Samninganefnd Starfsgreinasambands Íslands sem skipuð er formönnum aðildarfélaga sambandsins mun koma saman í Reykjavík í dag og hefjast handa við að móta kröfugerð á hendur Samtökum atvinnulífsins er varðar launalið kjarasamnings aðila. Read more „Móta kröfugerð“
Vigdís frá VIRK í heimsókn
Í gær fengu stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum góðan gest, Vigdísi Jónsdóttur framkvæmdastjóra Virk – starfsendurhæfingarsjóðs. Read more „Vigdís frá VIRK í heimsókn“
Hörkufundur á Raufarhöfn
Framsýn stóð fyrir félagsfundi á Raufarhöfn í gær. Góð mæting var á fundinn og grenilegt er að fólk er tilbúið í átök til að berjast fyrir betri kjörum. Ekki síst í ljósi þess að verkafólk var skilið eftir í síðustu kjarasamningum með um 2,8% launahækkun. Read more „Hörkufundur á Raufarhöfn“
Umferðin um Víkurskarð jókst um 8,6 prósent í fyrra
Umferðin um Víkurskarð austan Akureyrar jókst um 8,6 prósent í fyrra miðað við árið 2013. Að meðaltali fóru 1.230 bílar á dag um skarðið en yfir sumartímann fóru 2.155 bílar á hverjum degi, og munar þar mikið um þann mikla vöxt sem verið hefur í ferðaþjónustunni. Read more „Umferðin um Víkurskarð jókst um 8,6 prósent í fyrra“
„Hingað og ekki lengra“ – myndband
Formaður Framsýnar var tekinn í viðtal eftir fjölsóttann félagsfund um kjaramál sem félagið stóð fyrir. Hér má sjá viðtalið sem margmiðlunarfyrirtækið TimeRules tók.
Hugur í fundarmönnum – myndband
Framsýn stóð fyrir félagsfundi um kjaramál fyrir helgina. Hér má sjá nokkur viðtöl sem tekin voru við fundarmenn og aðra sem áttu leið á skrifstofu stéttarfélaganna fyrir helgina. Það var margmiðlunarfyrirtækið TimeRules sem tók upp viðtölin.
Reiknar með átökum á vinnumarkaði
Skarpur kom út í gær. Í blaðinu er viðtal sem Karl Eskil Pálsson fjölmiðlamaður tók við Aðalstein Árna Baldursson í vikunni um stöðuna í kjaramálum. Hér má lesa viðtalið: Read more „Reiknar með átökum á vinnumarkaði“
„Þess á milli skríður seðlabankastjóri í híði sitt“
Aðalsteinn Árni Baldursson formaður Framsýnar-stéttarfélags fer hörðum orðum um afstöðu Más Guðmundssonar seðlabankastjóra til kjaramála almenns launafólks í viðtali við héraðsfréttablaðið Skarp á Húsavík, sem kom út í gær. Read more „„Þess á milli skríður seðlabankastjóri í híði sitt““
Sjá fyrir sér 311 þúsund króna laun
Eins og fram hefur komið stóð Framsýn fyrir félagsfundi um kjaramál í gær. Í upphafi fundar voru fundarmenn beðnir um að taka þátt í leynilegri launakönnun. Sé tekið meðaltal svarenda kemur í ljós að menn telja að grunnlaun þurfi að vera kr. 311.244,- á mánuði og að samið verði til allt að þriggja ára. Read more „Sjá fyrir sér 311 þúsund króna laun“
Fjölmennur félagsfundur – Um hvað sömdu flugmenn?
Vel var mætt á félagsfund Framsýnar um kjaramál í gær. Setið var í flestum stólum. Í upphafi fundar fór formaður Framsýnar, Aðalsteinn Árni Baldursson, yfir síðustu kjarasamninga og viðræður Samtaka atvinnulífsins og Starfsgreinasambandsins um sérmál sem verið hafa til umæðu milli aðila á samningafundum í vetur. Read more „Fjölmennur félagsfundur – Um hvað sömdu flugmenn?“
Áskoranir og tækifæri í ferðaþjónustu vegna uppbyggingar Þeistareykjarvirkjunar
Ferðamálasamtök Þingeyjarsveitar, Húsavíkurstofa, Mývatnsstofa og Landvirkjun stóðu í gær fyrir samráðsfundi vegna uppbyggingar Þeistareykjavirkjunar. Read more „Áskoranir og tækifæri í ferðaþjónustu vegna uppbyggingar Þeistareykjarvirkjunar“
Félagar, munið fundinn í dag
Skýrar reglur gilda um aksturs- og hvíldartíma ökumanna sem starfa við snjómokstur og hálkuvarnir
Alþýðusamband Íslands í samstarfi við Vegagerðina hefur gefið út minnisblað um aksturs- og hvíldartíma ökumanna við snjóruðning og hálkuvarnir í vetraþjónustu, en nokkur óvissa hefur verið um það hvaða reglur gilda við slíka vinnu. Read more „Skýrar reglur gilda um aksturs- og hvíldartíma ökumanna sem starfa við snjómokstur og hálkuvarnir“
Starfsmenn sveitarfélaga hækka
Samkvæmt kjarasamningum stéttarfélaganna hækka starfsmenn sveitarfélaga í launum 1. janúar 2015. Félagsmenn Framsýnar, Verkalýðsfélags Þórshafnar og Starfsmannafélags Húsavíkur geta skoðað nýju kauptaxtana inn á heimasíðu stéttarfélaganna, framsyn.is. undir kaup og kjör-kauptaxtar á forsíðunni. Read more „Starfsmenn sveitarfélaga hækka“Hugur í mönnum
Samninganefnd Starfsgreinasamband Íslands kom saman til fundar í gær í Karphúsinu. Mikill hugur er í samninganefndinni og greinilegt er að viðhorf Samtaka atvinnulífsins og Starfsgreinasambands Íslands fara ekki saman hvað varðar væntingar um launahækkanir í næstu kjarasamningum. Read more „Hugur í mönnum“
Iðgjald í Starfsmenntasjóð verslunar- og skrifstofufólks hækkar
Iðgjald til Starfsmenntasjóðs verslunar- og skrifstofufólks hækkaði um 0,10% þann 1. janúar 2015 og er nú 0,30%. Í kjarasamningi SA og VR/LÍV 2014 sem Deild verslunar- og skrifstofufólks innan Framsýnar á aðild að segir: Read more „Iðgjald í Starfsmenntasjóð verslunar- og skrifstofufólks hækkar“
… er sælt að vera fátækur elsku Dísa mín.
Ósk Helgadóttir varaformaður Framsýnar skrifar þessa mögnuðu grein inn á heimasíðu stéttarfélaganna í dag. Greinin fjallar um misskiptinguna í þjóðfélaginu sem er þörf umræða nú þegar stéttarfélög verkafólks eru að ganga frá kröfugerð félaganna á hendur atvinnurekendum. Read more „… er sælt að vera fátækur elsku Dísa mín.“
Stjórn og trúnaðarmannaráð fundar
Stjórn og trúnaðarmannaráð Framsýnar kemur saman til fundar miðvikudaginn 14. janúar kl. 18:00. Það er eftir félagsfund um kjaramál sem hefst kl. 17:00. Dagskrá fundarins er eftirfarandi: Read more „Stjórn og trúnaðarmannaráð fundar“Félagsfundur um kjaramál- áríðandi fundur
Framsýn boðar til félagsfundar um kjaramál miðvikudaginn 14. janúar 2015. Fundurinn verður í fundarsal stéttarfélaganna og hefst kl. 17:00. Á fundinum verður kallað eftir kröfum félagsmanna varðandi launalið þeirra kjarasamninga sem félagið á aðild að. Read more „Félagsfundur um kjaramál- áríðandi fundur“Breytingar á lögum um vsk og vörugjöld taka gildi um áramót
Um áramót taka gildi breytingar á lögum um virðisaukaskatt og vörugjöld sem hafa áhrif á verðlag á allflestum vöru- og þjónustuliðum. Breytingar á virðisaukaskatti ættu að hafa áhrif á verðlag strax í upphafi nýs árs en ætla má að breytingar á vörugjöldum kunni skila sér á næstu vikum. Read more „Breytingar á lögum um vsk og vörugjöld taka gildi um áramót“

