Að semja um laun – Áhugavert námskeið

Stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum bjóða félagsmönnum upp á áhugavert námskeið er nefnist AÐ SEMJA UM LAUN.  Leiðbeinandi á námskeiðinu verður Gylfi Dalmann Aðalsteinsson kennari við Háskóla Íslands. Um er að ræða 3 klst. námskeið. Námskeiðið verður haldið mánudaginn 18. mars kl. 19:00 í fundarsal stéttarfélaganna. Námskeið er frítt fyrir félagsmenn stéttarfélaganna. Skráning á námskeiðið er á Skrifstofu stéttarfélaganna. Uppbygging námskeiðsins er eftirfarandi:

Farið verður yfir þá þætti sem skapa virði starfsmanna. Rætt verður um starfsþróun, atvinnuhæfni og starfsþróunaráætlanir. Þátttakendur leggja mat á eigið vinnuframlag, meta styrkleika og veikleika sína og koma auga á þau tækifæri sem eru til staðar. Þátttakendur rýna í  eigin menntun, þekkingu, færni, hæfni, reynslu, árangur og frammistöðu í starfi. Farið verður í undirbúning launaviðtalsins og kenndar mismunandi aðferðir í samningatækni sem t.d. nýtast í launa- eða ráðningarviðtali.

Það sem er tekið fyrir á námskeiðinu:
Atvinnuhæfni – starfsþróun
Að leggja raunhæft mat á sjálfan sig
Undirbúningur launaviðtalsins – greining gagna
Samningatækni

Ávinningur:
Þekkja styrkleika og veikleika
Geta gert starfsþróunaráætlanir og eflt atvinnuhæfni sína
Öðlast sjálfstraust í  launaviðtalinu
Aukið virði sitt sem starfsmenn og þar með árangur í launaviðtalinu

Kennsluaðferðir:
Verkefni
Fyrirlestur

Deila á