Heilbrigðisráðherra hefur tilkynnt um 100% hækkun á komugjaldi sjúklinga í heilsugæslu þann 1. ágúst n.k. til að mæta vaxandi kostnaði við þjónustuna samfara lýðfræðilegum breytingum. Aldraðir, öryrkjar og börn greiða eftir sem áður ekkert komugjald. Auk þessa verður þann 1. september tekið upp sérstakt komugjald fyrir sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun og talþjálfun sem verður utan við greiðsluþátttökukerfi heilbrigðisþjónustunnar og kemur því til viðbótar þeirri hámarksupphæð sem sjúklingar greiða fyrir þá heilbrigðisþjónustu sem fellur innan kerfisins. Lesa frekar: https://asi.is/haekkun-komugjalda-i-heilbrigdisthjonustunni-vond-skilabod-til-launfolks/