Á morgun, laugardaginn 11. júlí, opnar nýtt bakarí á Húsavík í gömlu og virðulegu húsnæði sem á sér merkilega sögu. Samkvæmt mjög svo áreiðanlegum heimildum verður það opnað formlega kl. 12:00. Um er að ræða mikil gleðitíðindi. Full ástæða er til að óska eigendum brauðgerðarhússins til hamingju með opnuninna um leið og skorað er á landsmenn alla að versla sem mest í þessu magnaða bakaríi eigi þeir leið um Húsavík. Við skálum fyrir því.