Framsýn stóð fyrir opnum fundi um stöðu félagsfólks síns nú rétt í þessu. Á fundinum voru kynntar niðurstöður úr könnun Vörðu-Rannsóknastofnunar vinnumarkaðarins. Varða leggur árlega fyrir kannanir meðal launafólks í aðildarfélögum ASÍ og BSRB.
Framsýn óskaði eftir að staða þeirra félaga yrði greind sérstaklega. Niðurstöður könnunarinnar sýna að umtalsverður munur er á fjárhagsstöðu Framsýnarfélaga í samanburði við annað launafólk og er hún betri á öllum mælikvörðum sem notaðir voru í könnuninni. Lægra hlutfall félagsfólks Framsýnar en annars launafólks innan aðildarfélaga ASÍ og BSRB nær ekki endum saman, getur ekki mætt óvæntum útgjöldum, býr við skort eða verulegan skort á félags- og efnislegum gæðum auk þess sem lægra hlutfall metur byrði kostnaðar vegna húsnæðis, matarinnkaup og samgöngur þunga byrði. Að sama skapi er hærra hlutfall sem á sparnað, býr í eigin húsnæði og gæti mætt óvæntum 100 þúsund króna útgjöldum án þess að stofna til skuldar. Niðurstöðurnar sýna því að lægra hlutfall félagsfólks Framsýnar býr við bága fjárhagsstöðu en almennt sést meðal annars launafólks í heildarsamtökunum tveimur.
Með því að smella hér má skoða niðurstöður könnunarinnar. Hér má svo sjá glærukynninguna sem Varða notaði til að kynna niðurstöðurnar.