Síðasta þriðjudag afhentu Leigugarðar ehf. stéttarfélögunum í Þingeyjarsýslum fjórar nýjar íbúðir í Þorrasölum í Kópavogi. Íbúðirnar eru 80 til 100 fm2. Það var Ágúst Friðgeirsson framkvæmdastjóri Leigugarða sem afhenti fulltrúum Þingiðnar og Framsýnar íbúðirnar sem eru afar glæsilegar á fallegum stað í Kópavogi. Reiknað er með að íbúðirnar fari í útleigu í lok júlí en unnið er að því að standsetja þær að innan svo hægt verði að koma þeim í leigu sem fyrst. Read more „Íbúðir stéttarfélaganna afhentar“
Lopapeysumálið til umræðu í öllum helstu fjölmiðlum landsins
Frétt Heimasíðu stéttarfélaganna í gær um innflutning á lopapeysum frá Kína hefur vakið verulega mikla athygli. Flestir fjölmiðlar landsins hafa fjallað um málið auk þess sem fjöldi fólks hefur þakkað Framsýn fyrir að vekja athygli á málinu. Read more „Lopapeysumálið til umræðu í öllum helstu fjölmiðlum landsins“
Hvað varð um þjóðarstoltið?
Handverkskonur milli heiða, þingeyskur félagsskapur sem hefur síðastliðin 20 ár selt heimatilbúnar afurðir á markaði á Fosshóli við Goðafoss, fordæma harðlega þá þróun sem orðið hefur í minjagripasölu hér á landi. Innan hópsins eru um 100 konur sem hafa atvinnu og tekjur af því að prjóna lopapeysur og búa til aðra minjagripi til sölu. Í yfirlýsingu sem þær sendu heimasíðu stéttarfélaganna segir að á síðustu árum hafi færst í vöxt að íslenskir minjagripir séu framleiddir erlendis. „Ýmiskonar dót skartar íslenska þjóðfánanum eða myndum af okkar helstu náttúruperlum, vandlega merkt Kína eða Taiwan. Read more „Hvað varð um þjóðarstoltið?“
Vinnustaðaheimsóknir mikilvægar
Í starfi stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum er mikið lagt upp úr því að eiga gott samstarf við félagsmenn ekki síst með vinnustaðaheimsóknum. Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar Aðalsteinn Á. Baldursson og Ágúst Óskarsson komu við í Safnahúsinu á Húsavík í síðustu viku í góða veðrinu sem þá var. Þá eru einnig myndir frá heimsókn formanns Framsýnar í Skúlagarð þar sem rekin er öflug ferðaþjónusta. Read more „Vinnustaðaheimsóknir mikilvægar“
Viðræðum frestað vegna sumarleyfa
Fulltrúar frá Landssambandi smábátaeigenda og Framsýn funduðu í tvo daga í þessari viku vegna kjarasamnings fyrir smábátasjómenn á félagssvæði Framsýnar sem nær yfir þrjár hafnir, það er Húsavík, Kópasker og Raufarhöfn. Read more „Viðræðum frestað vegna sumarleyfa“
Fundað í morgun um kjaramál skógræktarmanna
Fulltrúar Starfsgreinasambands Íslands og Skógræktar ríkisins funduðu í morgun um stofnanasamning sem gildir fyrir starfsmenn stofnunarinnar víða um land. Formaður Framsýnar tók þátt í viðræðunum enda blómleg starfsemi hjá Skógræktinni á Vöglum sem tilheyrir félagssvæði Framsýnar. Samningsaðilar voru sammála um vinna áfram að því að ganga frá nýjum stofnanasamningi á næstu vikum.
Íbúðirnar klárar í næstu viku
Nýjar íbúðir Þingiðnar og Framsýnar í Þorrasölum í Kópavogi verða afhentar um miðja næstu viku. Það þýðir að þær verða klárar til leigu síðar í þessum mánuði en unnið er að því að kaupa inn í íbúðirnar húsgögn, tæki og annan staðlaðan búnað sem þarf að vera til staðar í íbúðunum sem eru fjórar. Sjá myndir sem teknar voru í gær:
Aðaldælingar sleppa á fjall
Ritstjóra heimasíðunnar var boðið í ferð með Bjarna Eyjólfssyni bónda á Hvoli í Aðaldal um síðustu helgi þegar Aðaldælingar kepptust við að keyra fé á Þeistareyki. Veðrið var með fallegasta móti og fé Aðaldælinga tók því vel að losna úr heimahögum í gróðurlendið á Þeistareykjum sem var með miklum ágætum. Hér koma nokkrar myndir úr ferðinni. Read more „Aðaldælingar sleppa á fjall“
Björgunarbúningar í alla báta
Í nokkur ár hefur verið í gangi umræða um hvort rétt væri að skylda eigendur báta minni en 12 m að hafa björgunarbúninga um borð bátum sínum. Frá 1994 hafa björgunarbúningar verið skyldubúnaður í öllum skipum 12 m að lengd og lengri. Í sömu reglum er skylt að hafa vinnufatnað, sem búinn er floti, í bátum styttri en 12 m sem gerðir eru út í atvinnuskyni. Read more „Björgunarbúningar í alla báta“
Thorsil boðar til kynningarfundar
Thorsil ehf., sem áformar að byggja kísilmálmverksmiðju á Bakka við Húsavík, hefur auglýst drög að matsáætlun til kynningar fyrir almenningi. Af því tilefni boðar Thorsil til almenns fundar á Húsavík þar sem verkefnið verður kynnt. Fundurinn verður haldinn í sal Framsýnar stéttarfélags þann 26. júní kl 17:00. Thorsil ehf
Komu færandi hendi með styrk til endurbóta
Á fundi stjórnar Framsýnar fyrir helgina var samþykkt að færa Sjóminjasafninu á Húsavík kr. 150.000 til viðhalds á gömlum trébátum sem eru til sýnis á safninu. Upphæðin er ætluð sem framlag upp í viðgerðir og málningu á bátum á útisvæði safnsins sem komnir eru á verulegt viðhald. Safnið leitar nú leiða til að fjármagna kostnaðarsamt viðhald minja um sjósókn og skipasmíðar í Þingeyjarsýslum.
Um 147 milljónir greiddar í atvinnuleysisbætur
Atvinnuástandið á félagssvæði Framsýnar hefur frekar farið batnandi frá hruni. Það sýna tölur Vinnumálastofnunar. Um þessar mundir eru 76 atvinnuleitendur á skrá hjá Vinnumálastofnun á félagssvæði Framsýnar. Atvinnuleysi á Norðurlandi-eystra var um 4,6% í apríl en var á sama tíma árið 2009 um 8,3%. Read more „Um 147 milljónir greiddar í atvinnuleysisbætur“
Tæpar 8 milljónir í námsstyrki
Á árinu 2011 fengu 278 félagsmenn Framsýnar greiddar 7.927.782,- í einstaklingsstyrki frá fræðslusjóðum sem félagið á aðild að í endurgreiðslur vegna náms eða námskeiða. Read more „Tæpar 8 milljónir í námsstyrki“
Tæpar 24 milljónir til félagsmanna í styrki
Á árinu 2011 nutu 483 félagsmenn Framsýnar bóta úr sjúkrasjóði félagsins. Samtals námu greiðslur vegna sjúkradagpeninga, annarra bóta og styrkja kr. 23.777.583,-. Sambærileg tala fyrir árið 2010 er kr. 19.411.915,-. Samkvæmt þessum tölum varð veruleg hækkun á útgjöldum sjóðsins milli ára eða um 22%. Read more „Tæpar 24 milljónir til félagsmanna í styrki“
Nýr veitingastaður opnar við höfnina
Eftir tólf ára dvöl í Karíbahafinu er matreiðslumaðurinn Völundur Snær Völundarson loksins kominn á heimaslóðir en í byrjun júní opnaði hann veitingastaðinn Pallinn ásamt konu sinni, Þóru Sigurðardóttur. Staðurinn er staðsettur ofan á björgunarsveitarhúsinu svokallaða á Húsavík og býður upp á frábært útsýni yfir höfnina. Sjálft veitingarýmið er í 40 fm tjaldi þar sem stemningin er heimilisleg og afslöppuð. Virkilega áhugaverður veitingastaður. Read more „Nýr veitingastaður opnar við höfnina“
Brim greiðir mest til Framsýnar
Alls greiddu 339 launagreiðendur til Framsýnar á síðasta ári og fjölgaði þeim um 12 milli ára. Stærstu greiðendur iðgjalda til Framsýnar 2011 eftir röð: Read more „Brim greiðir mest til Framsýnar“
Stjórnarfundur í Framsýn
Stjórn Framsýnar hefur verið boðuð til fundar næsta fimmtudag kl. 17:00. Fundurinn er fyrsti fundur stjórnar eftir aðalfund félagsins. Tvær breytingar urðu á stjórninni á aðalfundinum. Aðalsteinn Óskarsson og Snæbjörn Sigurðarson hættu í stjórn. Í þeirra stað komu Jóna Matthíasdóttir og Agnes Einarsdóttir. Dagskrá fundarins er eftirfarandi: Read more „Stjórnarfundur í Framsýn“
Ósmekkleg auglýsing LÍÚ og FFSÍ
LÍÚ og Farmanna og fiskimannasamband Íslands hafa undanfarið sakað stjórnvöld um óvönduð vinnubrögð varðandi þau tvö frumvörp sem verið hafa til umræðu á þingi um stjórn fiskveiða og veiðigjald. Það er því mjög merkilegt að lesa auglýsingu frá þessum samtökum í Fréttablaðinu þar sem fullyrt er að sjómenn og landverkafólk standi sameinuð í afstöðu gegn frumvörpunum til laga um stjórn fiskveiða og veiðigjalda. Read more „Ósmekkleg auglýsing LÍÚ og FFSÍ“
Ódýrir bílaleigubílar
Stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum eru með samning við Bílaleigu Húsavíkur um afslátt fyrir félagsmenn á bílaleigubílum á höfuðborgarsvæðinu. Frekari upplýsingar er hægt að fá hjá Bílaleigu Húsavíkur eða á Skrifstofu stéttarfélaganna.
Formenn SGS sitja á fundi
Nú stendur yfir á Akranesi formannafundur innan Starfsgreinasambands Íslands. Alls eru 19 stéttarfélög innan sambandsins m.a. Framsýn og Verkalýðsfélag Þórshafnar. Helstu málefni fundarins, sem hófst kl. 13:00 í dag, eru verkefni stéttarfélaga, ársreikningar sambandsins, stefna ASÍ í lífeyrismálum og innri málefni sambandsins. Formaður Framsýnar, Aðalsteinn Á. Baldursson er meðal fundarmanna. Fundinum er ætlað að ljúka síðar í dag. Read more „Formenn SGS sitja á fundi“