Framsýn stéttarfélag leggst gegn samræmdri launastefnu og telur að hún hafi haldið niðri launum í þeim greinum atvinnulífsins sem hafi haft burði til að greiða hærri laun en raun ber vitni s.s. sjávarútvegur, iðnaður og ferðaþjónusta. Read more „Framsýn krefst hærri launa fyrir láglaunafólk“
Bakherbergið: Gjá milli stjórnenda og fólksins á gólfinu
Þessa greiningu á kjaramálum má lesa inn á þeim ágæta vefmiðli kjarninn.is. Vonandi verður hún til þess að verkalýðsforystan standi í fæturna í næstu kjaraviðræðum við Samtök atvinnulífsins: Read more „Bakherbergið: Gjá milli stjórnenda og fólksins á gólfinu“
Uppskeruhátíð hjá Framsýn
Stjórn Framsýnar, trúnaðarmannaráð, trúnaðarmenn félagsins, stjórnir deilda og starfsmenn stéttarfélaganna tóku þátt í loka fundi Framsýnar á árinu 2014 sem fram fór síðasta föstudag, það er jólafundi félagsins. Read more „Uppskeruhátíð hjá Framsýn“
Gleði og hamingja
Á laugardaginn buðu stéttarfélögin Þingeyingum og gestum þeirra upp á kaffi, tertur og ljúfa tónlist frá Tónlistarskóla Húsavíkur. Um þrjúhundruð gestir komu í heimsókn og nutu veitinga og þess sem var í boði. Read more „Gleði og hamingja“Aðalfundur STH fór vel fram
Þrjátíu félagsmenn Starfsmannafélags Húsavíkur mættu og áttu góðan aðalfund undir stjórn Stefáns Stefánssonar formanns. Í skýrslu stjórnar kom fram að auk 11 funda á vegum félagsins var boðið upp á tvær Spánarferðir fyrir félagsmenn á árinu 2013 sem mæltust mjög vel fyrir. Read more „Aðalfundur STH fór vel fram“
Jólakaffi á morgun, laugardag. Allir velkomnir.
Hið árlega og vinsæla jólakaffi stéttarfélaganna verður í fundarsal stéttarfélaganna laugardaginn 13. desember. Opið verður frá kl. 14:00 til 18:00. Boðið verður upp á kaffi og heimsins bestu tertu frá Heimabakaríi. Read more „Jólakaffi á morgun, laugardag. Allir velkomnir.“Ályktun um Húsavíkurflugvöll
Stjórn Framsýnar hefur ákveðið að senda frá sér ályktun um mikilvægi Húsavíkurflugvallar en verulega hefur skort á að flugmálayfirvöld setji nægjanlegt fjármagn í viðhald og rekstur flugvallarins. Framsýn hefur áhyggjur af því enda flugvöllurinn mikilvægur öllum þeim sem leið eiga um völlinn og ekki síst fyrirtækjum í ferðaþjónustu. Sjá ályktun: Read more „Ályktun um Húsavíkurflugvöll“
Framsýn ályktar um Vinnumálastofnun
Stjórn Framsýnar kom saman til fundar í gær. Mörg mál voru á dagskrá fundarins s.s. kjara og atvinnumál. Þá var ályktað um ákvörðun Vinnumálastofnunar um að loka þjónustuskrifstofu stofnunarinnar á Húsavík, kjaramál og málefni Húsavíkurflugvallar. Ályktanirnar munu birtast á heimasíðunni í dag og á morgun. Read more „Framsýn ályktar um Vinnumálastofnun“
Bæjarráð hafnar beiðni Vinnumálastofnunar
Eins og fram hefur komið er megn óánægja í samfélaginu hér norðan heiða með ákvörðun Vinnumálastofnunar að loka starfsstöð stofnunarinnar á Húsavík. Framsýn hefur m.a. ályktað um málið og mun væntanlega gera það aftur í kvöld á stjórnarfundi, nú þegar fyrir liggur að þjónustan á Húsavík hefur verið lögð niður. Read more „Bæjarráð hafnar beiðni Vinnumálastofnunar“
Að loknu Þingi Sjómannasambands Íslands.
29. þingi Sjómannasambands Íslands lauk þann 5. desember síðastliðinn með afgreiðslu ályktana frá þinginu og stjórnarkjöri. Sævar Gunnarsson gaf ekki kost á sér til áframhaldandi formannsstarfa og í hans stað var Valmundur Valmundsson frá Sjómannafélaginu Jötni í Vestmannaeyjum kosinn formaður sambandsins næstu tvö árin. Read more „Að loknu Þingi Sjómannasambands Íslands.“
Sorpmál, ný tilhögun sumarið 2015.
Framsýn – stéttarfélag hélt áfram fundarröð sinni um samfélagsmál, með opnum fundi um málefni og framtíð sorpmála í Norðurþingi. Fundurinn var haldinn laugardaginn 6. desember í fundarsal stéttarfélaganna. Aðalgestur fundarins var Kristján Þór Magnússon sveitarstjóri Norðurþings. Read more „Sorpmál, ný tilhögun sumarið 2015.“
Aðbúnaður þeirra sem þrífa hótelherbergið þitt
Reglulega berast fréttir af opnun nýrra hótela víðsvegar um Ísland enda hefur fjöldi ferðamanna meira en tvöfaldast á síðustu árum. Það er ljóst að þessir ferðamenn þurfa að gista einhvers staðar og því kemur ekki á óvart að hótelherbergjum fjölgi. Read more „Aðbúnaður þeirra sem þrífa hótelherbergið þitt“
Opinn fundur um sorpmál kl. 10:30
Framsýn boðar til fundar um sorpmál og framtíð Sorpsamlags Þingeyinga laugardaginn 6. desember kl. 10:30 í fundarsal stéttarfélaganna. Um er að ræða klukkutíma fund. Gestur fundarins verður Kristján Þór Magnússon sveitarstjóri Norðurþings. Fundurinn er öllum opinn. Read more „Opinn fundur um sorpmál kl. 10:30“
Dagskrá stjórnarfundar í Framsýn
Fundur verður haldinn í stjórn Framsýnar þriðjudaginn 9. desember kl. 17:00 í fundarsal félagsins. Dagskrá fundarins er eftirfarandi: Read more „Dagskrá stjórnarfundar í Framsýn“Uppgangur í fluginu
Töluverð aukning hefur verið í umferð um Húsavíkurflugvöll allt frá því að Flugfélagið Ernir tók ákvörðun um að hefja áætlunaflug frá Reykjavík til Húsavíkur vorið 2012. Read more „Uppgangur í fluginu“
Vinnumálastofnun lokar á Húsavík
-Skerðing á þjónustu, fækkun opinberra starfa og enginn sparnaður-
Í auglýsingu frá Vinnumálastofnun í auglýsingablaðinu Skránni á Húsavík í dag, kemur fram að Vinnumálastofnun hyggist loka þjónustuskrifstofu sinni á Húsavík. Þar með lýkur áratuga samfelldri góðri þjónustu við atvinnuleitendur á Húsavík og Þingeyjarsýslum. Read more „Vinnumálastofnun lokar á Húsavík“
Vinnumálstofnun þegir sem gröfin
Framsýn hefur undanfarnar vikur barist fyrir því að Vinnumálastofnun leggi ekki niður starfsemi stofnunarinnar á Húsavík 1. desember nk. Því miður virðist það vera ásetningur hjá stofnuninni að leggja niður starfsemina á Húsavík þrátt fyrir loforð núverandi stjórnavalda um að viðhalda opinberri þjónustu á landsbyggðinni og efla hana enn frekar. Read more „Vinnumálstofnun þegir sem gröfin“
Sveitamennt, er það ekki fræðslusjóður fyrir bændur?
Framsýn hefur í gegnum tíðina átt mjög gott samstarf við Framhaldsskólann á Húsavík um kynningu á starfsemi stéttarfélaga og atvinnulífinu í Þingeyjarsýslum. Í dag komu tveir hópar frá skólanum í heimsókn á Skrifstofu stéttarfélaganna. Read more „Sveitamennt, er það ekki fræðslusjóður fyrir bændur?“
Átt þú uppsafnaðan rétt í Starfsmenntasjóði verslunar- og skrifstofufólks ?
Nýjar starfsreglur Starfsmenntasjóðs verslunar- og skrifstofufólks sem félagsmenn Framsýnar í Deild verslunar- og skrifstofufólks eiga aðild að í gegnum Landssamband íslenskra verslunarmanna voru samþykktar í fyrra og hófst tveggja ára aðlögunartímabil þann 1. janúar 2014. Read more „Átt þú uppsafnaðan rétt í Starfsmenntasjóði verslunar- og skrifstofufólks ?“
Kjarasamningar SGS og BÍ – nýtt vefrit
Bændasamtök Íslands hafa tekið saman vefrit um gildissvið og helstu efnisatriði kjarasamninga Starfsgreinasambands Íslands og Bændasamtakana sem Framsýn á aðild að. Í ritinu eru að finna gagnlegar ábendingar til vinnuveitenda og þeirra sem ráða fólk til starfa í landbúnaði, varðandi kjör starfsmanna sem vinna almenn landbúnaðarstörf á bændabýlum. Read more „Kjarasamningar SGS og BÍ – nýtt vefrit“