Starfsmenn stéttarfélaganna sitja við skriftir í dag, það er á sumardaginn fyrsta, og hamast við að klára Fréttabréf stéttarfélaganna sem á að fara í prentun á morgun svo það komist út til lesenda upp úr helginni. Read more „„Það er komið sumar!““
Atvinnurekendur krefjast viðræðna – vilja semja strax
Til stóð að fulltrúar Framsýnar hæfu viðræður við þau 12 fyrirtæki á félagssvæðinu sem þegar hafa óskað eftir viðræðum við félagið um nýjan kjarasamning eftir helgina. Vegna mikils þrýstings frá fyrirtækjunum hefur verið ákveðið að hefja viðræðurnar á laugardaginn. Read more „Atvinnurekendur krefjast viðræðna – vilja semja strax“
Formaður Framsýnar í sjónvarpsþætti í kvöld
Samkvæmt heimildum heimasíðunnar verður formaður Framsýnar, Aðalsteinn Árni Baldursson, gestur Páls Magnússonar fjölmiðlamanns á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í kvöld. Að sjálfsögðu verða kjaramál til umræðu. Read more „Formaður Framsýnar í sjónvarpsþætti í kvöld“
Er þetta skýringin á áhugaleysi SA?
Fyrir liggur að þeir sem stjórna Samtökum atvinnulífsins tengjast flestir fyrirtækjum á höfuðborgarsvæðinu. Margir velta því fyrir sér hvort það skýri áhugaleysið hjá þeim að ganga frá samningi við aðildarfélög Starfsgreinasambandsins á landsbyggðinni. Það sé ekki sami þrýstingur þrátt fyrir að félögin hafi boðað til verkfalla í næstu viku. Read more „Er þetta skýringin á áhugaleysi SA?“
Þeir klikka ekki á Þórshöfn – verkfallsaðgerðir samþykktar samhljóða
Eins og fjallað hefur verið um voru verkfallsaðgerðir á vegum aðildarfélaga Starfsgreinasambandsins samþykktar með miklum glæsibrag í nýlegri atkvæðagreiðslu. Read more „Þeir klikka ekki á Þórshöfn – verkfallsaðgerðir samþykktar samhljóða“
Vilja semja við Framsýn
Framsýn tekur upp viðræður við fyrirtæki í byggingariðnaði, ferðaþjónustu, iðnaði og matvælaiðnaði. Vilja ganga sem fyrst frá samningum á grunni kröfugerðar félagsins. Þetta segir formaður félagsins í viðtali í Morgunblaðinu í dag. Mikið álag hefur verið á Skrifstofu stéttarfélaganna í dag ekki síst vegna áhuga fyrirtækja að semja við félagið. Sjá viðtalið: Read more „Vilja semja við Framsýn“
Glæsileg niðurstaða – 96% félagsmanna klárir í átök
Klukkan 24:00 í gærkvöldi lauk atkvæðagreiðslu um boðun verkfalls á vegum aðildarfélaga Starfsgreinasambands þar á meðal Framsýnar. Óhætt er að segja að útkoman sé glæsileg þar sem um 96% félagsmanna Framsýnar samþykkti verkfallsboðunina varðandi þá tvo kjarasamninga sem atkvæðagreiðslan náði til. Read more „Glæsileg niðurstaða – 96% félagsmanna klárir í átök“
Vatn rennur út úr báðum endum
Mikið af vatni hefur flætt inn í Vaðlaheiðargöng eftir að vatnsæð opnaðist í gönunum á föstudag. Vatnsflaumurinn er austanmegin í göngunum í Fnjóskadal. Æð með heitu vatni opnaðist í fyrra vestan megin í göngunum en nú er vatnið kalt og meira flæðir nú en þá. Read more „Vatn rennur út úr báðum endum“
Settust hjá verkalýðsleiðtogunum
Verkalýðsforingjarnir og félagarnir Aðalsteinn Á. Baldursson og Vilhjálmur Birgisson þáðu boð Samtaka atvinnulífsins og sóttu ársfund samtakana sem haldinn var í Hörpu fyrir helgina. Read more „Settust hjá verkalýðsleiðtogunum“
Starfsgreinasambandið í forystuhlutverki sambanda ASÍ
Það hefur verið ánægjulegt að fylgjast með samstöðunni sem ríkt hefur innan aðildarfélaga Starfsgreinasambandsins í þeim kjaraviðræðum sem staðið hafa yfir undanfarna mánuði. Read more „Starfsgreinasambandið í forystuhlutverki sambanda ASÍ“
Komu víða við
Formaður og varaformaður Framsýnar komu víða við í vinnustaðaheimsóknum fyrir helgina. Þau áttu erindi til Akureyrar og notuðu tækifærið og heilsuðu upp á Ragnar og samstarfsmenn í JMJ sem er með betri fataverslunum landsins. Fulltrúum Framsýnar var vel tekið og boðið upp á kaffi, konfekt og fleiri góðar veitingar. Read more „Komu víða við“
Farið yfir stöðuna í Vaðlaheiðargöngum
Fulltrúar Framsýnar tóku hús á starfsmönnum og yfirmanni Vaðlaheiðargangna á verkstað í gær. Hluti starfsmanna eða um helmingur er í Framsýn. Búið er að bora um 56% af göngunum, sem gera um 4,1 km. Þar af er búið að grafa 2,7 km Eyjafjarðar megin og 1,4 km austan megin. Read more „Farið yfir stöðuna í Vaðlaheiðargöngum“
Góð kjörsókn hjá Framsýn
Félagsmenn Framsýnar hafa verið duglegir að kjósa um verkfallsboðun. Hægt verður að kjósa til kl. 24:00 næsta mánudag. Afar mikilvægt er að allir félagsmenn Framsýnar greiði atkvæði. Látum ekki Samtök atvinnulífsins komast upp að sína verkafólki fingurinn, það er 3,5% launahækkun sem gerir um 7000 krónur á mánuði. Nei takk!!
Segja kröfu um 300.000 króna lágmarkslaun léttvæga
Framsýn, stéttarfélag samþykkti í morgun að senda frá sér svohljóðandi ályktun um stöðu kjaraviðræðna á almenna vinnumarkaðinum. Samtök atvinnulífsins bjóða 3,5% launahækkun meðan stjórnendur fyrirtækja taka til sín tugi prósenta í launahækkanir þessa dagana. Sjá ályktun: Read more „Segja kröfu um 300.000 króna lágmarkslaun léttvæga“
Félagar greiðum atkvæði um boðun verkfalls
Afar mikilvægt er að félagsmenn greiði atkvæði með boðun verkfalls. Atkvæðagreiðsla stendur yfir og eiga allir að hafa fengið kjörgögn. Atkvæðagreiðslan er rafræn. Ef það er einhver sem telur sig hafa rétt til að kjósa en hefur ekki fengið kjörgögn er viðkomandi beðin(n) að setja sig í samband við Skrifstofu stéttarfélaganna strax. Read more „Félagar greiðum atkvæði um boðun verkfalls“
Vilt þú vera fulltrúi Framsýnar á ársfundi Lsj. Stapa?
Ársfundur Lsj. Stapa verður haldinn miðvikudaginn 29. apríl í Hofi á Akureyri og hefst kl. 14:00. Framsýn á rétt á 11 fulltrúum á ársfundinn. Félagsmenn sem jafnframt eru greiðendur til sjóðsins er velkomið að gefa sig fram sem fulltrúar Framsýnar á ársfundinn. Read more „Vilt þú vera fulltrúi Framsýnar á ársfundi Lsj. Stapa?“
Þegar piparkökur bakast………….
Það er alltaf ánægjulegt fyrir gesti að koma í mötuneytið í Reykjahlíðarskóla. Brosandi starfstúlkur tendra fram heimsins besta mat og meðlæti fyrir nemendur, starfsmenn og gesti skólans. Hér eru þær samankomnar á einni mynd, Þórunn Birna Ragnarsdóttir, Ingunn Guðbjörnsdóttir og Þórdís Jónsdóttir. Frábærar konur í alla staði. Read more „Þegar piparkökur bakast………….“
Umræða tekin um kjaramál
Eins og fram kemur í frétt á heimasíðunni fyrr í dag var formanni Framsýnar Aðalsteini Árna boðið í heimsókn í GPG í gær, fimmtudag. Formaður fór yfir stöðuna í kjaraviðræðunum við Samtök atvinnulífsins og boðaðar aðgerðir félagsins til að knýja á um launahækkanir til félagsmanna. Read more „Umræða tekin um kjaramál“
Allt klárt fyrir atkvæðagreiðsluna
Starfsmenn stéttarfélaganna og aðstoðarfólk hafa unnið að því í dag að ganga frá kjörgögnum vegna atkvæðagreiðslu um boðun verkfalls. Kjörgögnin fóru í póst rétt fyrir lokun hjá póstafgreiðslunni á Húsavík og munu berast um 500 félagsmönnum Framsýnar eftir helgina. Read more „Allt klárt fyrir atkvæðagreiðsluna“
Líf og fjör í Reykjahlíðarskóla
Formaður Framsýnar, Aðalsteinn Árni, tók daginn snemma í morgun og fór í heimsókn í Reykjahlíðarskóla. Skólinn er öflugur grunnskóli í Mývatnssveit. Markmiðið með heimsókninni var að fræða elstu nemendur skólans um vinnumarkaðinn og tilgang stéttarfélaga. Fjörugar umræður sköpuðust milli nemendanna og verkalýðsforingjans. Að sögn formannsins voru nemendurnir einstaklega skemmtilegir og hressir. Sjá myndir: Read more „Líf og fjör í Reykjahlíðarskóla“