Við erum tvær úr tungunum…

Nei, þessar tvær eru ekki úr tungunum. Þær eru hins vegar báðar búsettar í og við Raufarhöfn. Þetta eru þær Nanna Steina Höskuldsdóttir og Guðný Hrund Karlsdóttir sem báðar starfa í þágu Framsýnar stéttarfélags. Nanna Steina er í aðalstjórn Framsýnar og Guðný Hrund situr í stjórn Lsj. Stapa fyrir hönd Framsýnar og þeirra stéttarfélaga sem aðild eiga að sjóðnum í Þingeyjarsýslum sem eru Þingiðn og Verkalýðsfélag Þórshafnar. Frábærar og kraftmiklar konur í alla staði. Myndin er tekin á dögunum þegar forystumenn Framsýnar voru á ferðinni á Raufarhöfn.

Deila á