Góður félagi kveður Húsavík

Tomasz Mayewski sem verið hefur trúnaðarmaður starfsmanna PCC á Bakka fyrir hönd Framsýnar og sem missti vinnuna líkt og flestir aðrir starfsmenn þegar fyrirtækið hætti framleiðslu á síðasta ári kom við á Skrifstofu stéttarfélaganna fyrir helgi til að kveðja. Eins og áður hefur komið fram kynnti PCC BakkiSilicon hf. áform sín um tímabundna rekstrarstöðvun hjá PCC á Bakka frá miðjum júlí 2025. Ákvörðunin var tekin vegna erfiðleika á mörkuðum fyrir kísilmálm og raskana á alþjóðamörkuðum í kjölfar tollastríðs. Fyrrverandi starfsmenn hafa haldið í vonina að starfsemin væri á stað en því miður verður einhver bið á því þar sem markaðir fyrir kísilmálm eru áfram veikir og þá auðveldar það ekki fyrirtækinu að Ísland er með fríverslunarsamning við Kína. Tomaszi sem hefur líkað mjög vel á Húsavík hafði vonast til að geta hafið störf hjá fyrirtækinu aftur en biðin tekur á svo hann hefur ákveðið að flytjast búferlum aftur heim til Póllands þar sem hann hefur þegar fengið vinnu. Eitt af hans síðustu verkum var að koma við á Skrifstofu stéttarfélaganna og kveðja starfsmenn félaganna áður en hann hélt suður til Keflavíkur í flug fyrir helgina. Tomaszi eru þökkuð vel unnin störf í þágu starfsmanna PCC þau sex ár sem hann hefur starfað hjá fyrirtækinu.

Deila á