Forseti Alþýðusambands Íslands, Gylfi Arnbjörnsson, gerði sér ferð til Húsavíkur fyrir helgina þar sem hann fundaði með fulltrúum Framsýnar, Þingiðnar og Verkalýðsfélags Þórshafnar um kjaramál, lífeyrissjóðsmál og væntanlegt þing sambandsins í haust en það verður haldið í Reykjavík um miðjan október. Gylfi kom víða við í sinni yfirferð og sagði forsendur kjarasamninga m.a. í hættu. Að venju urðu fjörugar umræður á fundinum og voru skoðanir skiptar.Setið á fundi með forseta ASÍ. Fundarmenn komu á framfæri mörgum athugsemdum og ábendingum við Gylfa.