Sólveig Anna Jónsdóttir, fyrrverandi formaður Eflingar, náði kjöri sem formaður Eflingar á ný sem ber að fagna sérstaklega.
Það varð ljóst þegar úrslit úr stjórnarkjöri Eflingar voru tilkynnt í gærkvöldi. B-listinn sem Sólveig fór fyrir hlaut flest atkvæði.
Sólveig Anna mun taka við af Agnieszku Ewa Ziółkowska, settum formanni, á aðalfundi félagsins sem væntanlega verður haldinn í apríl samkvæmt því sem komið hefur fram í fjölmiðlum.
Þrír listar buðu fram í stjórnarkjörinu; A-listi – Eflingarlistinn og var Ólöf Helga Adolfsdóttir oddviti hans, B-listi – Baráttulistinn sem Sólveig Anna veitti forystu og C-listi – sem Guðmundur Jónatan Baldursson fór fyrir.
Á kjörskrá voru 25.841 en 3.900 manns (15,09 prósent) greiddu atkvæði. Þau féllu svona:
A-listi: 1434 atkvæði, 36,77 prósent,
B-listi: 2042 atkvæði, 52,49 prósent,
C-listi: 331 atkvæði, 8,49 prósent,
88 tóku ekki afstöðu.
Meðfylgjandi þessari frétt er mynd af Sólveigu Önnu þegar hún var á fundi á vegum Starfsgreinasambands Íslands í Mývatnssveit. Með henni á myndinni er góður frændi hennar, sjálfur Þorlákur P. Jónsson.