Munið að skila inn kvittunum fyrir árið 2026

Félagsmenn sem ætla að sækja um endurgreiður frá stéttarfélögunum úr sjúkra- og starfsmenntasjóðum stéttarfélaganna eru beðnir um að skila inn kvittunum fyrir kostnaði fyrir áramótin. Þannig tryggja þeir sér endurgreiðslur þar sem sumar endurgreiðslur miðast við viðkomandi almanaksár s.s. hvað varðar kostnað vegna námskeiða, sálfræðikostnaðar og heilsueflingar svo eitthvað sé nefnt. Munið, það er öruggast að skila inn kvittununum fyrir áramót, kæru félagsmenn.  

Deila á