Fyrir liggur að þeir sem stjórna Samtökum atvinnulífsins tengjast flestir fyrirtækjum á höfuðborgarsvæðinu. Margir velta því fyrir sér hvort það skýri áhugaleysið hjá þeim að ganga frá samningi við aðildarfélög Starfsgreinasambandsins á landsbyggðinni. Read more „Er þetta skýringin á áhugaleysi SA?“
Verkfallsdagar
Boðað verkfall Framsýnar, stéttarfélags stendur yfir þessa daga í maí: Read more „Verkfallsdagar“
Framsýn kemur saman til fundar
Staðan tekin í dag
Svipmyndir frá hátíðarhöldunum
Hér má sjá svipmyndir frá hátíðarhöldunum á Húsavík sem snillingurinn Rafnar Orri Gunnarsson tók saman en hann sá um að taka hátíðarhöldinn upp í gær. Sjá má afraksturinn hér á heimasíðunni í þremur myndböndum.
Hvað er svona merkilegt við það að bora í vegg………………
Ósk Helgadóttir varaformaður Framsýnar flutti ávarp á hátíðarhöldunum í gær á Húsavík. Skorað er á lesendur síðunnar að hlusta á þetta áhugaverða ávarp sem Ósk flutti með miklum tilþrifum.
Framsýn hefur gengið frá níu kjarasamningum
Fram kom í ræðu formanns Framsýnar á hátíðarhöldunum 1. maí að félagið hefði þegar samið við níu fyrirtæki á félagssvæðinu. Viðræður væru í gangi við fleiri fyrirtæki og reiknaði Aðalsteinn með því að undirrita nokkra samninga til viðbótar eftir helgina. Það er áður en tveggja daga verkfall hefst í næstu viku það er 6 og 7. maí. Read more „Framsýn hefur gengið frá níu kjarasamningum“
Verkalýðs er ranglát raun……………
Svo orti Hallur Birkir Reynisson og sendi kveðjuna á baráttufundinn á Húsavík í gær sem var mjög fjölmennur eins og fram hefur komið Sjá vísuna: Read more „Verkalýðs er ranglát raun……………“Með blóðhlaupin augu af siðblindu….
Ræða formanns Framsýnar vakti töluverða athygli í dag en hann skaut föstum skotum að Samtökum atvinnulífsins og þeirri misskiptingu sem þrífst í landinu í skjóli samtakana. Verkfallsaðgerðir aðildarfélaga SGS væru í boði SA. Hér má hlýða á ræðu formanns.
Fleiri myndir frá hátíðinni
Hér koma fleiri myndir frá frábærum degi í dag. Sjá myndir: Read more „Fleiri myndir frá hátíðinni“
Mikið fjölmenni á hátíðarhöldunum á Húsavík í dag
Um 700 manns tóku þátt í hátíðarhöldunum á Húsavík sem fóru vel fram í góðu veðri. Boðið var upp á frábær skemmtiatriði auk þess sem tvær kröftugar ræður voru fluttar á fundinum sem vöktu mikla athygli. Samstaðan var algjör og sá fólk ástæðu til að rísa úr sætum þegar formaður Framsýnar lauk ræðu sinni og skoraði á fólk að fylgja eftir kröfunni um 300 þúsund króna lágmarkslaun. Read more „Mikið fjölmenni á hátíðarhöldunum á Húsavík í dag“
Hátíðarræða formanns Framsýnar
Hér má lesa hátíðarræðu formanns Framsýnar, Aðalsteins Árna Baldurssonar, sem hann flutti með miklum tilþrifum rétt í þessu á baráttudegi verkalýðsins í Íþróttahölinni á Húsavík. Read more „Hátíðarræða formanns Framsýnar“
Hvað er svona merkilegt við það að vera karlmaður?
Ósk Helgadóttir varaformaður Framsýnar var með magnað ávarp á hátíðarhöldunum á Húsavík sem hófust kl. 14:00 í dag. Read more „Hvað er svona merkilegt við það að vera karlmaður?“
Jöfnuður býr til betra samfélag!
Það er löngu þekkt að norræna samfélagsgerðin hefur betur náð að sameina jöfnuð og samkeppnishæfni en þekkist meðal annarra þjóða. Með því að tengja saman skýra og ábyrga hagstjórn, umfangsmikið og traust velferðarkerfi og skipulagðan vinnumarkað með öflugum samtökum launafólks og atvinnurekenda með skýrt umboð hafa Norðurlöndin skapað þegnum sínum lífsgæði sem skipar þeim í fremstu röð. Read more „Jöfnuður býr til betra samfélag!“
Búist við fjölmenni í höllina á morgun
Í kvöld hefur verið unnið að því að gera allt klárt fyrir hátíðarhöldin á morgun á Húsavík enda full ástæða til að fjölmenna í höllina, það er Íþróttahöllina á Húsavík þar sem hátíðarhöld stéttarfélaganna fara fram. Hátíðarhöldin hefjast kl. 14:00. Dagskráin er glæsileg, en sjá má hana hér til hliðar. Sjáumst á morgun með baráttuandann á lofti. Read more „Búist við fjölmenni í höllina á morgun“
Verkfallsvaktin gengur vel – Stöð2 á staðnum
Verkfallsverðir á vegum Framsýnar hafa verið á ferðinni í dag á félagssvæðinu en verkfall hófst á hádegi í dag. Verkfallsvaktin hefur gengið vel og nánast ekkert verið um verkfallsbrot. Því miður eru dæmi um að atvinnurekendur hafi þrýst á starfsmenn að hunsa verkfallið. Read more „Verkfallsvaktin gengur vel – Stöð2 á staðnum“
Mikil umferð á heimasíðuna og fjölmiðlamenn í heimsókn
Undanfarna daga hafa heimsóknir á heimasíðu stéttarfélaganna slegið öll met og hafa um 1600 manns verið að fara inn á síðuna að staðaldri til að fylgjast með gangi mála. Read more „Mikil umferð á heimasíðuna og fjölmiðlamenn í heimsókn“
Ný Gallupkönnun – 92% styðja kröfuna um 300 þúsund krónur á mánuði
91,6% landsmanna eru hlynnt kröfum Starfsgreinasambands Íslands (SGS) um að hækka lágmarkslaun á íslenskum vinnumarkaði í 300.000 krónur á mánuði miðað við fullt starf, innan þriggja ára. Read more „Ný Gallupkönnun – 92% styðja kröfuna um 300 þúsund krónur á mánuði“
Skrifað undir kjarasamninga í dag
Framsýn gekk frá nokkrum kjarasamningum í dag við atvinnurekendur á félagssvæði félagsins og voru þeir undirritaðir og kynntir starfsmönnum í dag. Read more „Skrifað undir kjarasamninga í dag“
Fréttir af gangi mála hjá LÍV
Formannafundur LÍV, Landssambands ísl. verzlunarmanna, var haldinn í Reykjavík 22. apríl sl. Vegna ófærðar tóku fulltrúar Framsýnar þátt í fundinum gegnum fjarfundabúnað. Tilefni fundarins var staðan í kjaraviðræðum. Read more „Fréttir af gangi mála hjá LÍV“

