Málefni Landsmenntar til umræðu

Stjórn og starfsmenn Starfsmenntasjóðsins Landsmenntar komu saman á stefnumótunarfundi í Reykjavík í gær. Markmiðið var að fara yfir starfsemi sjóðsins frá stofnun hans árið 2000 til dagsins í dag og rýna jafnframt í framtíðina þegar svo virðist vera sem gervigreindin sé að ná ákveðnum yfirtökum á íslenskum vinnumarkaði. Stjórnin er skipuð sex stjórnarmönnum, þremur frá Samtökum atvinnulífsins og þremur frá Starfsgreinasambandi Íslands. Þá starfa tveir starfsmenn hjá sjóðnum. Stjórnarformaður sjóðsins er Aðalsteinn Árni Baldursson en hann hefur ásamt Hjördísi Þóru formanni Afls, starfsgreinafélags setið í stjórn sjóðsins frá upphafi. Varaformaður sjóðsins kemur frá Samtökum atvinnulífsins, Maj-Britt Hjördís Briem lögfræðingur. Sjóðurinn gegnir gríðarlega mikilvægu hlutverki á íslenskum vinnumarkaði, hvað varðar einstaklingsstyrki til verkafólks og styrkja til fyrirtækja innan SA. Til fróðleiks má geta þess að árið 2025 voru samþykktir 3.098 einstaklingsstyrkir til félagsmanna aðildarfélaga Starfsgreinasambandsins sem Framsýn á aðild að fyrir sína félagsmenn. Flestir styrkjanna voru á bilinu 50.000 -129.000. Hámarksstyrkur til félagsmanna á ári eru kr. 180.000. Heildarupphæð einstaklingsstyrkja á síðasta ári var 257,6 m.kr. Árið 2025 voru samþykktar 100,5 m.kr. í fyrirtækjastyrki. Samþykktar umsóknar fyrirtækja 526. Í heildina greiddi sjóðurinn um 358 m.kr. á árinu 2025, það er til fyrirtækja og einstaklinga sem eru með aðild að sjóðnum.  Landsmennt er fjármagnað með framlögum frá atvinnurekendum sem greiða 0,30% af launum starfsmanna til sjóðsins. Á árinu 2025 námu framlög fyrirtækja í sjóðinn um 442 m.kr.

Maj-Britt Hjördís Briem er hér að messa yfir liðinu á góðum og málefnalegum fundi Landsmenntar um starfsmenntamál á íslenskum vinnumarkaði. Framtíðin er björt.
Deila á