Stjórn og trúnaðarráð Framsýnar fundaði á dögunum um stöðuna í kjaramálum nú þegar forsendur kjarasamninga eru brostnar. Eins og staðan er í dag verður kjarasamningum sagt upp í október nema til komi útspil frá stjórnvöldum, sveitarfélögum, fyrirtækjum og verslunar- og þjónustuaðilum. Framsýn hefur með bréfi til Norðurþings, Þingeyjarsveitar og Tjörneshrepps skorað á sveitarfélögin að halda almennum gjaldskrárhækkunum í lágmarki og tryggja þannig velferð íbúa sveitarfélagsins. Það eigi einnig við um hækkanir hjá fyrirtækjum í eigu sveitarfélaga nú þegar gefur á í efnahagslífinu og verðbólgan hækkar og hækkar milli mánaða svo ekki sé talað um aukna vaxtabyrði fólks af húsnæðislánum. Að mati Framsýnar er afar mikilvægt að hagsmunaaðilar hafi í huga að allir bera ábyrgð á stöðunni. Ekki síst stjórnvöld, sveitarfélög, fyrirtæki, þjónustuaðilar og verkalýðshreyfinginn. Þessum hagsmunaaðilum er ekki síst ætlað að tryggja stöðugleika í þjóðfélaginu öllum til hagsbóta. Framsýn skorast ekki undan þeirri ábyrgð enda kjarasamningarnir í uppnámi.