Kjarasamningur sjómanna gildir frá 31. ágúst

Skrifstofu stéttarfélaganna hafa borist fyrirspurnir frá sjómönnum á smábátum varðandi gildistökuna á nýja samningnum sem samþykktur var í síðustu viku af sjómönnum og útgerðarmönnum á félagssvæði Framsýnar. Rétt er að taka fram að samningurinn gildir frá 31. ágúst og  ber útgerðarmönnum því að gera upp samkvæmt nýja samningnum frá þeim tíma hafi skiptakjörin verið lægri en í nýja samningnum. Read more „Kjarasamningur sjómanna gildir frá 31. ágúst“

Matarverð er á uppleið

Verð á kjöti, fiski og mjólkurvörum hækkar milli ára og nemur hækkunin allt að tugum prósenta. Svínakótelettur hafa hækkað um 27% á einu ári og rækja um 21%. Þetta kemur fram í tölum Hagstofu Íslands en þær sýna að verðið hefur í mörgum tilfellum hækkað langt umfram verðlagsþróun.  Aðalsteinn Á. Baldursson, formaður Framsýnar – stéttarfélags, segir marga eiga erfitt með framfærslu. „Því er reglulega haldið fram að láglaunafólk eigi fyrir verðhækkunum enda hafi kaupmátturinn aukist. Þetta er bara falskt. Launin eru í mörgum tilfellum svo lág að sífellt fleiri ráða ekki við hækkanirnar.“  Read more „Matarverð er á uppleið“

Samið fyrir smábátasjómenn

Kjarasamningur Framsýnar- stéttarfélags og Landssambands smábátaeigenda sem undirritaður var 31. ágúst 2012 hefur verið samþykktur meðal félagsmanna Framsýnar og útgerðarmanna í Þingeyjarsýslum. Talningu atkvæða lauk í hádeginu í dag. Samningurinn nær yfir þrjá útgerðarstaði, Húsavík, Kópasker og Raufarhöfn. Alls samþykktu 88% sjómanna innan Framsýnar samninginn. Meðal útgerðarmanna samþykktu 64% samninginn. Read more „Samið fyrir smábátasjómenn“

Kaskó á Húsavík með í verðkönnun ASÍ

Verslunin Iceland Engihjalla var oftast með lægsta verðið þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð í lágvöruverðsverslunum, stórmörkuðum og klukkubúðum víðsvegar um landið mánudaginn 1. október.  Flestar vörurnar sem skoðaðar voru í könnuninni voru fáanlegar hjá Fjarðarkaupum Hafnarfirði eða 94 af 99, Nóatún Nóatúni átti til 89 og Hagkaup Skeifunni átti til 83. Read more „Kaskó á Húsavík með í verðkönnun ASÍ“

Samið við Fjallalamb

Framsýn gekk í dag frá samningi við Fjallalamb hf. á Kópaskeri um kaup og kjör starfsmanna í sláturtíðinni í haust. Samningurinn gildir út sláturtíðina og verður endurskoðaður fyrir næsta haust. Aðalsteinn sagðist ánægður með samninginn fyrir hönd starfsmanna.

Einn góður fyrir helgina

Um leið og við óskum lesendum Heimasíðu stéttarfélaganna góðrar helgar kemur hér einn góður brandari til að hafa gaman af: Við hjónin lágum uppi í rúmi og horfðum á Villtu vinna milljón. Ég snéri mér að henni og sagði, “ Villtu gera do do ? “ Hún svaraði, “ Nei”. Ég spurði, “ Er þetta þitt loka svar” ? Hún leit ekki einu sinni á mig og svaraði “ Já” … svo ég sagði, “Þá langar mig að hringja í vin”… og þá varð allt vitlaust……

Vonbrigði með fjárfestingarform stjórnvalda

Miðstjórn Samiðnar sem Þingiðn á aðild að harmar að fjárfestingaráform ríkisstjórnarinnar í tengslum við gerð síðustu kjarasamninga hafi ekki gengið eftir og lítur á það sem brot á samkomulagi að enn sé dráttur á að framkvæmdir hefjist. Ályktun miðstjórnarfundar Samiðnar haldinn 24. og 25. september 2012 á Akureyri er svohljóðandi: Read more „Vonbrigði með fjárfestingarform stjórnvalda“

Gestir frá SGS í heimsókn

Stjórn og trúnaðarmannaráð Framsýnar fundaði í gær um fyrirliggjandi mál auk þess sem formaður félagsins Aðalsteinn Á. Baldursson fór yfir starfsemi félagsins í tilefni af heimsókn gesta frá Starfsgreinasambandi Íslands. Þau Drífa Snædal og Árni Steinar Stefánsson voru gestir félagsins en þau hófu nýlega störf hjá sambandinu, Drífa sem framkvæmdastjóri og Árni Steinar sem sérfræðingur. Read more „Gestir frá SGS í heimsókn“

Verðlaunahundur kallaður til

Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum hafa bændur í Þingeyjarsýslum unnið að því undanfarnar vikur að bjarga fé úr sjálfheldu og fön eftir óveðrið sem gekk yfir Norðurlandið í byrjun september. Veðrið hefur lagast töluvert frá þeim tíma og á hverjum degi finnast  kindur á lífi sem betur fer. Í gær fréttist meðal annars af tveimur lömbum sem voru komin niður fyrir snjólínuna á nokkuð öruggt svæði við Botnsvatnið sem liggur fyrir ofan Húsavík, það er í svokölluðum Krubbskálum. Read more „Verðlaunahundur kallaður til“

Samningur til umræðu

Sjómannadeild Framsýnar stóð fyrir kynningarfundi í gær um kjarasamning félagsins og Landssambands smábátasjómanna sem undirritaður var 31. ágúst. Atkvæðagreiðsla um samninginn er hafin og stendur til næsta mánudags. Rétt er að hvetja þá sjómenn sem ekki hafa þegar greitt atkvæði að gera það nú þegar. Hægt er að kjósa á Skrifstofu stéttarfélaganna.

Allt að gerast – matsáætlun í gangi

Nú stendur yfir kynning á drögum að tillögu að matsáætlun vegna fyrirhugaðrar 25 000 tonna kísilkarbíðverksmiðju Saint Gobain á Bakka við Húsavík. Drögin má nálgast hér . Kynningin stendur yfir til 4. október nk. Óskað er eftir að drög að tillögu að matsáætlun verði tekin til athugunar. Hægt er að koma ábendingum og athugasemdum á framfæri til Verkís, sendist á umhverfismal@verkis.is, eða í pósti, Verkís hf. b.t. Þórhildar Guðmundsdóttur, Ármúla 4, 108 Reykjavík. (nordurthing.is)

Starfsmenn SGS væntanlegir í heimsókn

Stjórn og trúnaðarmannaráð Framsýnar kemur saman til næsta fundar fimmtudaginn 27. september. Fundurinn hefst kl. 20:00 verður í fundarsal félagsins. Sérstakir gestir fundarins verða Drífa Snædal framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands  og Árni Steinar Stefánsson starfsmaður sambandsins. Þau voru bæði nýlega ráðin til sambandsins og hafa því ekki komið áður á fund með forsvarsmönnum Framsýnar- stéttarfélags. Þau eru boðin velkomin til Húsavíkur. Sjá dagskrá fundarins:  Read more „Starfsmenn SGS væntanlegir í heimsókn“

Fréttabréf í mótun

Ritstjóri, blaðamenn og ljósmyndarar Fréttabréfs stéttarfélaganna sem eru „fjölmargir“, enda málgagnið afar vandað og efnismikið eins og alþjóð veit, sitja nú við skriftir til að koma út Fréttabréfi í næstu viku. Í Fréttabréfinu verður fjallað um það helsta úr stafi stéttarfélaganna síðustu vikurnar. Ef það er einhver sem vill auglýsa eða koma á framfæri skemmtilegum myndum af vinnustöðum eða úr atvinnulífinu er þeim velkomið að hafa samband við Skrifstofu stéttarfélaganna. Fréttabréf stéttarfélaganna er málgagn vinnandi stétta í Þingeyjarsýslum.

Allir á völlinn!!!!

Á laugardaginn ræðst hvort karlalið Völsungs í knattspyrnu  kemst upp um deild. Sigri Völsungur eða geri jafntefli er liðið komið upp í 1. deild. Því er afar mikilvægt að bæjarbúar, nærsveitarmenn og allir stuðningsmenn liðsins um land allt styðji strákana til sigurs með því að leggja leið sína á völlinn.  Áfram Völsungur!!!

Read more „Allir á völlinn!!!!“

Smábátasjómenn ath.

Sjómannadeild Framsýnar boðar til fundar um kjarasamning félagsins og Landssambands smábátaeigenda sunnudaginn 23. september kl. 17:00 í fundarsal stéttarfélaganna. Í lok fundar hefst atkvæðagreiðsla um samninginn. Einnig verður hægt að kjósa á Skrifstofu stéttarfélaganna til 1. október 2012. Það er á skrifstofutíma 08:00:16:00. Rétt er að taka fram að fundurinn og atkvæðagreiðslan er aðeins fyrir þá sjómenn sem eru greiðendur til Framsýnar- stéttarfélags.