Starfsmenn stéttarfélaganna, Sjóvá, Sparisjóðs Þingeyinga, Enor og Virk standa að Starfsmannafélaginu Dúdda en þau eru öll til heimils að Garðarsbraut 26, það er í húsnæði stéttarfélaganna. Félagið stendur reglulega fyrir skemmtilegum hittingi. Nú var komið að því að fara í Golfherminn hjá Golfklúbbi Húsavíkur fyrir helgina. Óhætt er að segja að það hafi verið mikið stuð og mikið hlegið. Myndirnar tala sínu máli.





