Skora á borgaryfirvöld að tryggja framtíð Reykjavíkurflugvallar

Framsýn- stéttarfélag hefur samþykkt að senda frá sér svohljóðandi ályktun um Reykjavíkurflugvöll en miklar umræður hafa verið undanfarið varðandi framtíð flugvallarins. Verði flugvöllurinn lagður niður mun það hafa verulega slæm áhrif á alla þá sem þurfa að komast til og frá borginni við Faxaflóann. Read more „Skora á borgaryfirvöld að tryggja framtíð Reykjavíkurflugvallar“

Vilja að Vinnumálastofnun auki þjónustu sína á svæðinu

Framsýn hefur farið þess á leit við Vinnumálastofnun að hún efli þjónustu við atvinnuleitendur í Þingeyjarsýslum. Um 150 manns voru á atvinnuleysisskrá um síðustu áramót á félagssvæði stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum. Vinnumálastofnun hefur verið með þjónustuskrifstofu fyrir atvinnuleitendur á Húsavík með tengingu við skrifstofu stofnunarinnar á Akureyri. Read more „Vilja að Vinnumálastofnun auki þjónustu sína á svæðinu“

Óánægja vegna hækkunar á fasteignagjöldum

Ljóst er að margir íbúar í Norðurþingi eru verulega óánægðir með umtalsverðar hækkanir á fasteignagjöldum á árinu 2012.  Samkvæmt upplýsingum frá Norðurþingi hækkaði álagningarprósentan hjá sveitarfélaginu ekki milli ára. Fjölmargir hafa sett sig í samband við Skrifstofu stéttarfélaganna og óskað eftir að félögin skoðuðu málið þar sem full þörf væri á því að gera alvarlegar athugasemdir við hækkanirnar. Read more „Óánægja vegna hækkunar á fasteignagjöldum“

Samþykkt að kaupa íbúðir í Kópavogi

Stjórnir Þingiðnar og Framsýnar samþykku samhljóða á fundum sínum í gær að fjárfesta í fjórum nýjum íbúðum í Kópavogi fyrir félagsmenn. Mun hagstæðara er að kaupa nýjar íbúðir í Kópavogi en í Reykjavík. Framsýn kaupir þrjár íbúðir og Þingiðn eina. Fyrir eiga félögin fjórar íbúðir sem verða seldar. Nýju íbúðirnar sem eru í byggingu í Þorrasölum 1 til 3 í Kópavogi verða klárar í sumar. Read more „Samþykkt að kaupa íbúðir í Kópavogi“

Mörg stórmál á dagskrá í kvöld

Stjórn og trúnaðarmannaráð Framsýnar kom saman til fundar í kvöld. Nokkur stórmál voru til umræðu s.s. skýrsla nefndar um starfsemi lífeyrissjóða, íbúðakaup í Kópavogi, kjarasamningsbundnar launahækkanir, hækkun fasteignagjalda, Vaðlaheiðagöng, mikilvægi Reykjavíkurflugvallar og flugsamgöngur við Húsavík. Tillaga kjörnefndar um menn í trúnaðarstöður fyrir félagið starfsárin 2012-2014 var samþykkt samhljóða. Read more „Mörg stórmál á dagskrá í kvöld“

Úttektarskýrslan komin út

Landssamtök lífeyrissjóða samþykkti í júní 2010 að fela Magnúsi Péturssyni ríkissáttasemjara að skipa þriggja manna nefnda óháðra sérfræðinga til að fjalla um fjárfestingastefnu, ákvarðanir og lagaumhverfi lífeyrissjóða fyrir bankahrunið. Úttektarnefndin hefur nú skilað 4 binda skýrslu. Í skýrslunni er að finna yfirlit um starfsemi og tap lífeyrissjóðanna á árunum 2006-2009 (fyrir og eftir bankahrunið). Read more „Úttektarskýrslan komin út“

Starfsmenn sveitarfélaga – eingreiðsla upp á 25.000 kr.

Félagsmenn Framsýnar og Verkalýðsfélags Þórshafnar sem vinna hjá sveitarfélögum og stofnunum þeirra s.s. Hvammi, heimili aldraðra í Þingeyjarsýslum áttu að fá greidda sérstaka eingreiðslu 1. febrúar 2012 upp á 25.000 kr. fyrir fullt starf. Starfsmenn í hlutastarfi fá greitt hlutfallslega miðað við starfshlutfall 1. febrúar 2012. Read more „Starfsmenn sveitarfélaga – eingreiðsla upp á 25.000 kr.“

Farið yfir málin

Jóna Matthíasdóttir formaður Deildar verslunar- og skrifstofufólks innan Framsýnar var í heimsókn í morgun. Hún fundaði með formanni félagsins Aðalsteini Árna og Jónínu sem er stjórnarmaður í deildinni. Stjórn deildarinnar hefur verið boðuð til fyrsta fundar eftir aðalfund næsta fimmtudag. Á fundinum mun stjórnin skipta með sér verkum og fara yfir starfið næstu mánuði.