Undanfarnar vikur og mánuði hefur verið unnið að því að standsetja nýtt bakarí á Húsavík sem er mikið gleðiefni enda ekki verið bakarí á staðnum í nokkur ár eða síðan Heimabakarí lokaði. Formaður Framsýnar leit við í verðandi bakaríi í morgun. Þar voru við störf miklir snillingar og gleðigjafar sem gáfu sér smá tíma til að taka stöðuna með gestinum frá stéttarfélaginu. Það voru þeir Ragnar, Villi, Geir og Friðrik Marinó sem jafnframt verður yfirbakari í þessu heimilislega brauðgerðarhúsi. Þessa dagana er verið að leggja lokahönd á verkið og reiknað er með að bakaríið verði opnað á allra næstu dögum. Tímasetningin hefur ekki verið gefin út en von er á henni fljótlega, það er eftir að búið verður að taka aðstöðuna út.