Sjúkra- og orlofsíbúðir stéttarfélaganna í Þorrasölum eru nú klárar til leigu fyrir félagsmenn Framsýnar og Þingiðnar. Fyrstu gestirnir fara í íbúðirnar í þessari viku. Íbúðirnar eru allar mjög glæsilegar og eru auk þess á góðum stað í Kópavogi. Um er að ræða tvær gerðir af íbúðum, það er 80m2 og 100m2 íbúðir. Sjá myndir. Read more „Íbúðirnar í Þorrasölum klárar – til hamingju félagar“
Sumar og sól á Húsavík
Veðrið hefur verið nokkuð gott víða um land undanfarið eins og myndin ber með sér. Hún er tekin á Húsavík og er af þeim Sigmari og Elís sem eiga það sameiginlegt að vera starfsmenn Norðurþings. Þeir hafa unnið að því ásamt öðrum starfsmönnum sveitarfélagsins að fegra bæinn fyrir Mærudaga sem verða eftir rúma viku. Read more „Sumar og sól á Húsavík“
Gengu frá samkomulagi í morgun
Fulltrúar Framsýnar og Norðurþings gengu frá samkomulagi í morgun er varðar túlkun á grein 5.7.7.1 í kjarasamningi aðila um greiðslur til starfsmanna er búa í þéttbýli og sækja vinnu utan þéttbýlis á vegum sveitarfélagsins. Nokkur dæmi eru um að við sameiningar sveitarfélaga á svæðinu hafi stofnanir verið sameinaðar og störf þar með færð til milli svæða. Read more „Gengu frá samkomulagi í morgun“
Áhugasamir unglingar á ferð
Rétt í þessu var að ljúka kynningu á starfsemi stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum fyrir unglinga á Kópaskeri og Raufarhöfn sem gerðu sér sérstaka ferð til Húsavíkur til að kynna sér málin. Líkt og í morgun var síðan grillað fyrir gestina og þeim gefin bolur frá Framsýn. Þá var að endingu farið í leiki sem gestirnir höfðu gaman af. Read more „Áhugasamir unglingar á ferð“
Kátir unglingar í heimsókn
Það er búið að vera mikið fjör á Skrifstofu stéttarfélaganna í morgun eins og meðfylgjandi myndir bera með sér. Um fjörutíu unglingar úr Vinnuskóla Norðurþings hafa verið í heimsókn. Þau hafa fengið fræðslu um starfsemi og tilgang stéttarfélaga auk þess að fræðast um sín mál á vinnumarkaði og atvinnustarfsemi í Þingeyjarsýslum. Read more „Kátir unglingar í heimsókn“
Til hamingju félagar!!
Frystitogarinn Guðmundur í Nesi, sem er í eigu Brims, kom til hafnar seint í gærkvöldi með verðmætasta farm sem íslenskt fiskiskip hefur fengið í einni samfelldri veiðiferð til þessa. Farmurinn eftir 30 daga á sjó er rúmlega 300 tonn af grálúðu og er verðmæti hans 450 milljónir króna eða sem svarar til 15 milljóna króna á dag. Read more „Til hamingju félagar!!“
Viltu komast á ungliðaþing ASÍ (ASÍ-UNG)
Þing ASÍ-UNG verður haldið föstudaginn 14. september nk. í Reykjavík. ASÍ-UNG er samráðsvettvangur fyrir ungt fólk á aldrinum 18-35 innan Alþýðusambands Íslands. Markmið með stofnun ASÍ-UNG er að efla starf ungs fólks í verkalýðshreyfingunni og auka þekkingu og skyldur ungs launafólks á verkefnum verkalýðshreyfingarinnar og réttindum á vinnumarkaði. Read more „Viltu komast á ungliðaþing ASÍ (ASÍ-UNG)“
Íbúðirnar nánast á golfvellinum
Við höfum haft orð á því að nýju íbúðir stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum séu á notalegum stað í Kópavogi. Þær eru í blokk sem er við útivistarsvæði höfuðborgarbúa og nánast á einum fallegasta golfvelli landsins sem er völlur þeirra Kópavogsbúa og Garðbæinga. Meðfylgjandi myndir voru teknar síðasta föstudag og sína nálægðina við völlinn og fallegt umhverfi. Read more „Íbúðirnar nánast á golfvellinum“
Framkvæmdir við Þorrasali standa yfir
Þessir ungu menn voru að gera allt klárt á föstudaginn svo smiðir gætu komið og gengið frá verönd við íbúð Framsýnar sem er á jarðhæð í Þorrasölum. Hún verður með góðu útivistarsvæði. Aðrar íbúðir Framsýnar eru á annarri hæð. Þá er íbúð Þingiðnar á þriðju hæð. Íbúðirnar eru klárar eins og fram hefur komið á heimasíðunni en næstu tvo mánuðina verður unnið að því að ganga frá blokkinni að utan sem og lóðinni. Read more „Framkvæmdir við Þorrasali standa yfir“
Bauð stéttarfélögin velkomin í Kópavogin
Ármann Ægir Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs kom í heimsókn í íbúðir stéttarfélaganna í Þorrasölum fyrir helgina. Hann bauð stéttarfélögin (Þingiðn og Framsýn) velkomin í Kópavogin. Það væri gott að búa í Kópavogi eins og alþjóð vissi. Hann sagði það einnig fagnaðarefni að fyrsta blokkin í Kópavogi sem reist væri frá grunni eftir hrun, væri nú að verða fullgerð. Read more „Bauð stéttarfélögin velkomin í Kópavogin“
Allt gert klárt fyrir útleigu
Fulltrúar frá Framsýn og Þingiðn hafa verið í Kópavogi undanfarna daga til að ganga frá íbúðum félaganna í Þorrasölum í Kópavogi. Íbúðirnar verða orlofs- og sjúkraíbúðir fyrir félagsmenn. Síðustu dagar hafa verið langir og strangir enda hefur verið unnið langt fram á kvöld alla daga við að undirbúa íbúðirnar. Reiknað er með að sú vinna klárist um miðjan þennan mánuð. Sjá myndir: Read more „Allt gert klárt fyrir útleigu“
Íbúðir stéttarfélaganna afhentar
Síðasta þriðjudag afhentu Leigugarðar ehf. stéttarfélögunum í Þingeyjarsýslum fjórar nýjar íbúðir í Þorrasölum í Kópavogi. Íbúðirnar eru 80 til 100 fm2. Það var Ágúst Friðgeirsson framkvæmdastjóri Leigugarða sem afhenti fulltrúum Þingiðnar og Framsýnar íbúðirnar sem eru afar glæsilegar á fallegum stað í Kópavogi. Reiknað er með að íbúðirnar fari í útleigu í lok júlí en unnið er að því að standsetja þær að innan svo hægt verði að koma þeim í leigu sem fyrst. Read more „Íbúðir stéttarfélaganna afhentar“
Lopapeysumálið til umræðu í öllum helstu fjölmiðlum landsins
Frétt Heimasíðu stéttarfélaganna í gær um innflutning á lopapeysum frá Kína hefur vakið verulega mikla athygli. Flestir fjölmiðlar landsins hafa fjallað um málið auk þess sem fjöldi fólks hefur þakkað Framsýn fyrir að vekja athygli á málinu. Read more „Lopapeysumálið til umræðu í öllum helstu fjölmiðlum landsins“
Hvað varð um þjóðarstoltið?
Handverkskonur milli heiða, þingeyskur félagsskapur sem hefur síðastliðin 20 ár selt heimatilbúnar afurðir á markaði á Fosshóli við Goðafoss, fordæma harðlega þá þróun sem orðið hefur í minjagripasölu hér á landi. Innan hópsins eru um 100 konur sem hafa atvinnu og tekjur af því að prjóna lopapeysur og búa til aðra minjagripi til sölu. Í yfirlýsingu sem þær sendu heimasíðu stéttarfélaganna segir að á síðustu árum hafi færst í vöxt að íslenskir minjagripir séu framleiddir erlendis. „Ýmiskonar dót skartar íslenska þjóðfánanum eða myndum af okkar helstu náttúruperlum, vandlega merkt Kína eða Taiwan. Read more „Hvað varð um þjóðarstoltið?“
Vinnustaðaheimsóknir mikilvægar
Í starfi stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum er mikið lagt upp úr því að eiga gott samstarf við félagsmenn ekki síst með vinnustaðaheimsóknum. Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar Aðalsteinn Á. Baldursson og Ágúst Óskarsson komu við í Safnahúsinu á Húsavík í síðustu viku í góða veðrinu sem þá var. Þá eru einnig myndir frá heimsókn formanns Framsýnar í Skúlagarð þar sem rekin er öflug ferðaþjónusta. Read more „Vinnustaðaheimsóknir mikilvægar“
Viðræðum frestað vegna sumarleyfa
Fulltrúar frá Landssambandi smábátaeigenda og Framsýn funduðu í tvo daga í þessari viku vegna kjarasamnings fyrir smábátasjómenn á félagssvæði Framsýnar sem nær yfir þrjár hafnir, það er Húsavík, Kópasker og Raufarhöfn. Read more „Viðræðum frestað vegna sumarleyfa“
Fundað í morgun um kjaramál skógræktarmanna
Fulltrúar Starfsgreinasambands Íslands og Skógræktar ríkisins funduðu í morgun um stofnanasamning sem gildir fyrir starfsmenn stofnunarinnar víða um land. Formaður Framsýnar tók þátt í viðræðunum enda blómleg starfsemi hjá Skógræktinni á Vöglum sem tilheyrir félagssvæði Framsýnar. Samningsaðilar voru sammála um vinna áfram að því að ganga frá nýjum stofnanasamningi á næstu vikum.
Íbúðirnar klárar í næstu viku
Nýjar íbúðir Þingiðnar og Framsýnar í Þorrasölum í Kópavogi verða afhentar um miðja næstu viku. Það þýðir að þær verða klárar til leigu síðar í þessum mánuði en unnið er að því að kaupa inn í íbúðirnar húsgögn, tæki og annan staðlaðan búnað sem þarf að vera til staðar í íbúðunum sem eru fjórar. Sjá myndir sem teknar voru í gær:
Aðaldælingar sleppa á fjall
Ritstjóra heimasíðunnar var boðið í ferð með Bjarna Eyjólfssyni bónda á Hvoli í Aðaldal um síðustu helgi þegar Aðaldælingar kepptust við að keyra fé á Þeistareyki. Veðrið var með fallegasta móti og fé Aðaldælinga tók því vel að losna úr heimahögum í gróðurlendið á Þeistareykjum sem var með miklum ágætum. Hér koma nokkrar myndir úr ferðinni. Read more „Aðaldælingar sleppa á fjall“
Björgunarbúningar í alla báta
Í nokkur ár hefur verið í gangi umræða um hvort rétt væri að skylda eigendur báta minni en 12 m að hafa björgunarbúninga um borð bátum sínum. Frá 1994 hafa björgunarbúningar verið skyldubúnaður í öllum skipum 12 m að lengd og lengri. Í sömu reglum er skylt að hafa vinnufatnað, sem búinn er floti, í bátum styttri en 12 m sem gerðir eru út í atvinnuskyni. Read more „Björgunarbúningar í alla báta“