Framsýn og Þingiðn hafa ákveðið að hefja söfnun á einnota dósum og flöskum sem falla til í íbúðum félaganna í Þorrasölum í Kópavogi eftir dvöl félagsmanna. Hugmyndin er að gestir setji umbúðirnar í poka og komi þeim fyrir í geymslu í blokkinni velji þeir að taka þátt í söfnuninni. Umbúðirnar verða síðan teknar og seldar. Andvirðið rennur óskipt til góðgerðarmála á félagssvæði stéttarfélaganna. Read more „Vilja tæki fyrir dósir!! (söfnun hafin)“
Stofnanasamningur endurskoðaður
Starfsgreinasambandið sem Framsýn á aðild að og Skógrækt ríkisins hafa gert með sér stofnanasamning um forsendur og reglur um röðun starfa við stofnunina, í samræmi við ákvæði kjarasamnings SGS og fjármálaráðherra, fyrir hönd ríkissjóðs, frá 1. júní 2011. Read more „Stofnanasamningur endurskoðaður“
Kjarasamningar í uppnámi
Forseti Alþýðusambands Íslands, Gylfi Arnbjörnsson, gerði sér ferð til Húsavíkur fyrir helgina þar sem hann fundaði með fulltrúum Framsýnar, Þingiðnar og Verkalýðsfélags Þórshafnar um kjaramál, lífeyrissjóðsmál og væntanlegt þing sambandsins í haust en það verður haldið í Reykjavík um miðjan október. Read more „Kjarasamningar í uppnámi“
Góður gestur í heimsókn frá FMA
Formaður Félags Málmiðnarmanna á Akureyri, Jóhann R. Sigurðsson, kom í heimsókn á Skrifstofu stéttarfélaganna í gær til að kynna sér starfsemi stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum. Jóhann tók við sem formaður á síðasta aðalfundi félagsins sem haldinn var í febrúar. Read more „Góður gestur í heimsókn frá FMA“
Árangursríkur fundur í orlofshúsi
Stjórn og trúnaðarmannaráð kom saman til fundar í gær í orlofshúsi Framsýnar í Dranghólaskógi í Öxarfirði. Fundurinn var mjög árangursríkur enda umræður líflegar um efnismikla dagskrá fundarins. Í lok fundar, en hann stóð fram eftir kvöldi, grilluðu fundarmenn saman áður en þeir héldu heim á leið eftir góðan fund. Sjá myndir: Read more „Árangursríkur fundur í orlofshúsi“
Rekstur og starfsemi Framsýnar til mikillar fyrirmyndar að mati SGS
Þegar starfsemi, þjónusta og rekstur Framsýnar er skoðaður er ljóst að félagið er mjög vel rekið og það veitir félagsmönnum sínum almennt mjög góða þjónustu og réttindi. Í raun er ekki hægt að benda á margt sem hægt er að bæta segir m.a. í úttekt Starfsgreinasambands Íslands um starfsemi Framsýnar sem var að berast félaginu. Innan Framsýnar eru rúmlega 2000 félagsmenn. Read more „Rekstur og starfsemi Framsýnar til mikillar fyrirmyndar að mati SGS“
Drífa ráðin framkvæmdastjóri
Drífa Snædal hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands og tekur til starfa 17. september næstkomandi. Fráfarandi framkvæmdastjóri, Kristján Bragason starfar við hlið Drífu til áramóta. Framsýn er aðili að Starfsgreinasambandinu. Read more „Drífa ráðin framkvæmdastjóri“
Þarftu að ferðast erlendis
Aðildarfélög Skrifstofu stéttarfélaganna á Húsavík eru með góðan samning við Hótel Keflavík og Gistihús Keflavíkur um afsláttarkjör fyrir félagsmenn sem ferðast erlendis. Það er ef þeir þurfa á gistingu að halda í Keflavík fyrir og eftir utanlandsferðina. Í boði er gisting með morgunverði, geymsla á bíl og akstur til og frá flugvelli. Allt þetta er innifalið í góðu verði auk þess sem stéttarfélögin niðurgreiða gistinguna enn frekar. Nánari upplýsingar um afsláttarkjörin er hægt að fá á Skrifstofu stéttarfélaganna. Read more „Þarftu að ferðast erlendis“
Samningurinn kominn á netið
Kjarasamningur Framsýnar og Landssambands smábátaeigenda fyrir smábátasjómenn sem gengið var frá á föstudaginn er kominn á netið. Hér má sjá slóðina: Kjarasamningurinn slóð: Read more „Samningurinn kominn á netið“
Stjórn og trúnaðarmannaráð Framsýnar fundar á fimmtudaginn
Stjórn og trúnaðarmannaráð Framsýnar kemur saman til fundar næsta fimmtudag. Fundurinn verður í orlofshúsi félagsins í Dranghólaskógi og hefst kl. 18:00. Dagskráin er eftirfarandi: Read more „Stjórn og trúnaðarmannaráð Framsýnar fundar á fimmtudaginn“
Öflugasta heimasíðan
Samkvæmt nýlegri úttekt Starfsgreinasambands Íslands á starfsemi aðildarfélaga sambandsins kemur fram að Framsýn heldur úti öflugustu heimasíðu stéttarfélags innan Alþýðusambands Íslands. Þetta er enn eitt dæmið um öfluga starfsemi Framsýnar en félagið heldur úti heimasíðunni með öðrum stéttarfélögum í Þingeyjarsýslum. Þess má geta að fjöldi fólks fer daglega inn á heimasíðuna.
Okkar menn sigruðu það er Rauða Eldingin
Kjarnafæðideildinni lauk á fimmtudaginn með úrslitaleik í Boganum á Akureyri. Rauða Eldingin sem skipuð er að mestu leikmönnum frá Húsavík og nærsveitum sigraði þá Jankovic United 4 – 1 í úrslitaleik um gullið. Frábær árangur hjá drengjunum en Framsýn kom að því að styrkja þá með búningakaupum ásamt öðrum styrktaraðilum. Til hamingju drengir!! Read more „Okkar menn sigruðu það er Rauða Eldingin“
Húsavíkurrétt laugardaginn 8. september
Nú liggur fyrir að frístundabændur á Húsavík munu ganga á fjöll eftir viku og smala vænum dilkum til byggða úr Húsavíkurlandi. Til stendur að rétta laugardaginn 8. september kl. 13:00. Bæjarbúar og aðrir gestir eru velkomnir í réttirnar sem eru í landi Bakka við Húsavík. Read more „Húsavíkurrétt laugardaginn 8. september“
Gleði í Karphúsinu í dag
Rétt í þessu var skrifað undir kjarasamning milli Framsýnar- stéttarfélags og Landssambands smábátaeigenda vegna sjómanna á smábátum að 15 brúttótonnum í húsnæði Ríkissáttasemjara. Kjarasamningurinn nær yfir félagsvæði Framsýnar, það er þrjá útgerðarstaði; Húsavík, Kópasker og Raufarhöfn. Samningurinn gildir til 31. janúar 2014. Read more „Gleði í Karphúsinu í dag“
Kristján í bústörfin og Karl Eskil í ritstjórastólinn
Sá ágæti fréttamaður, Karl Eskil Pálsson, hefur verið ráðinn ritstjóri Vikudags, sem kemur út á Akureyri. „Þetta leggst vel í mig. Vikudagur er öflugt blað á Eyjafjarðarsvæðinu og nýtur virðingar fyrir vandaðan fréttaflutning,“ segir Karl Eskil í frétt í Vikudegi.
Kristján Kristjánsson knattspyrnumaður og fyrrverandi ritstjóri blaðsins mun flytja sig um set frá Akureyri í Aðaldalinn og gerast bóndi á Hraunkoti. Read more „Kristján í bústörfin og Karl Eskil í ritstjórastólinn“
Viðræðum haldið áfram á morgun
Fulltrúar Framsýnar og Landssambands smábátaeigenda munu funda á morgun föstudag um kjarasamning fyrir smábátasjómenn á félagssvæði Framsýnar sem nær yfir þrjár hafnir, Húsavík, Kópasker og Raufarhöfn. Fundurinn verður haldinn í Reykjavík í húsnæði Ríkissáttasemjara og hefst kl. 10:00, það er um leið og fulltrúar Framsýnar lenda í Reykjavík. Read more „Viðræðum haldið áfram á morgun“
Boðað til fundar í stjórn og trúnaðarmannaráði Framsýnar
Afsláttur á gleraugum í Auganu
Félagsmenn í Framsýn sem versla í Auganu í Kringlunni eiga rétt á 15% afslætti vegna kaupa á gleraugum. Áður en félagsmenn versla sér gleraugu þurfa þeir að fá staðfestingu þess efnis að þeir séu félagsmenn á Skrifstofu stéttarfélaganna.
Vetrarstarfið að hefjast
Forseti ASÍ í heimsókn
Forseti Alþýðusambands Íslands er væntanlegur til Húsavíkur miðvikudaginn 5. september kl. 17:00. Þar mun hann funda með stjórnum Framsýnar, Þingiðnar og Verkalýðsfélags Þórshafnar um væntanlegt þing sambandsins sem haldið verður í haust. Að venju verða mörg mál á dagskrá þingsins sem forsetinn mun gera grein fyrir auk þess sem fulltrúum stéttarfélaganna býðst tækifæri til að koma sínum skoðunum á framfæri.