Aðalsteinn de Rauðatorg svarar enn Helga von Grafarbakka í síðasta Skapi. Góð lesning um helgina, annars góða helgi félagsmenn og aðrir landsmenn. Read more „Þrumuskotin klikkuðu ekki hjá Óla“
Skora á borgaryfirvöld að tryggja framtíð Reykjavíkurflugvallar
Framsýn- stéttarfélag hefur samþykkt að senda frá sér svohljóðandi ályktun um Reykjavíkurflugvöll en miklar umræður hafa verið undanfarið varðandi framtíð flugvallarins. Verði flugvöllurinn lagður niður mun það hafa verulega slæm áhrif á alla þá sem þurfa að komast til og frá borginni við Faxaflóann. Read more „Skora á borgaryfirvöld að tryggja framtíð Reykjavíkurflugvallar“
Kynningarfundur á samstarfinu um íslenska jarðvarmaklasann
Fimmtudaginn 16. febrúar frá kl. 17:00 til 18.30 verður haldinn almennur kynningarfundur á klasasamstarfi um íslenska jarðvarmann, Iceland Geothermal, í húsnæði stéttarfélaganna að Garðarsbraut 26, Húsavík. Framsýn og ráðgjafafyrirtækið Gekon standa að fundinum. Allir eru velkomnir. Read more „Kynningarfundur á samstarfinu um íslenska jarðvarmaklasann“
Vilja að Vinnumálastofnun auki þjónustu sína á svæðinu
Framsýn hefur farið þess á leit við Vinnumálastofnun að hún efli þjónustu við atvinnuleitendur í Þingeyjarsýslum. Um 150 manns voru á atvinnuleysisskrá um síðustu áramót á félagssvæði stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum. Vinnumálastofnun hefur verið með þjónustuskrifstofu fyrir atvinnuleitendur á Húsavík með tengingu við skrifstofu stofnunarinnar á Akureyri. Read more „Vilja að Vinnumálastofnun auki þjónustu sína á svæðinu“
Óánægja vegna hækkunar á fasteignagjöldum
Ljóst er að margir íbúar í Norðurþingi eru verulega óánægðir með umtalsverðar hækkanir á fasteignagjöldum á árinu 2012. Samkvæmt upplýsingum frá Norðurþingi hækkaði álagningarprósentan hjá sveitarfélaginu ekki milli ára. Fjölmargir hafa sett sig í samband við Skrifstofu stéttarfélaganna og óskað eftir að félögin skoðuðu málið þar sem full þörf væri á því að gera alvarlegar athugasemdir við hækkanirnar. Read more „Óánægja vegna hækkunar á fasteignagjöldum“
Tillaga kjörnefndar samþykkt samhljóða
Kjörnefnd Framsýnar lagði fram tillögu um fulltrúa í stjórn, ráð og nefndir á vegum félagsins fyrir starfsárin 2012-2014 á fundi Framsýnar í gær. Formaður nefndarinnar, Ágúst S. Óskarsson gerði grein fyrir tillögunni. Í máli hans kom fram að mikill áhugi væri fyrir því að starfa fyrir félagið. Read more „Tillaga kjörnefndar samþykkt samhljóða“
Gróft ofmat á tapi lífeyrissjóðanna
Þriggja manna nefnd, sem gerði úttekt á fjárfestingarstefnu, ákvörðunum og lagalegu umhverfi lífeyrissjóða í aðdraganda efnahagshrunsins á Íslandi í október 2008, lauk starfi sínu sl. föstudag. Skýrsla í fjórum bindum var lögð fram á fréttamannafundi í Reykjavík. Read more „Gróft ofmat á tapi lífeyrissjóðanna“
Samþykkt að kaupa íbúðir í Kópavogi
Stjórnir Þingiðnar og Framsýnar samþykku samhljóða á fundum sínum í gær að fjárfesta í fjórum nýjum íbúðum í Kópavogi fyrir félagsmenn. Mun hagstæðara er að kaupa nýjar íbúðir í Kópavogi en í Reykjavík. Framsýn kaupir þrjár íbúðir og Þingiðn eina. Fyrir eiga félögin fjórar íbúðir sem verða seldar. Nýju íbúðirnar sem eru í byggingu í Þorrasölum 1 til 3 í Kópavogi verða klárar í sumar. Read more „Samþykkt að kaupa íbúðir í Kópavogi“
Fólk vantar til starfa á Raufarhöfn
Lífeyrissjóðsmál- boðað verði til fundar þegar í stað
Miklar umræður urðu á fundi stjórnar og trúnaðarmannaráðs Framsýnar um skýrslu þriggja manna nefndar sem gerði úttekt á fjárfestingarstefnu, ákvörðunum og lagalegu umhverfi lífeyrissjóða í aðdraganda efnahagshrunsins á Íslandi í október 2008.
Read more „Lífeyrissjóðsmál- boðað verði til fundar þegar í stað“
Fagna flugi til Húsavíkur
Stjórn og trúnaðarmannaráð Framsýnar samþykkti á fundi sínum í kvöld að senda frá sér ályktun varðandi flugsamgöngur við Húsavík en Flugfélagið Ernir hefur ákveðið að hefja áætlunarflug til Húsavíkur í vor. Ályktunin er svohljóðandi: Read more „Fagna flugi til Húsavíkur“
Mörg stórmál á dagskrá í kvöld
Stjórn og trúnaðarmannaráð Framsýnar kom saman til fundar í kvöld. Nokkur stórmál voru til umræðu s.s. skýrsla nefndar um starfsemi lífeyrissjóða, íbúðakaup í Kópavogi, kjarasamningsbundnar launahækkanir, hækkun fasteignagjalda, Vaðlaheiðagöng, mikilvægi Reykjavíkurflugvallar og flugsamgöngur við Húsavík. Tillaga kjörnefndar um menn í trúnaðarstöður fyrir félagið starfsárin 2012-2014 var samþykkt samhljóða. Read more „Mörg stórmál á dagskrá í kvöld“
Úttektarskýrslan komin út
Landssamtök lífeyrissjóða samþykkti í júní 2010 að fela Magnúsi Péturssyni ríkissáttasemjara að skipa þriggja manna nefnda óháðra sérfræðinga til að fjalla um fjárfestingastefnu, ákvarðanir og lagaumhverfi lífeyrissjóða fyrir bankahrunið. Úttektarnefndin hefur nú skilað 4 binda skýrslu. Í skýrslunni er að finna yfirlit um starfsemi og tap lífeyrissjóðanna á árunum 2006-2009 (fyrir og eftir bankahrunið). Read more „Úttektarskýrslan komin út“
Laun hækkuðu almennt 1. febrúar
Þann 1. febrúar hækkuðu launataxtar Verkalýðsfélags Þórshafnar og Framsýnar almennt um kr.11.000. Þá hækkuðu laun þeirra sem ekki fá laun samkvæmt útgefnum launatöxtum um 3,5% að lágmarki. Read more „Laun hækkuðu almennt 1. febrúar“
Starfsmenn sveitarfélaga – eingreiðsla upp á 25.000 kr.
Félagsmenn Framsýnar og Verkalýðsfélags Þórshafnar sem vinna hjá sveitarfélögum og stofnunum þeirra s.s. Hvammi, heimili aldraðra í Þingeyjarsýslum áttu að fá greidda sérstaka eingreiðslu 1. febrúar 2012 upp á 25.000 kr. fyrir fullt starf. Starfsmenn í hlutastarfi fá greitt hlutfallslega miðað við starfshlutfall 1. febrúar 2012. Read more „Starfsmenn sveitarfélaga – eingreiðsla upp á 25.000 kr.“
Farið yfir málin
Jóna Matthíasdóttir formaður Deildar verslunar- og skrifstofufólks innan Framsýnar var í heimsókn í morgun. Hún fundaði með formanni félagsins Aðalsteini Árna og Jónínu sem er stjórnarmaður í deildinni. Stjórn deildarinnar hefur verið boðuð til fyrsta fundar eftir aðalfund næsta fimmtudag. Á fundinum mun stjórnin skipta með sér verkum og fara yfir starfið næstu mánuði.
VÞ styrkir tækjakaup
Á dögunum færði Verkalýðsfélag Þórshafnar heilbrigðisstofnuninni á Þórshöfn myndarlega gjöf frá sjúkrasjóði félagsins. Um var að ræða gjafabréf kr. 500.000,- sem ætlað er til tækjakaupa en stofnunin festi nýlega kaup á röntgenmyndatæki og búnaði. Read more „VÞ styrkir tækjakaup“
Heimasíðan vinsæl – menn vilja gerast áskrifendur
Heimasíða stéttarfélaganna er mikilvægur þáttur í starfi stéttarfélaganna enda ætlað að miðla upplýsingum og fréttum úr starfi félaganna til félagsmanna og annarra sem vilja fylgjast með öflugu starfi stéttarfélaganna. Töluvert er um að menn hafi óskað eftir að gerast áskrifendur af síðunni en fram að þessu hefur það ekki verið hægt. Nú hefur hins vegar verið ákveðið að verða við þessum tilmælum og því verður vonandi fljótlega hægt að verða við þessum óskum. Gangi þetta eftir munu fréttir á heimasíðu stéttarfélaganna birtast um leið á heimasíðum áskrifenda en fjöldi fólks fer daglega inn á síðuna.
Nýr formaður til starfa
Aðalfundur Deildar skrifstofu- og verslunarfólks innan Framsýnar fór fram á þriðjudaginn. Fundurinn fór vel fram og flutti formaður deildarinnar Snæbjörn Sigurðarson skýrslu stjórnar. Þá gerði formaður félagsins Aðalsteinn Árni grein fyrir hugmyndum félagsins um að kaupa nýjar sjúkra- og orlofsíbúðir í Kópavogi fyrir félagsmenn. Almenn ánægja kom fram á fundinum með starfsemi deildarinnar og fyrirhuguð kaup félagsins á nýjum íbúðum á höfuðborgarsvæðinu. Read more „Nýr formaður til starfa“
Framsýn fundar á mánudaginn
Stjórn og trúnaðarmannaráð Framsýnar mun koma saman til fundar mánudaginn 6. febrúar kl. 17:15 í fundarsal félagsins. Dagskrá fundarins er eftirfarandi: Read more „Framsýn fundar á mánudaginn“