Við Óskarsstöðina á Raufarhöfn stendur fallegt listaverk til heiðurs síldarstúlkunum sem söltuðu niður síld á síldarárunum. Framsýn kom að því að styrkja gerð listaverksins um kr. 100.000,-. Sköpun listaverksins var samstarfsverkefni Ingibjargar Guðmundsdóttur listakonu frá Kópaskeri og Björns Halldórssonar frá Valþjófsstöðum í Núpasveit við Öxarfjörð. Read more „Framsýn styrkir „Síldarstúlkuna““
Fréttabréfið fast á Víkurskarði
Til stóð að Fréttabréf stéttarfélaganna færi í póst í gær en það er fullt af upplýsingum um orlofskosti sumarið 2013 og því margir sem bíða eftir því. En veðrið kom í veg fyrir það þar sem Fréttabréfið er fast í flutningabíl á Víkurskarðinu. Samkvæmt upplýsingum heimasíðunnar er flutningabílinn enn fastur. Vonandi tekst að losa bílinn í dag svo blaðið komist í póst á morgun. Read more „Fréttabréfið fast á Víkurskarði“
Fæddi son í sjúkrabíl mitt í ófærðinni í Dalsmynni
Þegar kona tók léttasóttina norður á Húsavík undir miðnætti var úr vöndu að ráða þar sem hún þurfti nauðsynlega að komast a fæðingadeildina á sjúkrahúsi Akureyrar en Víkurskarðið var kolófært auk þess sem tveir stórir bílar, sem þar sátu fastir, lokuðu leiðinni endanlega. Read more „Fæddi son í sjúkrabíl mitt í ófærðinni í Dalsmynni“
Trúnaðarmannanámskeið fellur niður
Til stóð að halda trúnaðarmannanámskeið á vegum Framsýnar á Illugastöðum næstu tvo daga. Vegna veðurs hefur námskeiðinu verið frestað. Read more „Trúnaðarmannanámskeið fellur niður“
Þingmenn, standið með okkur!!
Framsýn og Þingiðn hafa komið á framfæri áskorun til þingmanna um að styðja við uppbyggingu á Bakka en tvo frumvörp sem varða atvinnuuppbyggingu í Þingeyjarsýslum eru nú til umræðu á þingi. Sjá áskorunina: Read more „Þingmenn, standið með okkur!!“
Hvað gerist á Alþingi?
Á næstu dögum mun ráðast hvort tvö mikilvæg frumvörp sem snerta Húsavík fari í gegnum þingið. Um er að ræða frumvarp til laga um heimild til handa ráðherra, f.h. ríkissjóðs, til að fjármagna uppbyggingu innviða vegna atvinnustarfsemi í landi Bakka í Norðurþingi. Síðara frumvarpið fjallar um heimild til samninga um kísilver í landi Bakka í Norðurþingi. Um er að ræða fjárfestingar upp á tæpa þrjá milljarða. Read more „Hvað gerist á Alþingi?“
Nemendur FSH í heimsókn
Hópur nemenda úr Framhaldsskóla Húsavíkur kom við í gær á Skrifstofu stéttarfélaganna til að kynna sér starfsemi stéttarfélaga. Með í för var Hjördís kennari Ólafsdóttir. Nemendurnir fengu fyrirlestur um atvinnulífið og helstu réttindi þeirra á vinnumarkaði. Read more „Nemendur FSH í heimsókn“
Handverkskonur í aðalhlutverki
Landbúnaðarverðlaunin 2013 voru veitt við setningu búnaðarþings sem nú stendur yfir. Að þessu sinni hlutu bændurnir í Laxárdal II og handverkshópurinn Handverkskonur milli heiða verðlaunin sem Steingrímur J. Sigfússon atvinnuvega og nýsköpunarráðherra veitti.
Um Handverkskonur milli heiða segir á vef Bændablaðsins Read more „Handverkskonur í aðalhlutverki“
Sigurbjörg Hulda verðlaunuð
Í vetur taka nemendur í 8.-10.bekk í Grunnskólanum á Þórshöfn þátt í verkefni sem ber yfirskriftina Heimabyggðin mín, nýsköpun, heilbrigði og forvarnir. Það er áhuga- og hugsjónarmannafélagið Landsbyggðarvinir í Reykjavík og nágrenni sem standa fyrir þessu. Read more „Sigurbjörg Hulda verðlaunuð“
Að semja um laun – Áhugavert námskeið
Stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum bjóða félagsmönnum upp á áhugavert námskeið er nefnist AÐ SEMJA UM LAUN. Leiðbeinandi á námskeiðinu verður Gylfi Dalmann Aðalsteinsson kennari við Háskóla Íslands. Um er að ræða 3 klst. námskeið. Námskeiðið verður haldið mánudaginn 18. mars kl. 19:00 í fundarsal stéttarfélaganna. Read more „Að semja um laun – Áhugavert námskeið“
Mikið fjör á Skrifstofu stéttarfélaganna í dag
Það er óhætt að segja að sjaldan hafi komið eins margir við á Skrifstofu stéttarfélaganna á einum degi eins og í dag, laugardag. Undanskilinn er þó Öskudagurinn. Rétt er að taka fram að venjulega er lokað á laugardögum. Ástæðan er að í kvöld er árshátíð Norðlenska haldin á Húsavík og reiknað er með að árshátíðargestir verði vel á annað hundrað manns.
Námskeið hjá starfsmönnum
Næsta mánudag og þriðjudag verða þrír af fimm starfsmönnum stéttarfélaganna á námskeiði. Viðskiptavinir skrifstofunnar eru beðnir um að sína biðlund og skilning gangi þeim illa að ná sambandi við Skrifstofu stéttarfélaganna þessa daga en Orri Freyr og Ágúst verða á vaktinni og munu gera sitt besta til að sinna viðskiptavinum eins og þeir eru þekktir fyrir. Read more „Námskeið hjá starfsmönnum“
ASÍ með fund í Hofi
Alþýðusamband Ísland er nú á fundaferð um landið og var fyrsti fundurinn haldinn á Akureyri í gær, 26. febrúar. Fundirnir eru haldnir í samráði við stéttarfélögin á viðkomandi svæði og verða átta talsins. Read more „ASÍ með fund í Hofi“
Sumarferð stéttarfélaganna á Langanes
Stéttarfélögin standa fyrir söguferð um Langanes laugardaginn 24. ágúst. Farið verður frá Húsavík kl. 08:00. Á leiðinni austur verður komið við í Gljúfrastofu. Þegar komið verður til Þórshafnar verður söguganga um bæinn og boðið upp á súpu og brauð á staðnum. Því næst verður lagt á stað út á Langanes. Read more „Sumarferð stéttarfélaganna á Langanes“
Mögnuð bændaferð í Húnavatnssýslurnar
Um síðustu helgi fóru bændur úr Suður-Þingeyjarsýslu í heimsókn til bænda í Húnavatnssýslum. Um var að ræða tveggja daga ferð en gist var í Gauksmýri. Rúmlega 20 bændur fóru í ferðina auk þess sem þeir buðu ritstjóra Heimasíðu stéttarfélaganna með í ferðina sem seint verður talinn merkilegur bóndi. Ferðin tókst afar vel og var vel tekið á móti gestunum úr Þingeyjarsýslu. Hér má sjá myndir: Read more „Mögnuð bændaferð í Húnavatnssýslurnar“
Áfram Raufarhöfn
Töluverð umræða hefur verið um málefni Raufarhafnar síðustu mánuðina vegna þeirrar miklu fólksfækkunar sem þar hefur orðið. Þá hefur jafnframt atvinnulífi á staðnum hnignað verulega. Read more „Áfram Raufarhöfn“
VÞ umhugað um tímatalið
Ljósmyndahópur á vegum Grunnskólans á Þórshöfn var staddur á Dvalarheimilinu Nausti þegar fulltrúi Verkalýðsfélags Þórshafnar kom þar við til að gefa íbúum á Nauti dagatöl, þessi gömlu góðu sem hægt er að rífa af! Það var Margrét Brá Jónasdóttir, nemandi í 9.bekk, sem tók þessa mynd af Kristínu Kristjánsdóttur starfsmanni félagsins afhenda Þórólfi vistmanni á Nausti dagatal. Read more „VÞ umhugað um tímatalið“
Fréttabréf í burðarliðnum
Í næstu viku verður gengið frá Fréttabréfi sem væntanlegt er til lesenda í byrjun mars. Aðalefni Fréttabréfsins verða orlofskostir sumarið 2013. Að venju bjóða félögin félagsmönnum upp á marga góða kosti í orlofsmálum. Jafnframt verður hægt að skoða framboðið inn á heimasíðu stéttarfélaganna í næstu viku. Ef lesendur vilja koma myndum eða efni á framfæri við ritstjóra Fréttabréfsins er þeim það velkomið. Senda skal efnið á netfangið kuti@framsyn.is. Góða helgi félagar og aðrir Íslendingar.
Skemmtilegt framtak hjá börnum á Þórshöfn
Þau Dagný Rós og Atli Berg Kristjánsbörn, Zuzanna Jadwiga Potrykus og Katrín og Birgitta Rúnarsdætur sem búa á Þórshöfn héldu nýlega tombólu til styrktar UNICEF. Þau fengu að vera í Samkaup Strax og söfnuðu hvorki meira né minna en 12.500 krónum! Fulltrúar UNICEF á Íslandi eru þessum dugnaðarforkum og hugsjónafólki hjartanlega þakklát fyrir framtakið. Framtak barnanna er til mikillar fyrirmyndar. Read more „Skemmtilegt framtak hjá börnum á Þórshöfn“
Nýr trúnaðarmaður hjá Vísi hf.
Vísir hf. rekur öfluga fiskvinnslu og starfa tæplega 60 starfsmenn hjá fyrirtækinu á Húsavík. Í morgun var haldinn vinnustaðafundur með starfsmönnum þar sem gengið var frá kjöri á trúnaðarmanni. Kosningu hlut með glæsibrag, Justyna Lewicka og Justyna Gromek var kjörin til vara. Framsýn óskar þessum ágætu konum til hamingju með embættin. Read more „Nýr trúnaðarmaður hjá Vísi hf.“