefur þessi hópur verið mikið í kastljósinu hér á starfssvæðinu undanfarið vegna framkvæmda við stóriðju og orkuver.

Framsýn var beðið að senda umsögn um frumvarpið. Í henni er heilshugar tekið undir umsögn ASÍ sem áður hafði komið fram og sagt að framvarpið gangi of skammt þar sem lögin eigi einungis við um byggingastarfsemi en þyrftu að eiga við fleiri svið, til dæmis ferðaþjónustu, kjötvinnslu og akstur hópferðabifreiða.

Landinn fjallar um útgáfu á ljóðabók

Í sjónvarpsþættinum Landanum á RÚV næsta sunnudag verður fjallað um útgáfu Framsýnar á ljóðabók með ljóðum Bjargar Pétursdóttur. Formlegur útgáfudagur á bókinni er á morgun, laugardaginn 28. apríl 2018. Án efa verður innslagið frá Húsavík áhugavert og hér með er skorað á áhugasama að setjast fyrir framan sjónvarpið á sunnudaginn og fylgjast með einum vinsælasta sjónvarpsþætti landsins.

Launahækkanir á árinu 2018

Starfsfólk á almennum vinnumarkaði:
Þann 1. maí hækka laun og launatengdir liðir um 3%.
Lágmarkslaun fyrir fullt starf, 18 ára og eldri eftir 6 mánaða starf skal vera 300.000 frá 1. maí 2018.
Starfsmenn fá 48.000 kr. í orlofsuppbót 1. júní, miðað við fullt starf.
Mótframlag atvinnurekenda í lífeyrissjóð hækkar í 11,5% 1. júlí 2018.
Starfsmenn fá 89.000 kr. í desemberuppbót ekki síðar en 15. desember, miðað við fullt starf.
Starfsfólk sveitarfélaga:
Þann 1. júní hækka laun um 2%.
Lágmarkslaun fyrir fullt starf, 18 ára og eldri eftir 4 mánaða starf skal vera 300.000 frá 1. júní 2018.
Starfsmenn fá 48.000 kr. í orlofsuppbót 1. maí, miðað við fullt starf.
Starfsmenn fá 113.000 kr. í desemberuppbót þann 1. desember, miðað við fullt starf.
Starfsfólk ríkisins:
Þann 1. júní hækka laun um 3%.
Lágmarkslaun fyrir fullt starf, 18 ára og eldri eftir 4 mánaða starf skal vera 300.000 frá 1. júní 2018.
Starfsmenn fá 48.000 kr. í orlofsuppbót 1. júní, miðað við fullt starf.
Starfsmenn fá 89.000 kr. í desemberuppbót þann 1. desember, miðað við fullt starf.

Stóra barnavagnsmálið!

Mikið hefur gengið á í salarkynnum skrifstofunnar að undanförnu. Helst ber að nefna að pólitísk framboð hafa fengið hér inni til að stilla upp og samþykkja sína lista.

Eitthvað hefur gengið á þegar eitt framboðið samþykkti sinn lista þar sem barnavagn gleymdist hér á ganginum og hefur ekki verið sóttur enn!

Starfsfólk skrifstofunnar er ekki kunnugt um hver á barnavagninn og auglýsir hér með eftir eigandanum. Mynd af viðkomandi barnavagn er hér að ofan.

Tekið er fram að vagninn er barnlaus.

Veisla 1. maí 2018 -nú verður stuð í höllinni-

Að venju standa stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum fyrir veglegri hátíðardagskrá í íþróttahöllinni á Húsavík 1. maí. Dagskráin hefst kl. 14:00 og verður fjölbreytt.

Dagskrá:

Ávarp:
Ósk Helgadóttir varaformaður Framsýnar

Hátíðarræða:
Aðalsteinn Á. Baldursson formaður Framsýnar

Maístjarnan:
Söngvari: Reynir Gunnarsson
Undirleikari Steinunn Halldórsdóttir

Söngur:
Karlakórinn Hreimur
Stjórnandi Steinþór Þráinsson
Undirleikari Steinunn Halldórsdóttir

Grín:
Gísli Einarsson fjölmiðlamaður

Söngur og grín:
Sigga  Beinteins, Guðrún Gunnars og Jógvan Hansen hafa undanfarin ár sungið sig inn í hjörtu landsmanna með skemmtilegri söngdagskrá sem þau kalla „Við eigum samleið“. Skemmst er frá því að segja að uppselt hefur verið á alla tónleika þeirra í Salnum í Kópavogi sl. 4 ár. Þau segja líka skemmtilegar sögur sem tengjast lögunum og gera óspart grín að hvort öðru.

Gestum verður boðið upp á hefðbundnar veitingar, meðan á hátíðinni stendur.

Þingeyingar og landsmenn allir, fjölmennum í höllina og drögum fána að hún á hátíðar- og baráttudegi verkafólks 1. maí 2018.

Framsýn stéttarfélag – Starfsmannafélag Húsavíkur – Þingiðn félag iðnaðarmanna

Hækkun atvinnuleysisbóta

Ríkisstjórnin hefur fallist á kröfur Alþýðusambands Íslands um hækkun atvinnuleysisbóta. Grunnbætur munu hækka 1. maí nk. úr 227.417 kr. í 270.000 kr. á mánuði sem eru 90% af dagvinnutekjutryggingu. Hámarksfjárhæð tekjutengdra bóta hækkar úr 358.516 kr. í 425.647 kr. Loks hækka greiðslur vegna barna yngri en 18 ára úr 9.096 á mánuði fyrir hvert barn í 10.800 eða sem nemur 4% af fullum grunnbótum.

Getum við lækkað vextina? Ari Teitsson og Helgi Héðinsson tjá sig um málið

Þung umræða um háa vexti hefur verið viðvarandi hérlendis  alla þessa öld. Sú umræða hefur fengið aukið vægi nú þegar  vaxtakostnaður heimila ógnar mögulegu Salek samkomulagi og gæti ásamt fleiru valdið erfiðleikum í þjóðfélaginu sem brýnt er að komast hjá.

Verðbólga, rekstrarárangur fjámálafyrirtækja og starfsumhverfi þeirra veldur mestu um vaxtastig.

Ekki verður hér fjallað um fyrri þættina tvo en bent á hnökra í starfsumhverfi sem valda viðskiptavinum fjármálafyrirtækja meiri vaxtakostnaði en þörf er á.

Fjármálafyrirtæki greiða 3,3 milljarða á ári í Tryggingarsjóð innstæðueigenda og fjárfesta. Framtíðarstarfsemi sjóðsins mun byggja á sameiginlegum evrópureglum sem lögfestar verða hér innan tveggja ára. Samanburður við stöðu tryggingarsjóða evrópuríkja er því raunhæfur og leiðir í ljós að íslenski sjóðurinn er hlutfallslega fjórum sinnum stærri en meðaltal 30 evrópuríkja og iðgjaldið er ferfalt. Raunar þyrfti ekki að greiða í sjóðinn næstu ár og lækka mætti vexti á móti.

Kostnaður við upplýsingatækni fjármálafyrirtækja er hér mun hærri en í samanburðarlöndum. Þar veldur smæð eininga en einnig að samstarf um upplýsingatækni, sem augljóslega er hagkvæmt og raunar nauðsyn, er mjög torveldað af þröngum reglum Samkeppniseftirlits. Hér mætti spara milljarða með skynsamlegu samstarfi.

Eiginfjárkröfur íslenskra fjármálafyrirtækja byggja á evrópureglum, en eru hér útfærðar með öðrum og strangari hætti en í flestum Evrópuríkjum. Þannig þurfa íslensk fjármálafyrirtæki að  eiga eigið fé sem nemur minnst 15% af efnahag meðan sænskum bönkum sem starfa undir sama regluverki duga 5%. Þessar háu eiginfjárkröfur valda verulegum kostnaði.

Rekstrarkostnaður Fjármálaeftirlitsins sem greiddur er af fjármálafyrirtækjum hefur meir en tvöfaldast á undanförnum 8 árum og nemur nú 1,5 milljörðum. Verra er þó að breyttar áherslur og verulega auknar kröfur um skýrslugerð og gagnaskil frá fjármálafyrirtækjum  valda fyrirtækjunum ómældum kostnaði. Hér gildir enginn Salek samanburður um hógværð og jöfnuð milli landa.

Kostnaður við Umboðsmann skuldara nam á árinu 2017 um 700 milljónum, sá kostnaður er greiddur af  fjármálafyrirtækjum þó viðfangsefni embættisins séu nú að meirihluta tengd vafasamri smálánastarfsemi sem á lítið skylt við bankarekstur og greiðir ekki áfallinn kostnað.

Sérstakir skattar á fjármálafyrirtæki námu á árinu 2017 um 11,7 milljörðum. Þær álögur styrkja ríkissjóð, en hafa um leið óhjákvæmilega áhrif á vaxtastig.

Svo sem fram kemur hér að framan eru háir vextir hérlendis að hluta sjálfskaparvíti sem gæti átt þátt í erfiðleikum komandi mánaða. Ætla má að með sameiginlegu átaki mætti lækka vexti um eitt prósentustig (100 punkta) og fara þá íslenskir vextir að nálgast vexti í okkar samanburðarlöndum að teknu tilliti til verðbólgu. Breytingar í þá veru eru sannarlega mögulegar. Þær koma að hluta niður á ríkissjóði en eru þó að mestu spurning um skynsamleg vinnubrögð og að við sníðum okkur, ekki bara sum heldur öll, stakk eftir vexti.

Höfundar starfa í stjórn Sparisjóðs Suður-Þingeyinga

 

Framsýn hástökkvari SGS- félagsmönnum fjölgaði um 27,5%

Starfsgreinasamband Íslands tekur oft saman áhugaverðar upplýsingar um starfsemi aðildarfélaga sambandsins, þar á meðal Framsýnar.  Nýverið gerði sambandið athugun á kynjahlutföllum í aðildarfélögunum. Í gegnum tíðina hefur kynjahlutfallið hjá Framsýn nánast verið 50/50 karlar, konur. Nú ber svo við að þessi athugun leiðir í ljós að körlum hafi fjölgað verulega umfram konur í Framsýn. Hlutfallið er komið í að vera 38% konur og 62% karlar. Að sjálfsögðu eru skýringar á þessu. Framkvæmdirnar á svæðinu við uppbygginguna á Bakka, Þeistareykjum, við hótelbyggingar og Vaðlaheiðargöng hafa kallað á aukna atvinnuþáttöku karla. Væntanlega mun þetta jafnast töluvert á næsta ári þegar uppbyggingin hvað varðar þessi verkefni klárast að fullu.

Annað sem er jafnframt áhugavert í samantektinni er að félagsmönnum Framsýnar fjölgaði um 27,5% milli ára sem er met innan Starfsgreinasambands Íslands. Dæmi eru um að félagsmönnum aðildarfélaganna hafi fækkað milli ára. Samtals eru um 57.000 félagsmenn innan sambandsins og fjölgaði um 11% milli ára. Þannig að eins og oft áður er Framsýn hástökkvari stéttarfélaga innan SGS.

 

Framsýn hefur undirbúning við mótun kröfugerðar- vill sjá harðari baráttu og Flóinn verði samferða öðrum aðildarfélögum SGS í kjarabaráttunni

Framsýn stéttarfélag samþykkti á fundi sínum í gær með stjórn, trúnaðarráði og samninganefnd félagsins að hefja formlegan undirbúning að mótun kröfugerðar vegna komandi kjaraviðræðna við Samtök atvinnulífsins. Í því sambandi horfir félagið til tillagna Starfsgreinasambands Íslands varðandi undirbúninginn. Þar kemur fram að aðildarfélögin skili inn skýrslu til sambandsins um hvernig undirbúningi að kröfugerð verði háttað innan félaganna, það er í síðasta lagi fyrir 10. maí 2018.

Fundarmenn voru sammála um að gamla fundaformið væri ekki að skila tilætluðum árangri til að kalla fram skoðanir félagsmanna, þess í stað var ákveðið að ráðast í vinnustaðaheimsóknir um miðjan maí sem ætlað er að standa í nokkrar vikur enda nær félagssvæði Framsýnar yfir um 18% af landinu. Samhliða verði kallað eftir viðhorfum trúnaðarmanna á vinnustöðum sem eru í góðu sambandi við samstarfsmenn sína. Framsýn hefur byggt upp öflugt trúnaðarmannanet með frábæru fólki sem ætlað er töluvert hlutverk í mótun kröfugerðar félagsins. Þá verður einnig auglýst eftir kröfum félagsmanna með það að markmiði að þeir skili þeim á skrifstofu Framsýnar á Húsavík.

Þegar þessari vinnu lýkur verði boðað til félagsfundar þar sem afraksturinn eftir vinnustaðaheimsóknirnar og samtöl við trúnaðarmenn verða kynnt og tekin til afgreiðslu. Tímasetning þessa fundar eða funda liggja ekki fyrir endanlega en verða væntanlega haldnir í byrjun september.

Framsýn horfir til þess í ljósi stöðunnar, þar sem ekki náðist samstaða um að segja upp kjarasamningum í febrúar, að aðildarfélög Starfsgreinasambandsins standi við stóru orðinn. Sérstaklega þau félög sem lögðust gegn uppsögn samninga og tala nú fyrir öflugri kjarabaráttu í komandi kjaraviðræðum.

Í því sambandi hefur Framsýn lagt áherslu á að öll félög innan Starfsgreinasambandsins leggi fram sameiginlega kröfugerð, það er að stéttarfélög innan Flóabandalagsins sameinist öðrum félögum innan sambandsins.  Að mati Framsýnar samræmist það ekki hagsmunum félagsmanna aðildarfélaga Starfsgreinasambands Íslands að samningaviðræðurnar fari fram í tveimur herbergjum í Karphúsinu. Sú tíð er vonandi liðin og engum til bóta með nýju fólki hjá Eflingu.

Gangi þetta ekki eftir mun Framsýn endurskoða sýna afstöðu og ákveða með framhaldið með þeim stéttarfélögum sem velja leið Framsýnar stéttarfélags, það er að leiðrétta kjör þeirra sem búa við kjör og réttindi sem ekki eru boðleg íslensku verkafólki. Komi til þess að sækja þurfi þessar kröfur með aðgerðum ber að gera það að fullri hörku að mati stjórnar, trúnaðarráðs og samninganefndar Framsýnar stéttarfélags sem samþykkti samhljóða þessa áætlun á fundi sínum á þriðjudaginn.

Tillaga um félagsmenn í trúnaðarstöður

Kjörnefnd Þingiðnar gerir tillögur um eftirfarandi félagsmenn í trúnaðarstöður fyrir félagið starfsárin 2018 til 2020.

Aðalstjórn (jafnframt stjórn sjúkra-, orlofs- og vinnudeilusjóðs)

Jónas Kristjánsson                  Formaður                    Bílaleiga Húsavíkur ehf.

Vigfús Leifsson                        Varaformaður             Norðurvík ehf.

Kristinn Gunnlaugsson            Ritari                           Trésmiðjan Rein ehf.

Þórður Aðalsteinsson             Gjaldkeri                     Trésmiðjan Rein ehf.

Hólmgeir Rúnar Hreinsson     Meðstjórnandi            Trésmiðjan Rein ehf.

 

Varastjórn:                               Vinnustaður:

Gunnólfur Sveinsson              Bílaleiga Húsavíkur ehf.

Gunnar Sigurðsson                 Eimskip

Daníel Jónsson                       Curio ehf.

Atli Jespersen                         Sögin ehf.

 

Trúnaðarmannaráð:

Sigurjón Sigurðsson                Norðurvík ehf

Kristján G. Þorsteinsson          Bílaleiga Húsavíkur ehf.

Andri Rúnarsson                     Fjallasýn ehf.

Kristinn Jóhann Lund              Curio ehf.

Sigurður Helgi Ólafsson         G.P.G-Fiskverkun ehf.

Bjarni Björgvinsson                Norðurvík ehf.

 

Varatrúnaðarmannaráð:

Sigurður Hlynur Snæbjörnsson           Norðurpóll ehf.

Kristján Gíslason                                Norðlenska ehf.

Erlingur S. Bergvinsson                      Bifreiðaskoðun Íslands ehf.

Bjarni Gunnarsson                              Bílaleiga Húsavíkur ehf.

 

Skoðunarmenn ársreikninga:                              Kjörstjórn:

Jón Friðrik Einarsson                                              Andri Rúnarsson

Arnþór Haukur Birgisson                                       Vigfús Þór Leifsson

Varamaður:                                                             Varamenn:

Steingrímur Hallur Lund                                        Þorvaldur Ingi Björnsson

Kristján Gíslason

 

Kjörnefnd:                                                               1. maí nefnd

Davíð Þórólfsson                                                    Jónas Kristjánsson

Gunnólfur Sveinsson

Kristján Gíslason

 

Löggiltur endurskoðandi:

PricewaterhouseCoopers ehf.

Hverjum fullgildum félaga er heimilt að koma með breytingartillögur um félagsmenn í einstakar trúnaðarstöður eða koma fram með nýja heildartillögu um skipan í trúnaðarstöður næsta starfsár. Breytingartillögu skal fylgja skrifleg heimild frá þeim, sem stungið er upp á og meðmæli a.m.k. 10% fullgildra félagsmanna. Nýjum heildartillögum þurfa að fylgja skrifleg meðmæli a.m.k. 20% félagsmanna.

Skila þarf inn nýjum tillögum til Skrifstofu stéttarfélaganna á Húsavík fyrir kl. 16:00, mánudaginn 7. maí 2018. Þar er einnig hægt að fá nánari upplýsingar um fyrirkomulagið komi til þess að fleiri aðilar bjóði sig fram til starfa fyrir Þingiðn.

Húsavík 18. apríl 2018

Kjörstjórn Þingiðnar

 

 

 

 

Aðalfundur Þorrasala – húsfélagið í góðum gír

Aðalfundur húsfélags Þorrasala 1-3 var haldinn síðasta fimmtudag. Framsýn og Þingiðn eiga fjórar íbúðir í fjölbýlishúsinu. Fulltrúar frá félögunum voru til staðar á fundinum. Eins og lög gera ráð fyrir var farið yfir starfsemi húsfélagsins á síðasta starfsári og ársreikninga félagsins. Starfið og rekstur húsfélagsins var til mikillar fyrirmyndar á umliðnu starfsári. Formaður Framsýnar, Aðalsteinn Árni Baldursson, var endurkjörinn formaður húsfélagsins. Áhugi er innan Framsýnar og Þingiðnar að kaupa fleiri íbúðir í Þorrasölum enda mikil eftirspurn meðal félagsmanna eftir dvöl í íbúðunum.

Katrín Jakobsdóttir gestur á afmælishátíð

Í tilefni af 100 ára afmæli Verkakvennafélagsins Vonar 28. apríl 2018 stendur Framsýn fyrir afmælisfagnaði í Menningarmiðstöð Þingeyinga laugardaginn 28. apríl kl. 14:00. Sérstakur gestur fundarins verður Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Eftir að ávörp hafa verið flutt verður opnuð ljósmyndasýning af konum við störf á tímum verkakvennafélagsins. Þá verða tónlistaratriði í boði, Kvennakór Húsavíkur kemur fram undir stjórn Hólmfríðar Benediktsdóttur, við undirleik Steinunnar Halldórsdóttur. Þá verða Lára Sóley Jóhannsdóttir og Hjalti Jónsson á svæðinu og taka nokkur lög. Auk þess verður lesið upp úr ljóðabók með ljóðum eftir Björgu Pétursdóttur, sem kemur út þennan dag. Bókin er gefin út í samstarfi við afkomendur Bjargar, en hún var ein af frumkvöðlunum að stofnun Verkakvennafélagsins Vonar. Þeir sem hafa skráð sig fyrir bókinni fá hana afhenta á afmælishátíðinni og þeir aðrir sem mæta og vilja eignast þessa einstöku bók. Boðið verður upp á kaffi og meðlæti meðan á dagskránni stendur.
Við viljum hvetja konur sem búa svo vel að eiga íslenska búninginn til að klæðast honum í tilefni dagsins og heiðra með því minningu forvígiskvenna þingeyskrar verkalýðsbaráttu.

Stjórn og trúnaðarráð Framsýnar fundar í dag

Stjórn og trúnaðarráð kemur saman til fundar síðar í dag. Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

  1. Fundargerð síðasta fundar
  2. Inntaka nýrra félaga
  3. Kjaramál
  4. Aðalfundur Sparisjóðs Suður- Þingeyinga
  5. Ársfundur Ljs. Stapa
  6. Þakviðgerðir
  7. Afmælishátíð Vonar
  8. Hátíðarhöldin 1. maí
  9. Orlofsvefur stéttarfélaganna
  10. Eftirlitsfulltrúi stéttarfélaganna
  11. Vinnufundur bílstjóra innan SGS
  12. Póllandsferð
  13. Önnur mál

Funduðu með forsætisráðherra

Formenn  Framsýnar, Verkalýðsfélags Akraness og VR ásamt verðandi formanni Eflingar funduðu með forsætisráðherra, Katrínu Jakobsdóttur í Stjórnarráðinu fyrir helgina, það er eftir fund þessara aðila og fram kom í frétt á heimasíðu stéttarfélaganna á föstudagin. Á fundinum gafst fulltrúunum tækifæri á að skiptast á skoðunum við ráðherra varðandi helstu áherslur þessara aðila í komandi kjaraviðræðum við atvinnurekendur og aðkomu stjórnvalda að ýmsum málum sem liðkað gætu fyrir lausn mála.

Ragnar Þór, Aðalsteinn Árni, Sólveig Anna, Vilhjálmur og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra áttu ánægjulega stund saman í Stjórnarráðinu fyrir helgina.