Eitt öflugasta stéttarfélag landsins

Eins og fram kemur í ársskýrslu Framsýnar sem lögð var fyrir aðalfundinn stendur stéttarfélagið Framsýn mjög sterkt og hefur reyndar gert til fjölda ára. Styrkur félagsins kemur ekki síst fram í góðri þjónustu við félagsmenn, góðu aðgengi að sjóðum félagsins, öflugum starfsmenntastyrkjum og öðru því sem er í boði á vegum félagsins á hverjum tíma s.s. orlofshúsum og orlofsíbúðum. Aðkoma félagsmanna að þessari þjónustu og styrkjum færir félagsmönnum á hverju ári milljóna tugi. Það er góð kjarabót að vera félagsmaður í stéttarfélagi eins og Framsýn. Því fylgir einnig mikið öryggi. Í starfi stéttarfélaga er mikilvægt að sinna góðu upplýsingastreymi til félagsmanna. Framsýn verður ekki sakað um að sinna því ekki. Félagið heldur úti heimasíðu og gefur reglulega út Fréttabréf stéttarfélaganna sem ætlað er að miðla upplýsingum til félagsmanna um réttindi þeirra og fréttir af starfseminni sem sjaldan eða aldrei hefur verið eins öflug og um þessar mundir. Þá hefur félagið gefið út bæklinga um kjör og réttindi einstakra starfshópa innan félagsins s.s. fyrir starfsmenn í ferðaþjónustu og hvað varðar almenn réttindi félagsmanna úr sjóðum félagsins. Hvernig byggja menn upp öflugt stéttarfélag til að ná fram þessum markmiðum? Það gera menn með virkum félagsmönnum, hæfu starfsfólki og öflugri stjórn, trúnaðarráði, trúnaðarmönnum á vinnustöðum og ungliðastarfi í gegnum Framsýn-ung. Fólki sem er tilbúið að takast á við krefjandi störf félagsins á hverjum tíma og gefa allt í starfið. Það er ekki dagvinna að reka stéttarfélag svo vel fari. Þess í stað verða menn að standa vaktina í 24 tíma á sólarhring. Höfum í huga að það er ekki sjálfgefið að eiga aðild að öflugu stéttarfélagi, einu öflugasta stéttarfélagi innan Starfsgreinasambands Íslands svo vitnað sé í kannanir sem gerðar hafa verið um viðhorf fólks til stéttarfélaga.

Deila á