Sigríður Matthildur Arnórsdóttir (f. 1926 – d. 2013)

Á sólskinsdegi á Húsavík 15. júní 2013 féll góður félagsmaður Framsýnar – stéttarfélags frá, Sigríður Matthildur Arnórsdóttir eða Sigga Matta eins og hún var jafnan kölluð. Sigga Matta var fædd í Jörfa á Húsavík 19. maí 1926. Sigríður byrjaði ung á vinnumarkaði, um tíma starfaði hún m.a. sem afgreiðslustúlka hjá Pöntunarfélagi Verkamanna og sem handavinnukennari en lengst af sem við afgreiðslustörf og verslunarstjórn hjá Kaupfélagi Þingeyinga – vefnaðarvörudeild. Read more „Sigríður Matthildur Arnórsdóttir (f. 1926 – d. 2013)“

Viðræðum lokið í dag

Í dag hafa staðið yfir viðræður milli Framsýnar og Samtaka atvinnulífsins í húsnæði Ríkissáttasemjara. Viðræðurnar fóru fram undir hans stjórn. Á fundinum ítrekaði Framsýn kröfuna um að gerður verði kjarasamningur fyrir starfsmenn við hvalaskoðun. Það væri með öllu óþolandi að slíkur samningur væri ekki til staðar. Read more „Viðræðum lokið í dag“

Framsýn stigur mikilvægt skref

Alþýðusamband Íslands hefur lagt áherslu á að sambönd með beina aðild og aðildarfélög sambandsins geri átak í að efla áhuga ungs fólks á hreyfingunni og baráttumálum ungs fólks innan hreyfingarinnar. Því miður virðist fæðingin ganga frekar illa ef marka má viðbrögð aðildarfélaga sambandsins. Eftir því sem best er vitað hefur aðeins eitt samband innan Alþýðusambandsins stofnað vetfang fyrir ungt fólk, Rafiðnarsamband Íslands. Read more „Framsýn stigur mikilvægt skref“

Ungliðahreyfing og hækkanir til félagsmanna

Stjórn og trúnaðarmannaráð Framsýnar samþykkti í gær að leggja til við aðalfund félagsins að verulegar hækkanir komi til á endurgreiðslum til félagsmanna úr sjúkrasjóði félagsins. Það er gert í ljósi góðrar stöðu félagsins sem er sú besta innan aðildarfélaga Starfsgreinasambands Íslands. Þá var jafnframt samþykkt að leggja til við aðalfundinn að stofnuð verði ungliðahreyfing innan félagsins. Read more „Ungliðahreyfing og hækkanir til félagsmanna“

Ný skýrsla um svarta atvinnustarfsemi á Íslandi

Nýverið kom út skýrsla á vegum Eurofound þar sem fjallað er um svarta atvinnustarfsemi á Íslandi út frá ýmsum hliðum. Markmið skýrslunnar, sem ber yfirskriftina „Tackling undeclared work in Iceland“, er m.a. að veita yfirlit yfir umfang og eðli svartar atvinnustarsemi á Íslandi sem og varpa ljósi á aðgerðir yfirvalda til að uppræta slíkt. Read more „Ný skýrsla um svarta atvinnustarfsemi á Íslandi“

Málefni Raufarhafnar til umræðu

Góður gestur kom í heimsókn á Skrifstofu stéttarfélaganna í dag, það er Kristján Þ. Halldórsson. Kristján var nýlega ráðinn til starfa á Raufarhöfn sem verkefnisstjóri til að fylgja eftir atvinnu- og byggðaþróunarverkefni á Raufarhöfn sem Byggðastofnun, Norðurþing, Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga og Háskólinn á Akureyri standa að sameiginlega með íbúasamtökum á Raufarhöfn. Þá hefur Framsýn einnig komið að málinu. Read more „Málefni Raufarhafnar til umræðu“

Greiðendur til Framsýnar ath.

Á árinu 2012 greiddu til Framsýnar- stéttarfélags 2193 launamenn iðgjöld skv. ákvæðum kjarasamninga. Félagið gætir hagsmuna þeirra allra gagnvart atvinnurekendum í héraði og fer með umboð þeirra í samstarfi verkalýðshreyfingarinnar á landsvísu. Allir sem greitt er af til félagsins afla sér réttinda í sjóðum þess og njóta verndar þeirra kjarasamninga sem félagið gerir og allir sem greitt er af eru færðir á félagaskrá sem fullgildir félagsmenn nema þeir óski eftir því að vera ekki á henni. Read more „Greiðendur til Framsýnar ath.“

Ríkissáttasemjari fljótur að bregðast við

Ríkissáttasemjari hefur boðað fulltrúa Framsýnar og Samtaka atvinnulífsins til fundar næsta þriðjudag til að ræða kjaradeilu Framsýnar við hvalaskoðunarfyrirtækin á Húsavík. Framsýn vísaði deilunni til sáttasemjara um síðustu helgi og því má segja að Ríkissáttasemjari bregðist vel við með því að boða strax til fundar.

Línurnar lagðar á Húsavík

Starfsgreinasamband Íslands hefur fundað á Húsavík tvo síðustu daga. Nokkur mál hafa verið til umræðu s.s. kjara- og atvinnumál, ársreikningar sambandsins og  lagabreytingar á samþykktum sambandsins. Fyrir liggur að kjarasamningar verða lausir á almenna vinnumarkaðinum í haust. Ekki síst þess vegna urðu miklar umræður um væntanlega kröfugerð, samningstíma og samningsumboðið. Read more „Línurnar lagðar á Húsavík“

Starfsfólk Samherja fær auka orlofsuppbót

Samkvæmt kjarasamningi er orlofsuppbót starfsmanna  á almenna vinnumarkaðinum kr. 28.700,-. Í tilkynningu til starfsmanna Samherja í landi kemur fram að fyrirtækið hafi ákveðið að hækka upphæðina um 71.300 og greiða kr. 100.000 til starfsmanna með maí launum. Greiðslan er miðuð við fullt starf í 12 mánuði. Starfsmenn eru að sjálfsögðu ánægðir með greiðsluna. Samherji rekur nokkur fyrirtæki á félagssvæði Framsýnar.

Heimir og Eiður heiðraðir á Sjómannadaginn

Sjómennirnir, Eiður Gunnlaugsson og Heimir Bessason voru heiðraðir í dag fyrir farsæla sjómennsku en þeir hafa stundað sjómennsku í áratugi frá Húsavík. Athöfnin fór fram á Fosshótel Húsavík þar sem Sjómannadagskaffi Slysavarnardeildar kvenna fór fram. Fjölmenni var í kaffinu. Sjómannadeild Framsýnar sá um heiðrunina. Hér má sjá umfjöllun Aðalsteins Á. Baldurssonar um heiðursmennina sem hann flutti í dag.  Read more „Heimir og Eiður heiðraðir á Sjómannadaginn“

Velferðarsjóðurinn mikilvægur samfélaginu

Velferðasjóður Þingeyinga var starfræktur með sama hætti árið 2012 eins og árin á undan. Stjórn sjóðsins, var skipuð var á aðalfundi félagsins 14.febrúar 2012. Þau eru: Örnólfur Jóhannes Ólafsson sóknarprestur á Skútustöðum, Sara Hólm frá Kvennfélagasambandi Suður-Þingeyinga ritari, Meðstjórnandi Aðalsteinn Baldursson formaður Framsýnar. Stjórnin auk annarra sem kölluð voru til, komu saman í Bjarnahúsi 26.apríl. Þar var gengið frá úthlutunarreglum og skipan úthlutunarnefndar. Read more „Velferðarsjóðurinn mikilvægur samfélaginu“