Jóhanna ráðin í sumarafleysingar

Jóhanna Björnsdóttir hefur verið ráðin í sumarafleysingar á Skrifstofu stéttarfélaganna. Jóhanna hóf störf síðasta föstudag. Hún starfaði áður hjá Heilbrigðisstofnun Þingeyinga sem launafulltrúi og þar áður sem skólaritari Framhaldsskólans á Húsavík. Jóhanna hefur því víðtæka reynslu af skrifstofustörfum. Stéttarfélögin bjóða hana velkomna til starfa.

Sjómenn heiðraðir á Húsavík

Í dag ætlum við að heiðra tvo heiðursmenn sem markað hafa djúp spor í okkar samfélag með dugnaði og eljusemi. Það eru þeir Óskar Karlsson og Kristbjörn Þór Árnason. Þetta sagði Aðalsteinn Á. Baldursson formaður Framsýnar- stéttarfélags þegar hann tilkynnti  í dag hverja Sjómannadeild félagsins hefði ákveðið að heiðra í ár fyrir framúrskarandi sjómennsku.   Read more „Sjómenn heiðraðir á Húsavík“

Bræðslumenn funda áfram

Ríkissáttasemjari hefur boðað Samtök atvinnulífsins og Samninganefnd bræðslumanna á Þórshöfn til fundar næsta föstudag kl. 09:00 í húsi sáttasemjara.  Síðustu daga hefur verið unnið að því að setja upp nýjan kjarasamning og þá þarf að ganga frá nokkrum sérmálum er varðar starfsemina á Þórshöfn. Vonir eru bundnar við að þessi vinna klárist um næstu helgi. Það er allt fyrir utan launaliðinn.

Svínið Bogga stækkar og stækkar.

Það vakti töluverða athygli þegar samstarfsmenn formanns Framsýnar færðu honum svín í afmælisgjöf fyrir síðustu áramót. Vinsælustu vefmiðlar landsins mbl.is og 640.is fjölluðu meðal annars um þessa sérstöku gjöf og heimferðina um nóttina þegar formaðurinn sást læðast heim með gjöfina sér við hlið. Töluvert margir hafa leitað eftir fréttum af svíninu sem fékk nafnið Bogga í höfuðið á varaformanni Framsýnar sem grunuð er um að hafa staðið á bak við gjöfina. Heimasíða stéttarfélaganna ákvað því í dag að fara og heimsækja Boggu svín. Read more „Svínið Bogga stækkar og stækkar.“

Landsmennt og Starfsafl boða til ráðstefnu

Í tilefni af 10 ára starfsafmæli Landsmenntar og Starfsafls bjóða sjóðirnir upp á ráðstefnu og afmælishóf á Hótel Sögu 17. mars nk. kl. 14:00-17:00. Hvar vorum við? Hvert stefnum við? Ljóst er að sjóðirnir hafa komið af góðum notum fyrir félagsmenn stéttarfélaga innan Starfsgreinasambands Íslands og fyrirtæki sem aðild eiga að sjóðnum í gegnum Samtök atvinnulífsins. Sjá dagskrá: Ráðstefna Landsmenntar og Starfsafls

Stjórnarmenn heimsækja Raufarhöfn

Til stendur að stjórn Framsýnar fari til Raufarhafnar á föstudaginn og fundi um sín mál auk þess að heyra hljóðið í heimamönnum, það er atvinnurekendum og félagsmönnum. Nánar verður sagt frá fundinum hér á síðunni síðar.

Formaður Framsýnar heimsækir Þórshöfn á morgun

Ef veður leyfir mun  formaður Framsýnar, Aðalstein Á. Baldursson, verða á Þórshöfn á morgun, fimmtudag. Þar mun hann kenna á trúnaðarmannanámskeiði frá kl. 09:00 og fram yfir hádegi. Síðan verður hann á starfsmannafundi á Hjúkrunarheimilinu Nausti kl. 14:00.  Að þeim fundi loknum um kl. 16:00 mun hann síðan koma við hjá bræðslumönnum á Þórshöfn þar sem kjaramál verða til umræðu. Aðrir þeir sem ekki hafa þegar óskað eftir fundi með Aðalsteini en hafa áhuga fyrir því er vinsamlegast beint á að hafa samband við hann í síma á morgun.

Kjaraviðræður áfram í gangi

Fulltrúar Framsýnar hafa undanfarið unnið að því að ganga frá kjarasamningum fyrir félagsmenn. Í gær var fundað áfram með fulltrúum smábátaeigenda um kjarasamning fyrir sjómenn á bátum undir 15 brúttótonnum. Viðræðurnar ganga vel og er samningurinn á lokastigi. Í dag taka fulltrúar Framsýnar þátt í kjaraviðræðum við ríkið en öll aðildarfélög Starfsgreinasambands Íslands standa saman að þeim samningi. Read more „Kjaraviðræður áfram í gangi“

Framsýn leitar eftir ungu fólki til starfa.

Framsýn stóð nýlega fyrir fundi með þjóðfundarsniði um stöðu félagsins og framtíðarsýn. Þar kom sterklega fram að mikilvægt væri að auka vægi ungs fólk í störfum félagsins, það er í nefndum stjórnum og ráðum.  Nú hefur verið ákveðið að leita að ungu fólki á aldrinum 18 – 35 ára sem er tilbúið að taka þátt í öflugu og skemmtilegu starfi Framsýnar. Áhugasamir eru beðnir um að hafa samband við Skrifstofu stéttarfélaganna í síma 464-6600 eða með því að senda póst á netfangið kuti@framsyn.is. Read more „Framsýn leitar eftir ungu fólki til starfa.“

Er þetta allt að koma?

 Þriðjudaginn 8. mars næstkomandi mun Jafnréttisstofa ásamt  KÍ, BHM, BSRB, ASÍ og Akureyrarbæ standa að fundi um launamun kynjanna, aðgerðir Akureyrarbæjar til að afnema launamun og verklag í framhaldinu. Þá verður að lokum fjallað um áhrif niðurskurðar á konur og karla og hvaða aðferðum er hægt að beita til að niðurskurður bitni ekki frekar á öðru kyninu. Read more „Er þetta allt að koma?“

Góður gangur í viðræðum við SA

Fulltrúar Verkalýðsfélags Þórshafnar hafa átt í viðræðum við Samtök atvinnulífsins vegna breytinga á sérkjarasamningi félagsins vegna starfsmanna í fiskimjölsverksmiðju ÍV á Þórshöfn. Unnið er að því að setja upp nýjan samning  og funduðu samningsaðilar í vikunni vegna þessa. Áfram verður unnið að því að klára uppsetninguna á samningum fyrir utan launaliðinn.