Gleði í sumarkaffi Framsýnar

Að venju stóð Framsýn fyrir sumarkaffi á Raufarhöfn síðasta föstudag fyrir Sjómannadaginn. Tæplega 100 gestir komu við í félagsheimilinu þar sem biðu þeirra veglegar tertur frá Kvenfélagi Raufarhafnar. Forsvarsmenn Framsýnar voru á staðnum og tóku vel á móti öllum þeim sem lögðu leið sína í kaffiboðið auk þess sem gestunum gafst tækifæri á að ræða við forsvarsmenn Framsýnar um allt milli himins og jarðar. Það voru þau Aðalsteinn Árni, Ósk, Aga og Nanna Steina sem sáu til þess að allt færi vel fram. Meðfylgjandi eru myndir frá kaffiboðinu sem var ánægjulegt í alla staði. Kvenfélag Raufarhafnar fær sérstakar þakkir fyrir terturnar  sem og forsvarsmenn Hnitbjarga fyrir lánið á félagsheimilinu.

Deila á