Ný vorskýrsla Kjaratölfræðinefndar, þar sem fjallað er þróun efnahagsmála og launa, vinnumarkaðsmál og kjarasamninga, var kynnt nýlega í húsnæði Ríkissáttasemjara.
Í tilkynningu nefndarinnar um útgáfuna segir:
Í nýrri skýrslu kjaratölfræðinefndar er fjallað um þróun efnahagsmála og launa, vinnumarkaðsmál og kjarasamninga. Nýtt í skýrslunni að þessu sinni er tölfræði um launabreytingar eftir launastigi, skipt eftir mörkuðum og heildarsamtökum launafólks. Þá er þróun efnahagsmála borin saman við efnahagshorfur í aðdraganda kjarasamningslotunnar.
Yfirstandandi kjarasamningslota hófst í mars 2024 og hafa um 260 kjarasamningar nú verið undirritaðir fyrir allflest launafólk bæði á almennum og opinberum vinnumarkaði. Óloknir samningar eru fáir og ná til um 1% launafólks.
Sundurliðuð gögn KTN um launaþróun eftir mörkuðum liggja fyrir frá upphafi núverandi lotu, þ.e. frá febrúar 2024, til janúar 2026. Á tímabilinu komu þrjár samningsbundnar launahækkanir til framkvæmda á almenna markaðnum en tvær á hinum opinbera. Grunntímakaup á almennum markaði hækkaði um 17,0% á tímabilinu, hjá ríki um 14,8%, hjá Reykjavíkurborg um 13,8% og hjá sveitarfélögum utan Reykjavíkur um 15,3%. Að teknu tilliti til verðlagsþróunar á tímabilinu jókst kaupmáttur grunntímakaups um 7,8% á almennum vinnumarkaði, um 5,7% hjá ríki, 4,8% hjá Reykjavíkurborg jókst og um 6,1% hjá sveitarfélögum utan Reykjavíkur.
Í kjarasamningum var almennt samið til fjögurra ára og farin blönduð leið krónutölu- og prósentuhækkana. Samningsbundnar launahækkanir eru því hlutfallslega mestar á lægri laun, en samningar Kennarasambands Íslands við ríki og sveitarfélög voru frábrugðnir öðrum samningum vegna áherslu á virðismat.
Sjá frekar frétt: https://asi.is/vorskyrsla-kjaratolfraedinefndar-2026-kynnt/