Starfsmannafélag Húsavíkur kom færandi hendi og færði Leikskólanum Grænuvöllum veglega gjöf sem ætlað er að styðja fjölbreytt nám hjá börnum á leikskólaaldri. Þess má geta að Leikskólinn Grænuvellir vann innleiðingaráætlun í STEM kennslu leikskólabarna í þróunarverkefni í samvinnu við STEM Húsavík. STEM-leikur með kubbum (byggingarkubbum, segulkubbum, LEGO o.fl.) styður mjög fjölbreytt nám hjá börnum á leikskólaaldri, eins til sex ára. Í heild sinni er STEM-kubbaleikur ein af fjölbreyttustu námsaðferðum leikskólaaldursins þar sem börn þróa samtímis vísindalega hugsun, stærðfræðiskilning, verkfræðilega færni, málþroska, félagsfærni og skapandi hugsun í gegnum leik. Auk upptalinna þátta styður leikur með kubbana alhliðaþroska barnanna.
Gjöf Starfsmannafélags Húsavíkur fellst í kaupum á þessum þroskandi kubbum sem styður við innleiðingaráætlun í STEM kennslu leikskólabarna. Fjármagnið kemur úr Starfsmenntasjóði Starfsmannafélags Húsavíkur sem sveitarfélagið Norðurþing greiðir í af starfsmönnum sveitarfélagsins. Sigríður Valdís Sæbjörnsdóttir skólastjóri Grænuvalla tók við gjöfinni og þakkaði vel fyrir hlýhug STH í garð skólans. Velvilji sem þessi frá félagasamtökum skipti verulega miklu máli fyrir skólastarfið. Með henni á myndinni er Hermína Hreiðarsdóttir formaður Starfsmannafélags Húsavíkur.