Það er full ástæða til að þakka fyrir fallegar og hlýjar kveðjur í minn garð á afmælisdaginn sem er í dag. Dæmi eru um að menn hafi komið við á Skrifstofu stéttarfélaganna og kastað kveðju á formanninn auk þess að syngja afmælissönginn á allskonar tungumálum. Hér má sjá höfðingjann, Sipos Szabó Tibor, frá Ungverjalandi sem leit við með tertu úr Gilinu sem er besta brauðgerðarhúsið á Íslandi. Rétt er að taka skýrt fram að ekki er um merkisafmæli að ræða. Kærar þakkir, Aðalsteinn Árni.