Stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum stóðu í dag fyrir árlegu jólakaffi í fundarsal félaganna á Húsavík. Fjöldi fólks eða um 350 manns komu við og þáðu kaffi, konfekt og tertur í boði stéttarfélaganna. Þá var einnig boðið upp á söng og tónlist af bestu gerð. Ekki var annað að heyra en að Þingeyingar væru komnir í jólaskap því flestir gestanna komu brosandi og fóru brosandi. Sjá myndir: Read more „Góður jólaandi á Húsavík“
Formenn ASÍ funda
Formenn aðildarfélaga ASÍ funduðu í Reykjavík síðasta fimmtudag. Meðal þeirra sem voru á fundinum var Aðalsteinn Á. Baldursson Formaður Framsýnar. Að sögn Aðalsteins var farið yfir forsendur kjarasamninga og hvort rétt væri að segja þeim upp en fyrir liggur að forsendur samninganna eru að mestu brostnar. Fundurinn á fimmtudaginn var fyrsti fundurinn af þremur um endurskoðun kjarasamninga á vegum ASÍ. Read more „Formenn ASÍ funda“
Góð lykt og brjálað að gera
Starfsmenn Framsýnar tóku hús á starfsmönnum Norðlenska í morgun. Sigmundur Hreiðarsson forstöðumaður fyrirtækisins á Húsavík bauð jólasveinana frá Framsýn velkomna og gerði þeim grein fyrir starfseminni sem er á fullum afköstum enda verið að ganga frá tugum tonna af hangikjöti fyrir jólin. Salan hefur gengið vel enda kjötið frá Norðlenska eitt það besta sem er á markaðinum. Sjá myndir: Read more „Góð lykt og brjálað að gera“
Allir velkomnir í jólakaffið á morgun
Þingiðn styrkir Velferðarsjóðinn
Þingiðn- félag iðnaðarmanna í Þingeyjarsýslum færði Velferðarsjóði Þingeyinga kr. 100.000,- króna styrk til að mæta því öfluga starfi sem sjóðurinn er að sinna á félagssvæði Þingiðnar er varðar velferðar- og mannúðarmál. Sjóðurinn er að gera góða hluti og starfsemi hans skiptir verulega miklu máli í héraðinu, ekki síst núna fyrir jólin þegar margir eiga erfitt.
Ísfélagið greiðir landverkafólki auka jólabónus
Mikil ánægja er meðal starfsmanna Ísfélags Vestmannaeyja á Þórshöfn eftir að fyrirtækið tók ákvörðun um að greiða út viðbótar jólabónus til starfsmanna sinna í landi, að upphæð 250.000 kr. Bónusinn er hrein viðbót við 50.000 króna desemberuppbót sem bundinn er í kjarasamningum. Alls fá því starfsmenn í landi 300.000 kr jólabónus í ár.
Framsýn á Facebook
Nú má finna Framsýn á andlitsbókinni eða Facebook líkt og samskiptamiðillinn heitir. Þar munu birtast helstu fréttir, myndir og fleira af heimasíðu okkar og úr starfsemi Framsýnar. Einnig verður mögulegt að sjá myndbönd frá vinnustaðaheimsóknum og fylgjast vel með því áhugaverða verkefni sem fjallað hefur verið um á heimasíðunni. Endilega sendið okkur vinabeiðni og fylgist vel með þar sem fullt af áhugaverðum verkefnum eru framundan hjá Framsýn. Umsjónarmaður með andlitsbókinni, facebook er Rafnar Orri Gunnarsson. Smellið hér fyrir neðan til þess að finna Facebook síðu okkar: http://www.facebook.com/framsyn.stettarfelag
GPG- stórhuga
Eins og heimasíðan hefur fjallað um var íbúafundurinn á Raufarhöfn í vikunni góður og upplýsandi. Ljóst er að heimamenn hafa margar góðar hugmyndir, sérstaklega varðandi ferðaþjónustu og fiskvinnslu á staðnum. Read more „GPG- stórhuga“
Vetrarlegt í Aðaldalnum
Félagar í STH athugið
Fær ekki viðbrögð
Einn af þeim sem hefur haft áhuga fyrir því að setja upp nýja starfsemi á Raufarhöfn er Birkir Kristjánsson fiskverkandandi sem á síðustu árum hefur rekið öfluga niðursuðuverksmiðju í Grindavík sem hann seldi fyrr á þessu ári. Read more „Fær ekki viðbrögð“
Magnað framtak
Skákfélagið Goðinn-Mátar hafa ákveðið hvernig félagið ætlar að halda upp á Íslenska skákdaginn 26 janúar nk. á Húsavík. Við munum taka höndum saman við Velferðarsjóð Þingeyinga og safna peningum fyrir sjóðinn. Read more „Magnað framtak“
Þingiðn fundar á fimmtudaginn
Baráttuhugur í heimamönnum
Byggðastofnun ásamt heimamönnum boðaði til opins fundar um atvinnumál á Raufarhöfn í dag. Fundurinn sem hófst kl. 17:30 fór vel fram og greinilegt er að íbúar á Raufarhöfn vilja leggja sitt að mörkum til að stöðva fólksfækkunina sem orðið hefur á Raufarhöfn undanfarin ár og áratugi. Reyndar hefur fólksfækkunin orðið mest á Raufarhöfn sé miðað við þéttbýliskjarna á Íslandi.
Gleðin við völd á lokafundi Framsýnar
Stjórn og trúnaðarmannaráð Framsýnar ásamt starfsmönnum og trúnaðarmönnum á vinnustöðum komu saman til fundar síðasta föstudag. Í lok fundar var boðið upp á kvöldverð og heimatilbúna skemmtidagskrá. Hefð er fyrir því innan Framsýnar að klára starfsárið með hátíðarfundi en mikið er lagt upp úr því að hafa starfið innan félagsins áhugavert, þroskandi og skemmtilegt. Þessi blanda hefur skilað því að afar auðvelt er að fá félagsmenn til að taka að sér trúnaðarstörf fyrir félagið. Read more „Gleðin við völd á lokafundi Framsýnar“
Blásið til íbúafundar á Raufarhöfn
Undanfarna mánuði hefur verið unnið að verkefni um framtíð Raufarhafnar á vegum Norðurþings, Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga, Byggðastofnunar og Íbúasamtaka Raufarhafnar. Markmið verkefnisins er að styrkja stöðu byggðar á Raufarhöfn. Framsýn hefur einnig látið sig málið varða en íbúar á Raufarhöfn leituðu til félagsins þar sem þeir óttuðust um sína stöðu og framtíð Raufarhafnar. Í kjölfarið vakti félagið athygli á stöðu samfélagsins á Raufarhöfn. Read more „Blásið til íbúafundar á Raufarhöfn“
Fallegt á Þeistareykjum í dag
Formaður Framsýnar og yfirmenn Jarðborana gerðu sér ferð á Þeistareyki í dag eftir heimsókn þeirra til Húsavíkur í morgun. Markmiðið var að heilsa upp á starfsmenn og kynna sér aðstæður en veðrið hefur verið mjög slæmt það sem af er vetri. Bormenn hafa því átt erfitt með að athafna sig á svæðinu en starfsmenn Jarðborana á Þeistareykjum eru mikil hörkutól, ekki spurning. Sjá myndir og frekari umfjöllun. Read more „Fallegt á Þeistareykjum í dag“
Góðir gestir í heimsókn
Baldvin Þorsteinsson stjórnarformaður Jarðborana sem jafnframt gegnir starfi forstjóra fyrirtækisins um þessar mundir og Sturla F. Birkisson framkvæmdastjóri tæknisviðs fyrirtækisins komu í heimsókn til Húsavíkur í morgun. Read more „Góðir gestir í heimsókn“
Jólaboð stéttarfélaganna
Jólaboð stéttarfélaganna verður laugardaginn 15. desember í fundarsal stéttarfélaganna. Þingeyingum og gestum þeirra er boðið í veglegt jólakaffi. Opið verður frá kl. 14:00 til 18:00. Söngur, hlátur og tónlist verða við völd og jólaandinn góði verður á staðnum. Hver veit nema jólasveinarnir Read more „Jólaboð stéttarfélaganna“
Fréttir af starfsemi Starfsmannafélags Húsavíkur
Guðrún K Magnúsdóttir og Stefán Stefánsson voru fulltrúar STH á aðalfundi Samflots 9 og 10 nóvember sl.var sá fundur mjög góður og málin rædd þar á hreinskiptinn hátt og þær ákvarðanir sem teknar voru á fundinum gerir framkvæmdanefnd Samflotsins kleift að efla starf sitt gagnvart okkar samningsaðilum. Read more „Fréttir af starfsemi Starfsmannafélags Húsavíkur“