Stjórn Sjúkrasjóðs Framsýnar kom saman til fundar fyrir áramótin til að úthluta úr sjóðnum til félagsmanna vegna umsókna um styrkveitingar fyrir desember. Samtals fengu félagsmenn greiddar um 7,7 milljónir í styrki fyrir síðasta mánuð ársins. Stjórnin kemur saman mánaðarlega og tekur fyrir umsóknir félagsmanna um sjúkaradagpeninga vegna veikinda og annarra styrkja s.s. vegna sálfræðikostnaðar, líkamsræktar og sjúkraþjálfunar. Í heildina fengu félagsmenn Framsýnar greiddar um 68 milljónir í styrki á árinu 2020 sem er í hærra lagi sé tekið mið af meðaltals styrkveitingum síðustu ára. Sem betur fer er Framsýn fjárhagslega sterkt stéttarfélag og hefur því burði til að styðja vel við bakið á félagsmönnum í þeirra veikindum og heilsurækt.