Stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum standa fyrir hátíðarhöldum 1. maí á Fosshótel Húsavík. Hátíðin hefst kl. 14:00. Boðið verður m.a. upp á veglegt kaffihlaðborð frá hótelinu, ávarp og hátíðarræðu auk þess sem heimamenn í bland við góða gesti munu sjá um að skemmta gestum með frábærum tónlistaratriðum. Meðal gesta verða Eyjólfur “Eyfi” Kristjánsson, Tónasmiðjan undir stjórn Elvars Braga, leikarar úr Leikfélagi Húsavíkur taka lög úr Rocky Horror og mæðgurnar Elísabet Anna og Eik syngja nokkur lög við undirleik Kristjáns E. Helgasonar. Frábær skemmtun framundan sem verður auglýst betur eftir helgina.

