Þessa dagana stendur yfir Góðgerðarvika í Leikskólanum Grænuvöllum á Húsavík sem er til mikillar fyrirmyndar. Í gær mátti sjá börn úr leikskólanum fara upp á sjúkrahús með viðkomu í Hvammi, heimili aldraðra á Húsavík. Tilgangurinn var að færa heimilismönnum smákökur sem börnin höfðu bakað. Read more „Frábært framtak hjá nemendum Grænuvalla“
Samlestur á kjarasamningi
Fulltrúar frá aðildarfélögum Starfsgreinasambands Íslands tóku þátt í samlestri á ákvæðum kjarasamnings sambandsins og Samtaka atvinnulífsins sem fram fór í Reykjavík í byrjun vikunnar. Fyrri daginn var farið almennt yfir kjarasamninginn og síðari daginn var þátttakendum skipt upp í nokkra hópa og fjallaði hver hópur um ákveðin kafla í kjarasamningnum. Read more „Samlestur á kjarasamningi“
Frá íbúaþingi til aðgerða
Þriðjudaginn 26. febrúar nk. er boðið til íbúafundar á Raufarhöfn. Þetta er kynningar- og umræðufundur og er liður í verkefni um þróun byggðar á Raufarhöfn, sem Byggðastofnun stendur að, í góðu samstarfi við heimaaðila. Framsýn hefur fylgst vel með málinu og tekið þátt í þeim fundum sem haldnir hafa verið með íbúum Raufarhafnar auk þess að vera í góðu sambandi við þá enda flestir þeirra sem eru á vinnumarkaði í félaginu. Read more „Frá íbúaþingi til aðgerða“
Kaupmáttur – atvinna – velferð
Alþýðusamband Íslands boðar til fundar í Hofinu, Akureyri, þriðjudaginn 26. febrúar kl. 18:30. Fundurinn er haldinn í samráði við stéttarfélögin í Eyjafirði og Húsavík. Fjallað verður um stöðu kjaramála og kaupmáttar (baráttu við verðbólguna), sókn í atvinnumálum á Norðurlandi og hugmyndir ASÍ að nýju húsnæðislánakerfi að danskri fyrirmynd. Read more „Kaupmáttur – atvinna – velferð“
Gleðifréttir – skrifað undir samstarfsyfirlýsingu
Steingrímur J. Sigfússon atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra og Bergur Elías Ágústsson sveitarstjóri Norðurþings skrifuðu undir yfirlýsingu í dag um samstarf ríkisins við Norðurþing, Hafnarsjóð Norðurþings og þýska iðnfyrirtækið PCC vegna áforma um uppbyggingu kísilvers á Bakka. Read more „Gleðifréttir – skrifað undir samstarfsyfirlýsingu“
Húsavík þjónustuhöfn Drekasvæðisins
Samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum hafa olíufélög sem undirbúa leit á Drekasvæðinu óskað eftir því að Húsavík verði þjónustuhöfn fyrir borpalla. Umsókn um lóð hefur verið send til bæjarráðs Norðurþings. Fyrstu tvö sérleyfin voru afhent í byrjun janúar og merki sjást nú um að félögin séu byrjuð að undirbúa leitina. Fulltrúar annars leyfishafans, Íslensks kolvetnis, Faroe Petroleum og Petoro, hafa nú sótt um lóð við Húsavíkurhöfn undir aðstöðu til að þjónusta leitarborpalla.
Björguðu lífi með réttum viðbrögðum
Rauði krossinn veitti björgunarsveitarmönnunum Grétari Guðmundssyni og Steingrími S. Stefánssyni viðurkenningar fyrir rétt viðbrögð er hjarta starfsfélaga þeirra stöðvaðist. Viðurkenningarnar voru afhentar í starfsstöð RKÍ á Ákureyri á 112 daginn. Read more „Björguðu lífi með réttum viðbrögðum“
728 félagsmenn fengu greiðslur frá stéttarfélögunum
Á árinu 2012 fengu 728 félagsmenn styrki úr sjóðum stéttarfélaganna sem aðild eiga að Skrifstofu stéttarfélaganna á Húsavík. Búið er að senda út launamiða til félagsmanna þar sem þessar upplýsingar koma fram. Í heildina eru þessar greiðslur nálægt 38 milljónum. Þar af fengu félagsmenn Framsýnar um 33 milljónir.
Formannafundur SGS stendur yfir
Rétt í þessu var formannafundur á vegum Starfsgreinasambands Íslands að hefjast. Helstu málefni fundarins eru komandi kjaraviðræður og undirbúningur sambandsins hvað það varðar og aðild að stéttarfélögum, skyldur og frelsi. Reikna má með góðum fundi um þessi mál í dag. Read more „Formannafundur SGS stendur yfir“
Útvarp Húsavík komið í loftið – Hvað er í pottunum?
Útvarp Húsavík FM 103 hóf göngu sína á ný í gær eftir vænan svefn. Fjölbreytt dagskrá verður á vegum útvarpsins alla miðvikudaga frá kl 18:00 til 23:00. Margir áhugaverðir þættir munu fara í loftið þar á meðal, Bræður og Bragason og þættir í umsjón Hafliða Jósteins og Björgvins Leifssonar. Read more „Útvarp Húsavík komið í loftið – Hvað er í pottunum?“
Helstu mál tekin fyrir á starfsmannafundi
Formaður Framsýnar fundaði í vikunni með starfsmönnum Stórutjarnarskóla en hann var þar á ferð á þriðjudaginn. Umræður urðu um starfsemi Framsýnar, réttindi starfsmanna og væntanlega kjarasamningsgerð en kjarasamningar eru almennt lausir síðar á þessu ári. Framsýn hefur verið á yfirreið um félagssvæðið og var heimsóknin í Stórutjarnir liður í þeirri áætlun. Read more „Helstu mál tekin fyrir á starfsmannafundi“
Hvað hafa þessar verslanir að fela?
Verslanir Hagkaups, Kosts, Nóatúns og Víðis neita allar að veita neytendum eðlilegar og sjálfsagðar upplýsingar um verðlag í verslunum sínum með því að vísa verðtökufólki frá Verðlagseftirliti ASÍ út úr verslununum sínum. Read more „Hvað hafa þessar verslanir að fela?“
LÍÚ samþykkir hækkun á kauptryggingu sjómanna
Þrátt fyrir að kjarasamningar Sjómannasambands Íslands og LÍÚ séu lausir hefur LÍÚ ákveðið að hækka kauptrygginguna og aðra launaliði hjá sjómönnum um 3,25% frá og með 1. febrúar 2013. Sjómenn geta nálgast nýju kaupskrána inn á heimasíðu stéttarfélaganna á næstu klukkutímum en unnið er að því að setja hana inn á síðuna. Read more „LÍÚ samþykkir hækkun á kauptryggingu sjómanna“
Hver er munurinn á dagvinnu og yfirvinnu?
Aðildarfélög Skrifstofu stéttarfélaganna leggja mikið upp úr því að uppfræða börn á grunnskólaaldri um atvinnulífið og starfsemi stéttarfélaga í Þingeyjarsýslum. Í því sambandi hafa skólarnir átt mjög gott samstarf við skólana á svæðinu. Í gær voru fulltrúarnir á ferðinni í Stórutjarnaskóla með kynningu fyrir elstu nemendur skólans. Read more „Hver er munurinn á dagvinnu og yfirvinnu?“
3,5 milljónir greiddar til félagsmanna í janúar
Nokkur umræða hefur verið um mikilvægi sjúkrasjóða fyrir félagsmenn stéttarfélaga og miklar útgreiðslur úr þeim til félagsmanna. Fjölmiðlar fjölluðu töluvert um málið á dögunum. Sjúkradagpeningar hjá stéttarfélögum koma til þegar félagsmenn hafa lokið greiðslum vegna veikindalauna hjá viðkomandi fyrirtækjum. Read more „3,5 milljónir greiddar til félagsmanna í janúar“
Lykillinn að Bakka – stór dagur í gær
Fulltrúi frá Heimasíðu stéttarfélaganna var að sjálfsögðu í Menningarhúsinu Hofi í gær þegar skrifað var undir samninga við verktakana ÍAV og svissneska fyrirtækið Matri en þessi tvö fyrirtæki áttu lægsta tilboðið í gerð gangnanna. Áætlaður kostnaður vegna gangnanna er 11,5 milljarðar króna. Read more „Lykillinn að Bakka – stór dagur í gær“
Bjartsýni á aðalfundi DVSF
Aðalfundur Deildar verslunar- og skrifstofufólks innan Framsýnar var haldinn í fundarsal stéttarfélaganna síðasta miðvikudagskvöld. Formaður deildarinnar, Jóna Matthíasdóttir flutti skýrslu stjórnar fyrir nýliðið starfsár. Ný stjórn og varastjórn var kjörin, Jóna Matthíasdóttir, Jónína Hermannsdóttir og Birgitta Bjarney Svavarsdóttir í aðalstjórn og Katarzyna Osipowska og Kári Kristjánsson í varastjórn. Read more „Bjartsýni á aðalfundi DVSF“
Norðlenska kaupir húsnæði af Vísi hf.
Samkvæmt heimildum Heimasíðu stéttarfélaganna verður í dag gengið frá kaupum Norðlenska á húsnæði sem verið hefur í eigu Vísis hf. á Húsavík. Um er að ræða húsnæði á Hafnarstéttinni þar sem rækjuvinnsla Vísis var áður til húsa. Read more „Norðlenska kaupir húsnæði af Vísi hf.“
Þorra blótað
Starfsmenn stéttarfélaganna blótuðu þorra í hádeginu í dag ásamt góðum gestum frá Vinnumálastofnun og VÍS. Þá voru formenn Þingiðnar og STH að sjálfsögðu á staðnum, það eru þeir Stefán og Jónas. Sjá myndir: Read more „Þorra blótað“
