Á aðalfundi Framsýnar var Jakob Gunnar Hjaltalín hylltur fyrir vel unninn störf í þágu félagsins, sem formaður Sjómannadeildar félagsins og sem stjórnarmaður í aðalstjórn félagsins. Hann hætti sem formaður deildarinnar í lok síðasta árs og í aðalstjórn Framsýnar á aðalfundinum. Jakob þakkaði vel fyrir sig, það hefði verið mjög svo gefandi að starfa fyrir félagið í tæpa fjóra áratugi með frábæru fólki. Hann endurtók þakklæti sitt til félagsins og stjórnenda þess. Klappað var vel og lengi fyrir Jakobi enda þjónað Framsýn í nokkra áratugi, geri aðrir betur.
