Flutti  kvæði eftir frænku sína

Hermína Hreiðarsdóttir formaður Starfsmannafélags Húsavíkur var meðal þeirra sem kom fram á samstöðfundinum í dag. Hún flutti þrjú ljóð eftir Karitas Mörtudóttur Bjarkadóttur sem voru flutt á Arnarhóli 24. október 2018. Höfundur gaf leyfi fyrir því að þau yrðu flutt á samkomunni á Húsavík í dag. Hermína bað fólk um taka tillit til þess að tölulegar upplýsingar sem fram kæmu í ljóðinu væru ekki endilega réttar miðað við daginn í dag.

EKKI OF

ekki nóg.
ekki nógu dugleg
ekki nógu hávær
ekki nógu ákveðin
ekki nógu, þú.

allt of mikið
allt of starfsdrifinn
allt of hávær
allt of ákveðin
allt of mikið, ég.

þegar ég reyni að vera nóg,
er ég of mikið.
tek of mikið frá þér,
plássið þitt,
frelsi þitt til að kyngera mig,
rétt þinn til að brjóta á mínum,
tilvist mín skerðir þína.

þegar ég reyni að vera ekki of mikið
er ég ekki nóg.
gef of mikið eftir,
plássið mitt,
frelsi mitt til að standa með sjálfri mér
rétt minn til að eiga rétt
tilvist mín skerðir mína.

TÓLF TIL TUTTUGUOGNÍU

samkvæmt nýjustu tölum
verða laun kvenna ekki jöfn karla
fyrr en árið tvöþúsundfjögurtíuogsjö.

samkvæmt nýjustu tölum
mun heimurinn farast í hamförum
ekki seinna en árið tvöþúsundogþrjátíu.

okkur hefur í alvörunni tekist
að eyða heillri plánetu
á styttri tíma
en okkur hefur tekist
að viðurkenna konur
sem menn.

TÍMI TIL KOMINN

stundin er runnin upp.
heyri ég í útvarpinu,
sjónvarpinu,
það bergmálar

stundin er runnin upp.
heyrði mamma mín í útvarpinu,
sjónvarpinu, nema á fimmtudögum,
og það bergmálaði.

hún er runnin upp núna,
þegar við rjúkum á arnarhól,
krefjumst betri kjara
og eyðingu ofbeldis.

hún var runnin upp árið 1975,
þegar þær ruku á lækjartorg,
kröfðust betri kjara,
og enginn vissi um ofbeldið

Ósk Helgadóttir flutti barátturæðu dagsins

Ósk Helgadóttir varaformaður Framsýnar flutti barátturæðu dagsins á samstöðufundi kvenna sem stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum stóðu fyrir í fundarsal stéttarfélaganna á Húsavík. Hún er hér meðfylgjandi:

Verið öll hjartanlega velkomin.

Við erum hér til að hafa hátt. Við minnumst þess í dag að 24.október 1975, lögðu um 90% íslenskra kvenna niður störf þeim tilgangi að sýna fram á mikilvægi kvenna og krefjast réttinda og launa til jafns á við karla. Það voru verkakonur, verslunarkonur, húsmæður, konur úr öllum stéttum og flokkum, alls staðar af á landinu.

Við erum sömuleiðis komin hér í dag til þess að benda á þá staðreynd að 48 árum síðar, erum við enn að berjast fyrir sömu réttindum. Réttindum sem ættu að vera sjálfsögð og fest voru í lög árið 1961. Með lagasetningunni var stefnt að því að fullum launajöfnuði yrði náð árið 1967. 

„Í augsýn er nú frelsið og fyrr það mátti vera“ sungu þær og kjörorð þeirra voru mörg:  Konum leiðist þófið. Konan er að vakna. Áfram stelpur, slítum böndin.

Konurnar, sem tugþúsundum saman yfirgáfu vinnustaði sína voru ekki einungis að berjast fyrir hærri launum. Þær töluðu fyrir jafnrétti, framþróun, friði og vildu vera raunverulegir þátttakendur á öllum sviðum samfélagsins og hvöttu um leið stúlkur og konur til að standa saman og gera breytingar, ekki bara hér á landi, heldur um allan heim. Þær gerðu uppreisn og vildu breytingar á ríkjandi samfélagsgerð sem í grunninn var staðnað bændasamfélag með konuna sem þjónandi ambátt heimilisins.

Meðalatvinnutekjur íslenskra karla í dag eru um 21% hærri en kvenna og kvára og kannanir sýna að kynbundin launamunur innan fyrirtækja og stofnana er um 9%. Hversu oft fáum við ekki að heyra að þessi launamunur eigi sér eðlilegar skýringar þar sem karlar vinni alla jafna lengri vinnudag og meiri yfirvinnu. Við séum bara ekki nægilega dugleg við að bera okkur sjálf eftir launahækkunum og framgangi í starfi. Svona fullyrðingar standast ekki, því þegar talað er um kynbundin launamun er átt við þann mun sem er á launum kynjana sem ekki er hægt að útskýra með ólíkri menntun, aldri, starfsaldri, starfshlutfalli, starfsstétt, yfirvinnu eða vaktaálagi. Launamunurinn verður ekki skýrður á annan hátt en þann að kyn ráði þeim mun. Kynbundinn launamunur í íslensku samfélagi er staðreynd og alvarlegt mein í samfélaginu sem ber að uppræta þegar í stað! 

Kynbundin launamunur verður ekki til út af engu, hann á sér því miður skýringar og er ein skýrasta birtingarmynd þess að konur og kvár eru ekki metin til jafns við karla í samfélagi okkar.  Launamunur er afsprengi þess gildismats sem við höfum verið alin upp við kynslóð eftir kynslóð og beinir okkur strax í bernsku inn á ákveðnar brautir. Hann segir okkur að það sem er kvenlægt sé minna virði en það sem er karllægt, sem aftur skilar sér í því að konur og þar með hefðbundnar kvennastéttir fá lægri laun en karlar. Það gildismat er árþúsunda gamalt. Það er engin tilviljun að fólk sem starfar við ræstingar, umönnun, menntun barna og þjónustu við sjúka og aldraða skipa láglauna hópa í samfélaginu.

Frá því um miðjan sjöunda áratuginn hafa karlavígin fallið eitt af öðru. Fleiri konur sækja orðið í hefðbundin karlastörf s.s. iðngreinar, tæknigreinar og stjórnendastöður og er það vel. Þær eru hvattar til að setja markið hátt og skilja hugtökin „kvennastétt” og „karlastétt” eftir í fortíðinni þar sem þau eiga heima. 

Konur og kvár eru komnar í meirihluta þeirra sem sækja sér háskólamenntun og atvinnuþátttaka þeirra hér á landi hefur farið úr því að vera mjög lítil, upp í það að verða sú mesta innan OECD-ríkjanna, um 75% prósent árið 2021. Við getum sagt að það sé ein birtingarmynd byltingarinnar sem átt hefur sér stað á vinnumarkaði og í samfélaginu síðustu áratugi. Með framþróun og þekkingaröflun hafa störf sem konur unnu áður kauplaust, þróast yfir í háskólamenntaðar stéttir og líklega eru flestir sammála um að í dag viljum við byggja upp samfélag með góðri menntun og bestu fáanlegri þekkingu. En þrátt fyrir að atvinnuþátttaka kynjanna sé svipuð — eru það enn konur sem bera langmesta ábyrgð á heimilishaldi og umönnun og taka þar með hina svokölluðu þriðju vakt. Vissulega má greina hugafarsbreytingu hjá ungum karlmönnum í dag sem taka nú virkari þátt í heimilsstörfum en áður þekktist. Baráttan okkar er greinilega að skila árangri sem er góðs viti.

Kæru konur og kvár. Við erum hingað komin til að hafa hátt. Við erum hingað  komin til að láta vita af að við látum ekki bjóða okkur neitt minna en jafnt. Við erum hingað komin til að mótmæla launamun og kynbundnu ofbeldi. Við erum hingað  komin til að vekja sérstaka athygli á vanmetnu framlagi aðflutts verkafólks sem sem kemur að því með okkur að halda uppi velferðarsamfélaginu og tekjuöflun þjóðarbúsins. Við erum hingað komin til að benda á að konur af erlendum uppruna eru um 22% allra kvenna á íslenskum vinnumarkaði og við eigum þeim mikið að þakka. Rödd þeirra er lágstemmd í samfélaginu og staða margra innan þeirra raða viðkvæm. Við erum hingað komin til að hafa hátt og það skulum við gera, eins lengi og þurfa þykir.

Yfirskrift Kvennaverkfalls í ár: „Kallarðu þetta jafnrétti?“ vísar til þeirra skilaboða sem konur og kynsegin fólk fær gjarnan, að vegna þess hve framarlega Ísland standi í jafnréttismálum á heimsvísu, eigi þau ekki heimtingu á tafarlausum og framsæknum aðgerðum. Því miður hefur orðið dapurlegt bakslag gagnvart réttindum kynsegin og hinsegin fólks að undanförnu, ekki bara hér á landi heldur um allan heim. Þau upplifa sig óörugg í samfélaginu og finnst sem þau standi frammi fyrir takmarkaðri forgangsröðun á borði stjórnvalda. Þau þurfa að fást við gölluð kerfi sem ekki gera ráð fyrir þeim og þau gagnrýna takmarkaðrar og ómarkvissrar stefnumótun ríkisvaldsins í málefnum kynsegin einstaklinga.

Kæru konur og kvár. Við erum fjölbreytt flóra. Samstaða er okkur mikilvæg á hvaða hátt sem sem við upplifum okkur, hvað sem við störfum og eða stöndum í flokkum. Störf okkar eru ekki bara mikilvæg gangverki samfélagsins heldur nauðsynleg. Án okkar virkar það einfaldlega ekki. Við sjáum best hvaða áhrif vera okkar hér í dag hefur á samfélag okkar. Við erum ekkert vara vinnuafl. 

Samstaða okkar gegn kynjamisrétti hefur skilað okkur áleiðis til jafnréttis. Við höfum áorkað miklu sem hefur aukið lífsgæði okkar á svo mörgum sviðum. Ég nefni hér seinni tíma sigra sem þýddu stórar breytingar í jafnréttismálum hér á landi, eins og breytingar á hegningarlögum frá árinu 2018, þar sem nauðgun er skilgreind í lagalegu tilliti út frá samþykki, lengingu fæðingarorlofs í 12 mánuði, lög um þungunarrof frá 2019, sem þýddu aukin völd kvenna yfir eigin líkama að ótalinni #MeToo byltingunni, þar sem hrikti rækilega í stoðum þeim sem svo margir ofbeldismenn hafa treyst á – þ.e. þöggun kynferðisbrota. Sögur brotaþola opnuðu glugga sem áður voru rammlega luktir aftur með þögninni og þær vörpuðu ljósi á eðli ofbeldis, áreitni og viðvarandi mismunun. #My Too breytti, vonandi til framtíðar, vitund fólks og samfélagsgerðinni allri.

Það er óumdeilanlegt að við höfum sótt fram á mörgum sviðum, en því miður er það engin trygging fyrir jöfnum tækifærum kynja framtíðarinnar. Sagan hefur sýnt okkur að ekkert gerist án baráttu og jafnrétti skapast ekki upp úr þurru. Ekki af því okkur langar heldur af því við þorum, getum og viljum berjast fyrir því. Við skulum því ekki bíða með að breyta því sem hægt er að breyta strax og tölum því áfram fyrir jafnrétti framþróun og friði sem ekki veitir af um þessar mundir. Það er ekki bara eðlilegt og sjálfsagt, heldur líka samfélagslega og efnahagslega ábyrgt.

Fjölmenni á samstöðufundi stéttarfélaganna á Húsavík

Tæplega 300 konur voru samankomnar á samstöðufundi stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum sem fram fór í fundarsal stéttarfélaganna á Húsavík í dag, það er Framsýnar, STH og Þingiðnar.

Félögin stóðu einnig fyrir samstöðufundi á Raufarhöfn þar sem konur komu saman frá Raufarhöfn, Þórshöfn, Kópaskeri og úr nærliggjandi sveitum. Hátíðin sem fór vel fram, var haldin í Félagsheimilinu Hnitbjörgum. Nánar verður fjallað um fundinn á Raufarhöfn í sérstakri frétt síðar í dag.

Á samstöðufundinum á Húsavík voru fluttar ræður, ávörp, sungið, sagðar sögur og lesin ljóð. Þá var boðið upp á kaffi, kleinur og lagtertu.  Ósk Helgadóttir var aðalræðumaður dagsins. Christin Irma Schröder flutti kröftugt ávarp sem og Rannveig Benediktsdóttir sem fór yfir mikilvægi dagsins. Þá flutti Hermína Hreiðarsdóttir táknrænt ljóð og Guðný I. Grímsdóttir lagði fundinum til smá sögu úr baráttunni. Meðfylgjandi myndir segja allt sem segja þarf um stemninguna í dag sem var meiriháttar enda fundarsalurinn og allt húsnæði stéttarfélaganna fullt af baráttuglöðum konum á öllum aldri auk þess sem setið og staðið var utanhúss enda fullt út úr dyrum.

Ósk sæmd gullmerki Framsýnar

Síðasta föstudag var haldin móttaka fyrir varaformann Framsýnar, Ósk Helgadóttir. Tilefnið var að sæma hana gullmerki Framsýnar sem er æðsta viðurkenning félagsins fyrir vel unninn störf í þágu félagsmanna og þar með samfélagsins alls í Þingeyjarsýslum. Ósk fagnar einnig um þessar mundir 60 ára afmæli. Stjórn Framsýnar var sammála um að veita varaformanni þessa æðstu viðurkenningu félagsins enda unnið hreint út sagt frábært starf í þágu félagsins til fjölda ára. Athöfnin fór fram í fundarsal stéttarfélaganna að Garðarsbraut 26 að viðstöddum stjórn félagsins, trúnaðarráði, stjórn Framsýnar-ung, formönnum STH og Þingiðnar auk starfsmanna stéttarfélaganna. Í tilefni dagsins var boðið upp á hátíðardagskrá auk þess sem formaður félagsins, Aðalsteinn Árni Baldursson, flutti ávarp þar sem hann þakkaði varaformanni sérstaklega fyrir framlag hennar í þágu félagsmanna um leið og hann óskaði henni til hamingju með að bætast í hóp þeirra forystumanna innan félagsins sem hefðu skarað fram úr í gegnum tíðina.  Ávarpið er svohljóðandi:

Ávarp

„Stjórn Framsýnar stéttarfélags hefur samþykkt að sæma Ósk Helgadóttur gullmerki félagsins fyrir vel unninn störf í þágu félagsmanna og þar með samfélagsins alls í Þingeyjarsýslum. 

Frá árinu 1996 hafa eftirtaldir félagsmenn hlotið þessa æðstu viðurkenningu fyrir störf þeirra í þágu Verkalýðsfélags Húsavíkur eða Framsýnar, stéttarfélags sem formenn eða varaformenn;  Helgi Bjarnason, Kristján Ásgeirsson og Kristbjörg Sigurðardóttir. 

Ósk Helgadóttir bættist nú í þennan merka hóp sem komið hefur að því að marka sporin fyrir framgöngu verkalýðsbaráttu í Þingeyjarsýslum.

Samkvæmt 6-lið 10. greinar félagslaga Framsýnar er stjórn félagsins heimilt á hverjum tíma að velja heiðursfélaga og sæma þá gullmerki félagsins. Heiðursfélagi er sæmdarheiti sem er æðsta viðurkenning félagsins og þeim einum hlotnast er lagt hafa sérstaklega mikið af mörkum til eflingar félaginu, félagsmönnum til hagsbóta.

Það er alveg ljóst að Ósk er vel að því komin að vera heiðruð með þessum hætti. Hún hefur lengi komið að stjórnunarstörfum fyrir félagið, það er sem fulltrúi í trúnaðarráði og trúnaðarmaður starfsmanna innan Framsýnar við Stórutjarnaskóla. Þá hefur hún verið varaformaður félagsins frá árinu 2014 auk þess að gegna ýmsum trúnaðarstörfum fyrir verkalýðshreyfinguna. Hvað það varðar má geta þess að hún var um tíma formaður Alþýðusambands Norðurlands.

Ósk hefur notið mikillar virðingar fyrir störf sín í þágu Framsýnar og alltaf verið reiðubúin að vinna þá vinnu sem þurft hefur að skila í þágu félagsmanna á hverjum tíma. Það er nánast á öllum tímum sólarhringsins. Svo virðist sem fleiri klukkutímar séu í hennar sólarhring en hjá öðru venjulegu fólki. 

Eftirfarandi málsgrein er að finna í blaðinu Verkamanninum frá árinu 1961 þegar málefni Verkamannafélags Húsavíkur voru til umfjöllunar, nú Framsýnar stéttarfélags: „Félagið hefur jafnan haft á að skipa hæfum og góðum mönnum til forystustarfa. Þeir hafa borið merki félagsins hátt en þó með gætni og því hefur vel farið.“ Tilvitnun lýkur.

Að mínu mati á innihald þessarar setningar ekki síður við í dag þegar vikið er að störfum okkar ágæta varaformanns í þágu Framsýnar stéttarfélags. Starf stéttarfélaga hefur breyst verulega í gegnum áratugina. Rauði þráðurinn er þó sá sami og stofnað var til í upphafi, það er velferð félagsmanna.

Í dag stöndum við ekki og bræðum mör til að selja félagsmönnum á hagstæðu verði eins og stjórnarmenn í Verkamannafélagi Húsavíkur gerðu árið 1915. Þá keypti félagið mör fyrir 200 krónur, bræddi hann og seldi félagsmönnum tólg. Félagið útvegaði félagsmönnum einnig hey, skóleður, kartöflur, kol, smjörlíki og niðursoðna mjólk svo eitthvað sé nefnt. Á þessum árum réðst Verkamannafélagið einnig í svarðartekju og skógarhögg í þágu félagsmanna þegar erfiðast var um eldivið. 

Í dag erum við ekki að takast á við verkefni sem þessi. Verkefnin eru til staðar en í öðru formi. Með árunum höfum við byggt upp öflugt starf sem byggir á sterkri liðsheild félagsmanna, aðgengi þeirra að sterkum sjóðum í veikindum, orlofsíbúðum, starfsmenntasjóðum, verðlagseftirliti, vinnustaðaeftirliti, samningagerð og almennri þjónustu s.s. fræðslu og lögfræðiþjónustu. 

Kjarabótina má sækja víðar eins og dæmin sanna. Hvað það varðar er vel við hæfi að nefna aðgengi félagsmanna að sérstökum afsláttarkjörum á flugfargjöldum milli Húsavíkur og Reykjavíkur. Í dag seljum við ekki tólg, við seljum flugkóða.  

Ósk Helgadóttir hefur komið að því með öflugu fólki innan Framsýnar að móta félagið til framtíðar. Þá hefur henni ekki síður verið umhugað um félagsmenn sem hverfa af vinnumarkaði vegna aldurs eða örorku. Hvað það varðar, hafði hún frumkvæði að því að Framsýn héldi starfslokanámskeið síðasta vetur sem tókust afar vel og mikill sómi er af. Þá er hún um þessar mundir að skipuleggja samkomu á Húsavík vegna  kvennafrídagsins 24. október sem var fyrst haldinn árið 1975 þegar um 90% kvenna á Íslandi lögðu niður störf til að sýna fram á mikilvægi vinnuframlags þeirra fyrir samfélagið. Sem sagt, Ósk stendur ávallt vaktina með hagsmuni félagsmanna að leiðarljósi hvort heldur þeir eru á vinnumarkaði eða við það að setjast í helgan steinn. 

Þetta er ein af ástæðum þess að Framsýn stéttarfélag er eitt öflugasta stéttarfélag landsins, það er þegar einstaklingar eins og Ósk leggja allt sitt af mörkum til að berjast fyrir jöfnuði, félagshyggju og réttlátara þjóðfélagi í þágu allra, ekki bara fárra útvaldara.

Ósk Helgadóttir hafðu kærar þakkir fyrir framlag þitt í þágu félagsmanna Framsýnar stéttarfélags. Vonandi fá fáum við að njóta þinna krafta um ókomna tíð þeim og félaginu til heilla. Takk fyrir allt.“   

Formaður Framsýnar gestur á fjölmennum fundi

Verkalýðsmálaráð Samfylkingarinnar boðaði til fundar í morgun á Akureyri um atvinnu- og samgöngumál. Formaður Framsýnar, Aðalsteinn Árni Baldursson, var einn af þremur frummælendum á fundinum sem fór vel fram. Fullt var út úr dyrum.  Eftir framsögurnar var boðið upp á pallborðsumræður. Góðar umræður sköpuðust um málefni fundarins. Hér má lesa ræðu formanns Framsýnar.

Ágætu jafnaðarmenn

Í nútímasamfélagi eins og Íslandi verða samskiptatækni og samgöngur sífellt mikilvægari hluti lífsgæða og má fullyrða að samgöngur og þeir þættir sem undir þær falla, vegamál, fjarskipti, ferða-, flug- og siglingamál snerti líf okkar allra á degi hverjum.

Þegar við bætist mikil verðmætasköpun í formi útflutningsafurða og skýlaus krafa um alþjóðlega samkeppnishæfni í menntun, atvinnutækifærum sem og almennum gæðum, verða samgöngur og samskipti að mikilvægum hornsteinum sem við þurfum að hlúa að til framtíðar.

Höfum í huga að:

  • Greiðar samgöngur eru atvinnumál
  • Greiðar samgöngur eru heilbrigðismál
  • Greiðar samgöngur eru byggðamál
  • Greiðar samgöngur eru jafnréttismál
  • Greiðar samgöngur eru kjaramál (Svo eitthvað sé nefnt)

Því þarf ekki að koma sérstaklega á óvart að fyrir síðustu sveitarstjórnarkosningar 2020 kom fram í öllum helstu skoðanakönnunum meðal kjósenda að tryggar samgöngur væru eitt mikilvægasta mál kosninganna.

Áherslur kjósenda voru eðlilega misjafnar eftir búsetu varðandi almenningssamgöngur, viðhaldi vega eða þróun samgöngukerfisins.

Meðan íbúar á landsbyggðinni kölluðu almennt eftir betra vegakerfi og góðum flugsamgöngum innanlands mæltu kjósendur á höfuðborgarsvæðinu fyrir greiðari samgöngum innan svæðisins s.s. með lagningu borgarlínu.

Almenningssamgöngur hafa verið og verða áfram mikilvæg stoð byggðar í landinu enda ætlað að tengja þær saman og auka aðgengi og jafnræði íbúa að þjónustu burt séð frá búsetu.

Til framtíðar er mikilvægt að þjónustan styrkist og þróist í takt við breyttar þarfir og nýti sér um leið þá möguleika sem tækninýjungar fela í sér.

Aukin notkun og hlutdeild almenningssamgangna er að auki umhverfisvæn og stuðlar að því að markmið stjórnvalda í loftslagsmálum náist.

Íslendingar geta ekki setið á varamannabekknum og látið sig lofslagsmál engu varða er tengist ekki síst samgöngumálum. Ég nefni sem dæmi, við eigum ekki að láta útgerðir skemmtiferðaskipa sem heimsækja Ísland komast upp með að fylla firði landsins með menguðum útblæstri og státa að því á sama tíma að Ísland sé eitt hreinasta land í heimi. Er ekki eitthvað bogið við svona framsetningu?

Ágætu fundarmenn!

Umræðan um samgöngumál og mikilvægi þeirra er ekki alltaf á háu plani. Það er t.d. afar þreytandi fyrir mörg okkar sem höfum valið að búa á landsbyggðinni að heyra þingmenn, jafnvel ráðherra og „svokallaða“ sérfræðinga á samfélagsmiðlum tala endalaust um kjördæmapott detti einhverjum þingmanni/ráðherra það í hug að tala fyrir bættum vegasamgöngum utan höfuðborgarsvæðisins. Þetta virðist vera lenska, því miður.

Tökum dæmi; Hvenær heyrið þið t.d. almenning með póstnúmer utan Reykjavíkur tala um Sundabrautina eða borgarlínu sem kjördæmapott  þingmanna í 101 Reykjavík? Það er þrátt fyrir að framkvæmdirnar komi til með að kosta ríkissjóð tugi milljarða enda verði þær að veruleika.

Á móti nefni ég tvö þýðingarmikil samgöngumannvirki hér norðan heiða sem þegar hafa sannað sitt notagildi, það er Vaðlaheiðargöng annars vegar og Héðinsfjarðargöng hins vegar. Þeir sem öðrum fremur fóru fyrir þessum verkefnum voru, þingmennirnir og ráðherrarnir Steingrímur J. Sigfússon og Kristján L. Möller. Þeir ásamt fleirum sem fóru fyrir verkefninu hafa þurft að sitja undir árásum úr ýmsum áttum sem og íbúar á Norðurlandi. Talað hefur verið um spillingu og kjördæmapott.

Fyrir Alþingiskosningar þegar Vaðlaheiðargöng voru í burðarliðnum mátti til dæmis heyra þingmann úr Hafnarfirði, sem kenndur er við Viðreisn tala fyrir mislægum gatnamótum í Hafnarfirði á kostnað ríkissjóðs um leið og viðkomandi hnýtti í þá þingmenn sem hefðu komið Vaðlaheiðargöngum í farveg, það væri kjördæmapot á háu stigi.

Það átti hins vegar ekki við um þingmanninn sjálfan sem taldi rétt að Vegagerðin kæmi að myndarlegri uppbyggingu samgöngumannvirkja í Hafnarfirði.  Að sjálfsögðu átti ríkið að greiða kostnaðinn af framkvæmdinni að mati þingmannsins.

Nefna má annað dæmi tengt Vaðlaheiðargöngum; Félag íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB), taldi einnig ástæðu til að tala framkvæmdina niður sem féll í grýttan jarðveg hjá heimamönnum.

Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi, nú SSNE, gerðu alvarlegar athugasemdir við framgöngu FÍB í málinu með yfirlýsingu þar sem bent var á að verulegur hluti þjóðarframleiðslunnar kæmi frá byggðarlögum utan höfuðborgarsvæðisins og íbúum landbyggðarinnar þætti mikilvægt að njóta hluta afrakstursins. Í yfirlýsingunni voru forsvarsmenn FÍB jafnframt minntir á það, að af hverjum tveimur krónum, sem íbúar í Norðausturkjördæmi greiddu í skatta, léti nærri að aðeins ein króna skilaði sér aftur til baka í formi framlaga til nauðsynlegrar grunnþjónustu, vegaframkvæmda og annarra sameiginlegra þarfa. Þeirri krónu, sem yrði eftir á höfuðborgarsvæðinu, væri varið til þjónustu og uppbyggingar innviða á því svæði.

Framsýn stéttarfélag tók heilshugar undir samþykkt Eyþings/SSNE með ályktun og spurði hvort það væri ekki markmið FÍB að standa vörð um hagsmuni allra bifreiðaeigenda á Íslandi burt séð frá búsetu.

Ég kalla eftir viðhorfsbreytingu hvað þetta varðar. Það er að sjálfsögðu eðlilegt að menn hafi mismunandi skoðanir á samgöngumálum enda mikilvægur þáttur í lífi okkar allra en verum málefnaleg í umræðunni.

Meðan oddviti sjálfstæðismanna í Norðausturkjördæmi talar fyrir hálendisvegi milli landshluta og styttingu þjóðvegar 1 milli Akureyrar og Reykjavíkur tala ég sem formaður stéttarfélags í Þingeyjarsýslum fyrir bættum flugsamgöngum um Húsavíkurflugvöll og greiðari samgöngum frá Eyjafjarðarsvæðinu austur um land þar sem núverandi ástand vegakerfisins er langt frá því að vera viðunandi með hálfónýtum og úrsérgengnum einbreiðum brúm.

Þjóðvegurinn og tengibrautir þola ekki lengur ört vaxandi ferðaþjónustu og þungaflutninga enda dæmi um að búið sé að loka brúm á fjölförnum vegum fyrir þungaumferð.

Fyrir mér eru þetta allt mikilvægar samgöngubætur en við verðum að forgangsraða með þarfir íbúa og atvinnulífsins í huga á hverjum stað, það er með sanngjörnum og eðlilegum hætti.

Tökum höndum saman, gerum íbúum landsins jafnt undir höfði og byggjum upp skilvirkar og vistvænar almenningssamgöngur um allt land. Byggjum upp Borgarlínu á höfuðborgarsvæðinu með góðum tengingum við landsbyggðina ásamt Byggðalínu sem tengir vegakerfin saman líkt og æðakerfi líkamans. Greiðar samgöngur eru lykillinn að því að halda landinu í byggð.

Ágætu félagar!

Hvað vegakerfið varðar geri ég mér fulla grein fyrir því að það verður ekki byggt upp nema komi til vegatollar á ákveðnum leiðum sem síðan fjari út sbr. Hvalfjarðargöng. Þetta kerfi viðgengst víða erlendis.

Hins vegar geri ég þá kröfu að aðgengi að almennri þjónustu á vegum ríkisins verði gerð aðgengilegri fyrir þegna þessa lands sem oft á tíðum þurfa að ferðast um langan veg til að sækja sér m.a. heilbrigðisþjónustu, menntun og aðra þjónustu sem ekki er í boði í heimabyggð.

Liður í því er að bjóða upp á öflugar almenningssamgöngur með það að markmiði að það kosti ekki augun úr að ferðast milli landshluta, hvort heldur það er í lofti eða á þjóðvegum landsins.

Þá eru fyrirtækin á landsbyggðinni, mörg hver, að sligast undan stjarnfræðilega háum flutningskostnaði sem veikir samkeppnisstöðu þeirra verulega í samanburði við sambærileg fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu. Þungaskattur, skattar á eldsneyti og endalausar álögur á flutninga koma sér auk þess afar illa fyrir íbúa í hinum dreifðu byggðum landsins sem þurfa á aðföngum að halda.

Ég treysti Samfylkingunni til að taka á þessu máli enda væntanlega á leiðinni í næstu ríkisstjórn m.v. skoðanakannanir og umræðuna á vinnustöðum þar sem talað er fyrir breytingum á Alþingi.

Ég nefndi í upphafi að greiðar samgöngur vörðuðu meðal annars heilbrigðismál og kjaramál. Íbúar á landsbyggðinni hafa haft ákveðin skilning á hagræðingu í heilbrigðiskerfinu.

En því miður hafa þeir mátt taka sparnað ríkisins, sem þannig hefur sparast, á kassann. Það er þrátt fyrir loforð stjórnvalda um annað. Stjórnvöld lofuðu svokölluðum mótvægisaðgerðum til að mæta auknum kostnaði viðkomandi íbúa í skjóli hagræðingar stjórnvalda.

Ég nefni, skurðstofu HSN á Húsavík sem var lokað á sínum tíma og þar með fæðingardeildinni. Nú eru sjúklingar sendir til Akureyrar eða Reykjavíkur þurfi þeir á þessari þjónustu að halda með tilheyrandi óþægindum og kostnaðarauka fyrir íbúa á svæðinu. Sömu sögu er hægt að segja víða um land. Ég auglýsi eftir mótvægisaðgerðum stjórnvalda.

Ef marka má umræðuna innan Starfsgreinasambands Íslands um þessar mundir liggur fyrir að ein helsta krafa sambandsins í komandi kjaraviðræðum við Samtök atvinnulífsins og stjórnvöld verður að jafna aðgengi fólks að heilbrigðiskerfinu. Við getum ekki lengur horft upp á að láglaunafólk og öryrkjar þurfi að neita sér um læknisþjónustu vegna þess að þeir hafi ekki aðgengi eða efni á slíku.

Ég tek heilshugar undir með formanni Samfylkingarinnar sem hefur sagt.

Öryggi er tilfinning sem er mikils virði. Við höfum öll persónulega reynslu af heilbrigðiskerfinu. Þegar það virkar sem skyldi þá veitir það fólki öryggi. Og það er á okkar viðkvæmustu stundum sem reynir á — þegar eitthvað kemur upp á hjá okkur sjálfum eða fólkinu sem stendur okkur næst. Þá reynir á hvort við búum við sterka velferð.“

Um leið og ég þakka gott hljóð þá skulum við ekki gleyma því að Samfylkingin stendur fyrir jöfnuð og sterka velferð, látum verkin tala. Takk fyrir.

Samstöðufundur á Kvennafrídaginn: Húsavík-Raufarhöfn

Boðað er til allsherjar- og heilsdagsverkfalls kvenna þann 24. október nk. undir yfirskriftinni Kallarðu þetta jafnrétti ? Samtök launafólks ásamt fjölmörgum öðrum baráttusamtökum kvenna og hinsegin fólks standa að þessum degi í ár. Konur og kvár sem það geta eru hvött til að mæta ekki til vinnu þennan dag og sinna jafnframt ekki þeim störfum og ábyrgð sem felst í annarri og þriðju vaktinni.

Framsýn stéttarfélag skorar á félagsfólk sitt að leggja sitt af mörkum í baráttunni fyrir jafnrétti á þessum degi, en skorar einnig á fyrirtæki að sýna samstöðu í verki svo konur og kvár geti lagt niður störf þennan dag, án skerðingar á launum.

Kvennafrídagurinn 24. október var fyrst haldinn árið 1975 þegar um 90% kvenna á Íslandi lögðu niður störf til að sýna fram á mikilvægi vinnuframlags þeirra fyrir samfélagið. Þó margt hafi áunnist frá þessum tíma er markmiðinu er ekki náð og konur og karlar standa enn ekki jafnfætis á vinnumarkaði. Krafa þessa baráttudags í ár er að störf kvenna verði metin að verðleikum og að kynbundnu ofbeldi verði útrýmt.

Útifundir verða haldnir víða um land í tilefni dagsins. Stéttarfélögin Framsýn, Þingiðn og STH munu standa fyrir samstöðufundum á Húsavík, í húsnæði Stéttarfélaganna að Garðarsbraut 26 og í félagsheimilinu Hnitbjörgum Raufarhöfn á milli kl. 13:00 og 15:00. 

Framsýn bendir á að kvennaverkfallið er ekki verkfall eins og vinnulöggjöfin segir til um. Launafólk tekur þátt á eigin forsendum og hvetjum við konur og kvár að fá heimild hjá sínum yfirmanni til að taka þátt og berjast fyrir jafnrétti.

Heimasíða kvennafrídagsins

Kvennaverkfall 2023 – almennt hvatningarbref

Women’s Strike 2023 – a letter of encouragement to individuals

Strajk kobiet

Apel Participare la Greva Femeilor

Flugsamgöngur til umræðu á Húsavík í dag

Forsvarsmenn Flugfélagsins Ernis hafa fundað stíft með heimamönnum hér norðan heiða í dag. Fundað hefur verið með fulltrúum Framsýnar, Norðurþings, Þingeyjarsveitar, Húsavíkurstofu og Mývatnsstofu. Auk þess sem aðilar á svæðinu sem koma að byggða- og atvinnumálum hafa verið kallaðir til enda um mikið hagsmunamál að ræða.

Mikil vilji er til þess meðal heimamanna að tryggja flug til Húsavíkur í sessi með aðkomu stjórnvalda og í góðu samstarfi við Flugfélagið Erni.

Áfram verður unnið að málinu á næstu vikum og mánuðum enda verulega mikill þrýstingur meðal Þingeyinga að áætlunarfluginu verði fram haldið eftir áramótin.  Kallað hefur verið eftir stuðningi frá ríkinu og þá hefur verið skorað á þingmenn kjördæmisins að koma að málinu með beinum hætti.

Einar Leifsson fjármálastjóri og Einar Hermannsson sölu- og markaðsstjóri hjá Flugfélaginu Erni hafa setið á fundum með fulltrúum hagsmunasamtaka í Þingeyjarsýslum í dag, þar á meðal Aðalsteini Árna formanni Framsýnar. Umræðuefni, flugsamgöngur milli Húsavíkur og Reykjavíkur.

Samningsumboðið til SGS

Framsýn stéttarfélag hefur samþykkt að Starfsgreinasamband Íslands fari með samningsumboð félagsins í komandi kjaraviðræðum við Samtök atvinnulífsins og aðra viðsemjendur er tengist þeim kjarasamningum sem félagið á aðild að í gegnum sambandið og renna almennt út 31. janúar 2024. Kjarasamningarnir eru:

  • Heildarkjarasamningur SGS og SA
  • Kjarasamningur SGS og SA vegna veitinga-, gisti-, þjónustu-, og greiðasölustaða, afþreyingarfyrirtækja og hliðstæðrar starfsemi.
  • Kjarasamningur SGS og Landssambands smábátaeigenda og Samtaka smærri útgerða
  • Kjarasamningur SGS og Bændasamtaka Íslands
  • Kjarasamningur SGS og Landsvirkjunar
  • Kjarasamningur SGS og NPA miðstöðvarinnar

Þá liggur fyrir að fulltrúar Framsýnar munu verða virkir í kjaraviðræðum Starfsgreinasambandsins og Samtaka atvinnulífsins sem munu hefjast fyrir alvöru á allra næstu vikum.

Framúrskarandi nemendur á Laugum

Framhaldsskólinn á Laugum leitaði til Framsýnar með fyrirlestur um tilgang stéttarfélaga, staðgreiðslu skatta og lífeyrismál. Formaður félagsins, Aðalsteinn Árni, fór á staðinn í morgun og messaði yfir áhugasömum nemendum sem stunda nám við þennan frábæra skóla. Með í för var Kristján Ingi Jónsson starfsmaður stéttarfélaganna. Nemendur skólans sem koma víða að, enda heimavistarskóli, voru mjög áhugasamir um málefni fundarins en tæplega 40 nemendur hlustuðu á fyrirlesturinn. Eins og áður hefur komið fram eru stéttarfélögin ávallt reiðubúin að koma með fræðslu inn í skóla á félagssvæðinu og vinnustaði. Eitt símtal og við komum í heimsókn.

Gleði og hamingja á menningar- og hrútadögum á Raufarhöfn

Hinn árlegi Hrútadagur á Raufarhöfn var haldinn laugardaginn 7. október auk þess sem menningardagar á Raufarhöfn hafa staðið yfir síðustu daga.

Fyrir mörgum er Hrútadagurinn á Raufarhöfn ómissandi hluti af haustinu. Á það bæði við um íbúa svæðisins, en einnig eru dæmi um fólk, sem gerir sér gjarnan ferð landshorna á milli til að skoða hrútakostinn, sýna sig og sjá aðra.

Á Hrútadeginum var boðið upp á fjölbreytta skemmtidagskrá í reiðhöllinni. Um kvöldið voru síðan tónleikar með þekktum tónlistarmönnum. Um er að ræða framúrskarandi viðburð heimamanna.

Viltu skreppa í sumarbústað?

Sumarbústaður Framsýnar í Dranghólaskógi í Öxarfirði er laus til leigu fyrir félagsmenn í október, meðan veður leyfir. Hægt er að fá helgaleigu eða vikuleigu og jafnvel einstaka daga í miðri viku. Frekari upplýsingar eru í boði á Skrifstofu stéttarfélaganna.

Skrifað undir samkomulag við Fjallalamb

Rétt í þessu skrifuðu fulltrúar frá Framsýn stéttarfélagi og Fjallalambi hf. undir sérkjarasamning um kjör starfsmanna við sauðfjárslátrun haustið 2023. Samningurinn byggir á samningi aðila sem gilti í fyrra. Um 60 starfsmenn starfa við slátrun á vegum fyrirtækisins í haust. Vel gekk að ráða starfsmenn til starfa yfir sláturtíðina. Áætlað er að slátra um 24 þúsund fjár þetta haustið.

Ályktað um flugsamgöngur um Húsavíkurflugvöll

Stjórn Framsýnar kom saman til fundar í gær. Á fundinum urðu miklar umræður um flugsamgöngur og mikilvægi þess að þær verði áfram greiðar milli Húsavíkur og Reykjavíkur. Ákveðið var að álykta um málið:

„Um leið og Framsýn stéttarfélag fagnar því að samkomulag hafi náðst um áframhaldandi flug til Húsavíkur með aðkomu Vegagerðarinnar telur félagið afar mikilvægt að fundin verði varanleg leið til að tryggja flugsamgöngur milli Húsavíkur og Reykjavíkur í framtíðinni.

Samkvæmt yfirlýsingum frá Vegagerðinni og Flugfélaginu Erni hafa aðilar komist að samkomulagi um að tryggja flug til Húsavíkur fram að næstu áramótum, sem dugar skammt.

Fljótlega eftir að Flugfélagið Ernir hóf áætlunarflug til Húsavíkur árið 2012 gerði Framsýn samkomulag við flugfélagið um sérstök afsláttarkjör fyrir félagsmenn sem þyrftu að fljúga í einkaerindum milli landshluta, ekki síst vegna veikinda. Samstarfið hefur verið afar farsælt og þýðingarmikið fyrir báða aðila. Þess vegna ekki síst hefur Framsýn lagt mikla vinnu í að tryggja áframhaldandi flugsamgöngur við Þingeyjarsýslur. Á þeirri vegferð hefur m.a. verið fundað með ráðherrum, þingmönnum, sveitarstjórnarmönnum, SSNE og ferðaþjónustuaðilum í Þingeyjarsýslum.

Framsýn mun hér eftir sem hingað til berjast fyrir flugsamgöngum um Húsavíkurflugvöll og þakkar  þeim fjölmörgu aðilum sem sett hafa sig í samband við félagið síðustu daga og þakkað fyrir framlag þess í gegnum tíðina við að tryggja öruggar flugsamgöngur um Húsavíkurflugvöll. Fyrir það ber að þakka, enda er samstaða heimamanna lykillinn að því að ná eyrum fjárveitingavaldsins til að festa í sessi nútímasamgöngur milli landshluta.“

Stefán S. Stefánsson fallinn frá

Stefán Sigurður Stefánsson fyrrverandi formaður Starfsmannafélags Húsavíkur er fallinn frá. Útför hans fer fram frá Lindakirkju í Kópavogi, föstudaginn 6. október klukkan 13:00.

Stefán var formaður Starfsmannafélags Húsavíkur í rúmlega tvo áratugi, hann var mjög virkur í starfi auk þess sem hann var áberandi í starfi BSRB er viðkom kjarabaráttu félagsmanna og annarri réttindabaráttu. Hafi hann miklar þakkir fyrir vel unninn störf í þágu félagsmanna.

Stjórn félagsins og starfsfólk Skrifstofu stéttarfélaganna á Húsavík votta fjölskyldu Stefáns innilegrar samúðar. Blessuð sé minning hans.

Stjórnarfundur í Framsýn næstkomandi fimmtudag

Stjórnarfundur verður haldinn í Framsýn stéttarfélagi fimmtudaginn 5. október kl. 17:00 í fundarsal stéttarfélaganna. Fjölmörg mál eru á dagskrá fundarins.

Dagskrá:

1. Fundargerð síðasta fundar

2. Inntaka nýrra félaga

3. Flugsamgöngur Hús-Rvk

4. Fundur með fjármálaráðherra

5. Yfirlýsing Norðurþings um flugmál

6. Heimsókn frá stéttarfélagi innan SGS

7. Kjarasamningur SGS og SÍS/kynningarfundur-atkvæðagreiðsla

8. Starfsmannamál

9. Ályktun um samgöngumál

10. Heimsókn ríkissáttasemjara

11. Hrunabúð-framkvæmdir

12. LÍV-samningsumboð

13. Endurskoðun á stofnanasamningi HSN

14. Ritsafn- atvinnuhættir og menning

15. Þorrasalir-málningavinna

16. Formannafundur ASÍ

17. Staðan í kjaramálum SGS-SA

18. Önnur mál

Húsavíkurflugið á áætlun fram að áramótum

Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum hefur Vegagerðin samþykkt að koma að áætlunarfluginu til Húsavíkur, reyndar tímabundið, meðan unnið verði að frekari leiðum til að tryggja flug milli Húsavíkur og Reykjavíkur. Á vef Vegagerðarinnar má sjá eftirfarandi frétt.

„Flug til Húsvíkur verður styrkt næstu tvo mánuði á meðan að  framtíðarfyrirkomulag þeirra mála verður skoðað. Samkomulag hefur verið gert við flugfélagið Ernir að það fljúgi áfram til Húsavíkur fimm sinnum í viku. Flugfélagið hefur haldið uppi flugi til Húsavíkur sjö sinnum í viku án þess að það hafi verið styrkt. Nú hefur ríkið tekið ákvörðun um að styrkja fimm ferðir til Húsavíkur í október og nóvember meðan farið er yfir framtíðarfyrirkomulag flugsins.“

Fréttatilkynning.

Flugfélagið hefur bætt um betur og gefið út flugáætlun til Húsavíkur til áramóta enda klárist samningaviðræður við Vegagerðina á allra næstu dögum. Að sjálfsögðu fagnar Framsýn þessari niðurstöðu um leið og félagið mun gera allt til að vinna að því að flugsamgöngur við Húsavík verði tryggðar til frambúðar frá og með næstu áramótum. Framsýn hefur allt frá árinu 2012 komið að því með Flugfélaginu Erni að tryggja flugsamgöngur milli Húsavíkur og Reykjavíkur. Sú barátta mun halda áfram næstu mánuðina og árin. Þá er kallað eftir því að þingmenn kjördæmisins komi að þessari vinnu með heimamönnum.   

Metþátttaka á fræðsludögum starfsfólks

Óhætt er að segja að aðildarfélög Starfsgreinasambands Íslands séu rík af mannauði og frábæru starfsfólki sem nýtir reynslu sína og hæfni til að liðsinna félagsmönnum og greiða þeirra leið. Það sást berlega þegar tæplega 40 starfsmenn aðildarfélaga SGS komu nýverið saman á fræðsludögum SGS. Þátttaka á fræðsludögunum fór fram úr björtustu vonum og aldrei hafa fleiri starfsmenn sótt fræðsludagana.

Þau málefni sem tekin voru fyrir á fræðsludögunum að þessu sinni voru einkar fjölbreytt. Hæst ber að nefna umræðu um kjaramál, vinnustaðaeftirlitið, afgreiðslu sjóða, orlofshúsin, tölvukerfi félaganna, krefjandi samskipti og einnig var rætt um möguleika á frekari samvinnu milli félaga. Anna Steinsen frá KVAN hristi svo upp í hópnum með líflegu erindi um liðsheild og jákvæð samskipti sem féll í góðan jarðveg.

Þetta var í sjöunda sinn sem SGS stendur fyrir fræðsludögum af þessu tagi og hefur almenn ánægja ríkt með þennan vettvang sem gerir starfsfólki aðildarfélaganna kleift til að hittast, mynda tengsl og læra hvert af öðru. Jónína Hermannsdóttir og Agniesza Szczodrowska foru fulltrúar stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum og voru þær mjög ánægðar með fræðsludagana sem fram fóru í Keflavík.

Samningur Framsýnar og sveitarfélaganna samþykktur

Atkvæðagreiðslu um nýjan kjarasamning Starfsgreinasambands Íslands/Framsýnar og Sambands íslenskra sveitarfélaga er lokið. Niðurstöður liggja nú fyrir og var samningurinn samþykktur með rúmlega 78% þeirra sem greiddu atkvæði.

Atkvæðagreiðslan var rafræn og sameiginleg hjá 18 aðildarfélögum Starfsgreinasambandsins. Stóð hún yfir frá 14. til 26. september. Á kjörskrá voru 5.950 manns og var kjörsókn 14,62%. Já sögðu 684 eða 78,62%. Nei sögðu 144 eða 16,55%. 4,83% tóku ekki afstöðu. Niðurstöður atkvæðagreiðslu (PDF) 

Samningurinn gildir frá 1. október 2023 til 31. mars 2024 og tekur til allra félagsmanna aðildarfélaga SGS sem starfa hjá sveitarfélögum. Kjarasamninginn má nálgast hér.  

Eftirtalin félög eiga aðild að samningnum: AFL Starfsgreinafélag, Aldan stéttarfélag, Báran stéttarfélag, Drífandi stéttarfélag, Eining-Iðja, Framsýn stéttarfélag, Stéttarfélag Vesturlands, Stéttarfélagið Samstaða, Verkalýðsfélag Akraness, Verkalýðsfélag Grindavíkur, Verkalýðsfélagið Hlíf, Verkalýðsfélag Snæfellinga, Verkalýðsfélag Suðurlands, Verkalýðsfélag Vestfirðinga, Verkalýðs- og sjómannafélag Bolungarvíkur, Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur, Verkalýðs- og sjómannafélag Sandgerðis og Verkalýðsfélag Þórshafnar.

Vinsamlegur fundur með fjármálaráðherra

Aðalsteinn Árni formaður Framsýnar stéttarfélags gerði sér ferð til Reykjavíkur í gær til að funda með Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra um stöðu áætlunarflugs milli Húsavíkur og Reykjavíkur. Flugfélagið Ernir hefur boðað að óbreyttu, að hætta flugi milli þessara áfangastaða um næstu mánaðamót. Auk þess að funda með fjármálaráðherra tók formaður Framsýnar einnig fundi með stjórnendum flugfélagsins þar sem hann ítrekaði mikilvægi þess að fluginu verði viðhaldið enda töluverður uppgangur framundan í Þingeyjarsýslum auk þess sem fjölmargir einstaklingar nýta sér flugið sem þurfa á sérfræðiþjónustu og annarri þjónustu að halda á höfuðborgarsvæðinu sem og viðskiptaerindum. Áður hafði hann átt símafund með forsætisráðherra. Besta árið flugu um 20.000 farþegar milli Húsavíkur og Reykjavíkur, það var árið 2016. Að sögn Aðalsteins gengu fundirnir vel. Fundurinn með fjármálaráðherra í gær hefði bæði verið upplýsandi og gefandi fyrir báða aðila. Ráðherra hefði fullan skilning á mikilvægi þess að flugi verði viðhaldið til Húsavíkur enda mikilvæg samgönguæð. Reiknað er með að niðurstaða liggi fyrir í málinu í lok vikunnar, það er hvort stjórnvöld komi að því styðja við bakið á fluginu til Húsavíkur líkt og með aðra áfangastaði á Íslandi sem Vegargerðin hefur boðið út til minni áfangastaða á Íslandi. Óhætt er að segja að það verði mikið fundað um málið út vikuna og mörg símtöl tekin enda mikið áfall fyrir Þingeyinga og alla þá sem ferðast þurfa inn á svæðið, verði fluginu hætt um næstu mánaðamót. Það má einfaldlega ekki gerast.