Á aðalfundinum stóð Jónas A. Sævarsson upp undir liðnum „Önnur mál“ og þakkaði starfsmönnum og forsvarsmönnum félagsins fyrir vel unninn störf í þágu Framsýnar. Undir það tóku aðrir fundarmenn. Guðný I. Grímsdóttir notaði einnig tækifærið og sagði afar mikilvægt fyrir félag eins og Framsýn að hafa öflugan varaformann, Ósk Helgadóttir. Fundarmenn stóðu upp og klöppuðu fyrir starfsmönnum og forsvarsmönnum félagsins um leið og Ósk kallaði starfsmenn stéttarfélaganna upp og færði þeim blóm frá félagsmönnum fyrir vel unninn störf í þágu félagsins. Formaður þakkaði hlýhug fundarmanna í garð starfsmanna sem þau kynnu vel að meta enda krefjandi að starfa að verkalýðsmálum. Við látum þar með lokið umfjöllun um aðalfund félagsins fyrir árið 2025.