Aðildarfélög Sjómannasambands Íslands hafa ákveðið að viðhafa sameiginlega atkvæðagreiðslu um nýgerðann kjarasamning sambandsins við Landsamband smábátasjómanna og Samtök smærri útgerða. Kjarasamningurinn var undirritaður 13. nóvember. Framsýn á aðild að samningnum fyrir sína félagsmenn sem starfa á smábátum. Framsýn mun bjóða félagsmönnum, sem eru á kjörskrá, að greiða atkvæði um samninginn rafrænt á heimasíðu félagsins. Kjörgögn munu berast félagsmönnum á næstu dögum.
Stefnt er á að atkvæðagreiðsla um samninginn hefjist föstudaginn 20. nóvember kl. 12:00 og að henni ljúki mánudaginn 30. nóvember kl. 16:00. Þeir sjómenn sem telja sig hafa kjörgengi, en fá ekki kjörgögn í netpósti er velkomið að hafa samband við Skrifstofu stéttarfélaganna. Jafnframt er hægt að senda fyrirspurnir varðandi kjarasamninginn á netfangið kuti@framsyn.is. Óski sjómenn eftir því að fá kynningu á samningnum verður orðið við því að sjálfsögðu.