Á aðalfundi Framsýnar var samþykkt að félagið nýti sér forkaupsrétt á kaupum á auknu stofnfé í Sparisjóði Þingeyinga. Tillaga þess efnis lág fyrir fundinum. Samþykkt var samhljóða með öllum atkvæðum að kaupa fyrir kr. 3,3 milljónir enda um að ræða góða fjárfestingu að mati fundarins sem styður jafnframt við samfélagið í Þingeyjarsýslum sem veitir ekki af um þessar mundir. Ganga þurfti frá kaupunum fyrir 3. júní vegna ákvæða um forkaupsrétt sem aðalfundur Sparisjóðsins setti nýverið. Formanni og fjármálastjóra var falið að ganga frá kaupunum fyrir tilsettan frest. Áður hafði Þingiðn samþykkt að kaupa aukið stofnfé upp á kr. 700.000,-.