Viðræður við sveitarfélögin halda áfram

Framsýn hefur undanfarið átt í viðræðum við Samninganefnd sambands íslenskra sveitarfélaga um gerð kjarasamnings fyrir félagsmenn er starfa hjá sveitarfélögum í Þingeyjarsýslum og á Hvammi, heimili aldraðra. Samningsaðilar funduðu í gær og hafa ákveðið að halda viðræðum áfram á föstudaginn undir stjórn Ríkissáttasemjara. Read more „Viðræður við sveitarfélögin halda áfram“

Samningur í burðarliðnum fyrir beitningamenn

Fulltrúar Framsýnar funduðu í gær með forsvarsmönnum Landssambands smábátaeigenda um kjarasamning um ákvæðisvinnu við línu og net. Því miður tókust samningar ekki eins og menn höfðu reiknað með. Nú eru hins vegar allar líkur á því að skrifað verði undir kjarasamninginn á föstudaginn en hann er nú í yfirlestri hjá samningamönnum.

Framsýn vísar kjaradeilu við Bændasamtökin til Ríkissáttasemjara

Samninganefnd Framsýnar- stéttarfélags hefur samþykkt að vísa kjaradeilu félagsins og Bændasamtaka Íslands vegna landbúnaðarverkamanna til sáttameðferðar hjá Ríkissáttasemjara. Þess er vænst að sáttasemjari boði deiluaðila sem fyrst til fundar, ekki síst þar sem kjarasamningar hafa verið lausir í tæpa sjö mánuði. Fulltrúar Framsýnar munu fara yfir deiluna með Ríkissáttasemjara á morgun.

Viðræður í allan dag við sveitarfélögin

Samninganefnd Framsýnar hefur verið á fundi í dag með Samninganefnd sambands íslenskra sveitarfélaga. Viðræðurnar í dag gengu nokkuð vel og verður þeim haldið áfram á fimmtudaginn en dagurinn á morgun verður notaður í frekari undirbúningsvinnu þar sem skoða þarf tilboð Launanefndarinnar sem fulltrúar Framsýnar fengu í hendur í dag. Ríkissáttasemjari hefur boðað fulltrúa deilenda í hús kl. 10:30 á fimmudaginn.

Jónsvika- menningarviðburður í Kaldbak

Húsvíkingar og gestir athugið!

Jónsvika

Vinnuvika listamanna í Kaldbak, Húsavík, dagana 20. – 25. júní 2011.
Sýning á afrakstri vinnuvikunnar og tónleikar laugardaginn 25. júní frá 15.00 og fram eftir kvöldi. Allir hjartanlega velkomnir og er aðgangur ókeypis!
Framkvæmdafélag listamanna – FRAFL undirbýr nú vinnuviku 8 ungra ogupprennandi listamanna. Verkefnið er unnið í samstarfi við Úti á Túni –menningarhús á Húsavík, Grálist – samsýningarhópi ungra myndlistarmanna á Akureyri, Kaldbakskot – Cottages Guesthouses og Norðurþing. Ýmsir aðriraðilar koma að verkefninu og má þar helst nefna Norðursigling – NorthSailing Húsavík, Fosshótel Húsavík, Hveravellir, Þekkingarnet Þingeyinga og Silungseldið í Haukamýri. Read more „Jónsvika- menningarviðburður í Kaldbak“

Góð afsláttarkjör fyrir Framsýnarfélaga sem nota gleraugu

Framsýn hefur samið við Augað í Kringlunni, sem er ein af virtari gleraugnabúðum landsins, um góð afsláttarkjör fyrir félagsmenn, það er 15%. Félagsmenn sem vilja nýta sér kjörin eru beðnir um að setja sig í samband við Skrifstofu stéttarfélaganna. Þar fá þeir staðfestingu á því að þeir séu félagsmenn sem þeir framvísa svo þegar þeir kaupa gleraugun.Til viðbótar eiga svo félagsmenn rétt á gleraugnastyrk frá Framsýn.

Úrslitastund næsta Þriðjudag í kjaradeilu við sveitarfélögin

Fundur hefur verið boðaður í kjaradeilu Framsýnar og Samninganefndar sambands íslenskra sveitarfélaga vegna starfsmanna sveitarfélaga í Þingeyjarsýslum næstkomandi þriðjudag. Fundurinn verður hjá Ríkissáttasemjara á hefst um morguninn. Aðalsteinn formaður Framsýnar telur fundinn vera mjög mikilvægan. Takist ekki að semja hljóti menn að skoða hvort ekki sé ástæða til að boða til verkfallsaðgerða. Read more „Úrslitastund næsta Þriðjudag í kjaradeilu við sveitarfélögin“

Viðræður við LS gengu vel í dag

Það gengur mikið á í samningaviðræðum um þessar mundir  eins og fylgjast má með hér á heimasíðunni.  Í dag funduðu fulltrúar Framsýnar ásamt Samninganefnd SGS með fulltrúum Landssambands smábátaeigenda um kaup og kjör starfsmanna við ákvæðisvinnu við línu og net. Fundurinn fór fram í Reykjavík. Viðræður gengu vel og ákveðið var að koma saman aftur til fundar í næstu viku. Read more „Viðræður við LS gengu vel í dag“

Látum ekki bjóða okkur þetta – fundað með sveitarstjórum

Framsýn hefur óskað eftir fundi næsta mánudag með sveitarstjórum á félagssvæðinu til að fara yfir gang kjaraviðræðna við Samninganefnd sambands íslenskra sveitarfélaga en sambandið sér um samningagerð fyrir sveitarfélögin. Þá hefur Framsýn einnig boðað til félagsfundar meðal starfsmanna sveitarfélaganna kl. 18:00 næstkomandi mánudag í fundarsal félagsins. Read more „Látum ekki bjóða okkur þetta – fundað með sveitarstjórum“

Framsýn boðar til félagsfundar með starfsmönnum sveitarfélaga

Framsýn boðar félagsmenn sem jafnframt eru starfsmenn hjá sveitarfélögum og Hvammi til fundar í fundarsal félagsins mánudaginn 20.  júní kl. 18:00. 

Fundarefni: Staða kjaraviðræðna við Launanefnd sveitarfélaga og af hverju Framsýn gengur ekki að tilboði sveitarfélaganna um launahækkanir.

Mikilvægt er að félagsmenn sem eru starfandi hjá sveitarfélögum komi á fundinn og kynni sér stöðu mála.

 Framsýn- stéttarfélag

Viðræður um endurskoðun á kjarasamningi starfsmanna í landbúnaði

Fulltrúar Framsýnar munu halda kjaraviðræðum áfram á morgun, þriðjudag. Boðað hefur verið til samningafundar kl. 13:00 í Reykjavík. Fulltrúar Framsýnar og Starfsgreinasambands Íslands munu þá funda með forsvarsmönnum bænda um endurskoðun á kjarasamningi er varðar landbúnaðarverkamenn. Vonir eru bundnar við að viðræðurnar klárist á næstu dögum með samningi.

Haukur Tryggvason jarðsungin í dag

Útför Hauks Tryggvasonar fór fram frá Húsavíkurkirkju í dag. Það voru félagar hans í Framsýn sem báru kistuna úr kirkjunni.  Þá var fáni Framsýnar einnig hafður í kirkjunni að ósk Hauks sem starfaði í trúnaðarmannaráði auk þess að vera í stjórn sjúkrasjóðs félagsins.  Haukur var góður drengur og starfaði vel fyrir Framsýn, hans verður sárt saknað. Félagsmenn Framsýnar votta Sigrúnu Kjartansdóttur og fjölskyldu innilegrar samúðar. Sjá minningargrein eftir formann Framsýnar, Aðalstein Á. Baldursson. Read more „Haukur Tryggvason jarðsungin í dag“