Mótmæla opnun verslana 1. maí

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands mótmælir harðlega fyrirætlunum verslanamiðstöðva og fleiri að hafa búðir opnar á 1 .maí baráttudegi verkalýðsins. Dagurinn er frídagur verslunarfólks eins og alls annars launafólks á Íslandi og hefur svo verið um áratugaskeið. Miðstjórnin harmar allar tilraunir til að breyta þessu og hvetur neytendur til að sniðganga verslanir sem hafa opið þennan dag. Stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum taka heilshugar undir ályktun miðstjórnar ASÍ.

Félagar í STH athugið – áríðandi könnun í gangi

Við minnum félagsmenn Starfsmannafélags Húsavíkur á að kjara- og viðhorfskönnunin sem Capacent Gallup er að framkvæma fyrir BSRB er enn opin. Nú eru allra síðustu forvöð að svara könnuninni og BSRB hvetur alla félagsmenn eindregið til að taka þátt í könnuninni enda skapar könnunin mikilvægan grunn til samanburðar og rannsókna á launaþróun meðal félagsmanna BSRB þar á meðal félagsmanna Starfsmannafélags Húsavíkur. Read more „Félagar í STH athugið – áríðandi könnun í gangi“

Mikil lífsgæði að hafa flug til Húsavíkur

Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum hefur Flugfélagið Ernir hafið áætlunarflug frá Reykjavík til Húsavíkur. Flogið er fjóra daga í viku. Formaður Framsýnar var meðal farþega í gær en hann var á fundum í Reykjavík á mánudaginn. Að sögn Aðalsteins er það virkilega gleðilegt að hafið sé áætlunarflug á ný til Húsavíkur. Read more „Mikil lífsgæði að hafa flug til Húsavíkur“

Kynningarfundur um Jarðvang – Geopark

Næstkomandi fimmtudag 26. apríl 2012 kl. 20:00 verður kynningarfundur um Jarðvang – Geopark í Skúlagarði, Kelduhverfi. Hugmyndafræði jarðvanga miðar að sjálfbærri nýtingu og uppbyggingu; félagslega, efnahagslega og umhverfislega.  Fá ef nokkur svæði á landinu eru betur til þess fallin að mæta markmiðum um aukna dreifingu ferðamanna í tíma og rúmi en einmitt Norðausturland. Read more „Kynningarfundur um Jarðvang – Geopark“

Gengið frá umsögn um kvótafrumvörpin

Starfsgreinasamband Íslands sem Framsýn er aðili að hefur sent inn umsögn við frumvörpum stjórnvalda um stjórn fiskveiða og veiðigjald. Vegna þess hvað frumvörpin eru nátengd var aðeins sent inn ein umsögn um bæði frumvörpin. Innan fjölmennra samtaka eins og SGS hafa verið mjög skiptar skoðanir um þessi frumvörp og hver áhrif þeirra verða á fiskvinnslufólk og byggðir landsins. SGS telur margt jákvætt í frumvörpunum.  Read more „Gengið frá umsögn um kvótafrumvörpin“

Stefnir í frábæra hátíð 1. maí – landslið tónlistarmanna verður á svæðinu

Undirbúningur vegna 1. maí hátíðarhaldanna á Húsavík er í fullum gangi. Jógvan, Friðrik Ómar og  Einar Georg hafa allir boðað komu sína. Dagskráin er nánast klár. Fyrir liggur að Steingrímur Hallgrímsson mun spila Internasjónalinn/alþýðusöng verkalýðsins í upphafi. Síðan mun Elín Björg Jónsdóttir formaður BSRB sem jafnframt er ættuð frá Húsavík flytja hátíðarræðu dagsins. Karlakórinn Hreimur verður á svæðinu  og flytur nokkur lög en kórinn fór á kostum á nýlegum vorfagnaði.

Read more „Stefnir í frábæra hátíð 1. maí – landslið tónlistarmanna verður á svæðinu“

Engin þörf á nýrri rannsókn

Fram kom í máli Hrafns Bragasonar, fyrrverandi Hæstaréttardómara og formanns nefndar sem falið var að gera úttekt á starfsemi lífeyrissjóðanna í aðdraganda bankahrunsins, á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis í gær að þingmenn gætu skipað nýja nefnd til þess að fara yfir starfsemi sjóðanna ef þeir teldu rannsókn nefndarinnar ekki nægjanlega. Read more „Engin þörf á nýrri rannsókn“

Nýr starfsmaður til starfa

Stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum auglýstu nýlega eftir almennum starfsmanni á Skrifstofu stéttarfélaganna á Húsavík. Fulltrúaráði stéttarfélaganna var falið það verkefni að fara yfir umsóknirnar sem bárust og velja hæfasta einstaklinginn með tilliti til starfsemi Skrifstofu stéttarfélaganna en starfsmanninum er ætlað að vera í þjónustuhlutverki við félagsmenn aðildarfélaganna. Read more „Nýr starfsmaður til starfa“

Starfsfólk á námskeiði

Hluti starfsmanna Ísfélags Vestmannaeyja á Þórshöfn hefur undanfarna daga setið á 40 klukkustunda fiskvinnslunámskeiði. Formaður Framsýnar var á Þórshöfn í dag með erindi um kjarasamninga, rekstur fyrirtækja og aðila vinnumarkaðarins. Að sögn Aðalsteins voru þátttakendur mjög áhugsamir um fræðsluna og voru duglegir að leita eftir upplýsingum um sín mál. Þá hefur mjög mikið verið að gera á Þórshöfn í fiskvinnslu og byggingariðnaði og því lítið um atvinnuleysi. Read more „Starfsfólk á námskeiði“

Kraftur í starfsemi Vísis á Húsavík

Í byrjun janúar tók Vísir hf. í notkun nýjan vinnslubúnað fyrir fiskvinnslu fyrirtækisins á Húsavík. Búnaðurinn sem er frá fyrirtækinu Marel hefur komið vel út.  Góður gangur hefur verið í starfstöð fyrirtækis á Húsavík og nú hefur verið ákveðið að loka aðeins í 5 vikur í sumar, það er frá 30. júlí til 3. september, sem er kjarasamningsbundið sumarfrí starfsmanna. Síðustu ár hefur fyrirtækið lokað í þrjá mánuði yfir sumarmánuðina. Read more „Kraftur í starfsemi Vísis á Húsavík“

Hefur bensínverðið áhrif?

Þessa dagana er verið að yfirfara umsóknir félagsmanna um orlofshús og orlofsíbúðir sumarið 2012. Umsóknir félagsmanna í ár eru heldur  færri en síðasta ár er þá sóttu 130 félagsmenn um orlofskosti á vegum félaganna.  Umsóknirnar í ár eru  113. Fækkun umsókna milli ára nemur 13%. Hugsanlega má rekja fækkunina til bensínhækkana en verðið hefur aldrei verið hærra en um þessar mundir. Read more „Hefur bensínverðið áhrif?“

Til hamingju Völsungur!

Íþróttafélagið Völsungur er um þessar mundir 85 ára. Í tilefni af því verður afmælisfagnaður í Höllinni í dag, 12. apríl kl. 18:00. Þar mun formaður félagsins, Guðrún Kristinsdóttir, flytja hátíðarræðu, nokkrir góðir Völsungar verða heiðraðir og deildir innan félagsins verða með sýningaratriði. Þá verður í boði súpa og brauð frá Norðlenska, Sölku og Heimabakaríi.

Read more „Til hamingju Völsungur!“

Konur taka völdin

Nú liggur fyrir að konur verða mjög ráðandi í starfi Framsýnar næsta kjörtímabil sem eru tvö ár. Kjörnefnd félagsins skilaði fyrir nokkru tillögum um félaga í stjórnir, ráð og nefndir á vegum Framsýnar starfsárin 2012-2014. Af 13 manna stjórn og varastjórn eru níu konur og fjórir karlar og hafa konur aldrei verið fleiri í stjórn félagsins en nú. Read more „Konur taka völdin“