Yfir 30 þúsund manns hafa sótt um hlutabætur vegna minnkaðs starfshlutfalls. Þetta kemur fram í tölum frá Vinnumálastofnun. Flestar eru umsóknirnar úr ferðaþjónustu en yfir 12 þúsund starfsmenn í greininni hafa sótt um bætur. Úr verslun og vöruflutningum hafa yfir 6 þúsund umsóknir hafa borist.
Dreifing umsækjenda milli landshluta er að mestu í samræmi við dreifingu starfandi fólks í landinu. Fjöldi umsækjenda er þó hlutfallslega hærri á Suðurnesjum og á höfuðborgarsvæðinu en á landsbyggðinni. Þannig hafa 11% umsókna borist frá íbúum Suðurnesja, þar sem 8% starfandi landsmanna bjuggu á síðasta ári og 67% umsókna af höfuðborgarsvæðinu, þar sem 64% starfandi landsmanna bjuggu.
Fjöldi umsókna | Hlutfall af umsóknum | Starfandi 2019 | Hlutfall af starfandi 2019 | ||
Höfuðborgarsvæðið | 20.161 | 67% | 126.666 | 64% | |
Suðurnes | 3.338 | 11% | 14.944 | 8% | |
Vesturland | 873 | 3% | 9.195 | 5% | |
Vestfirðir | 312 | 1% | 3.996 | 2% | |
Norðurland vestra | 254 | 1% | 4.074 | 2% | |
Norðurland eystra | 2.158 | 7% | 16.727 | 8% | |
Austurland | 888 | 3% | 7.743 | 4% | |
Suðurland | 2.113 | 7% | 15.684 | 8% | |
Samtals | 30.097 | 199.029 |
Kynjaskipting umsækjenda er nokkuð jöfn. 55% umsækjenda eru karlmenn en 45% konur. Til samanburðar voru karlar 53% starfandi landsmanna í fyrra en konur 47%, samkvæmt tölum frá Hagstofu.
Ríflega þrír af hverjum fjórum umsækjendum eru íslenskir ríkisborgarar, en um 14% eru Pólverjar og 10% borgarar annarra ríkja. Í fyrra voru um 80% starfandi fólks hérlendis Íslendingar en 20% útlendingar. Endurspegla umsóknir um hlutabætur því betur samsetningu vinnumarkaðarins en umsóknir um atvinnuleysisbætur síðasta árið, þar sem hlutfall Íslendinga meðal umsækjenda hefur verið 63%.
Sé litið til aldursskiptingar, eru umsóknir hlutfallslega flestar í aldurshópnum 30-39 ára. Alls eru 26% umsækjenda á þeim aldri, samanborið við 21,6% af starfandi fólki. Lægst er hlutfallið meðal fólks á aldrinum 60-69 ára, en 9% umsækjenda eru á þeim aldri samanborið við 11,7% af starfandi fólki.
Fjöldi umsókna | Hlutfall af umsóknum | Hlutfall af starfandi 2019** | Meðalhlutfall atvinnulausra síðustu 12 mán. | |
18-29 ára* | 8.234 | 27% | 30,6% | 29,1% |
30-39 ára | 7.944 | 26% | 31,1% | 21,6% |
40-49 ára | 6.387 | 21% | 17,1% | 19,5% |
50-59 ára | 4.963 | 16% | 13,2% | 18% |
60-69 ára | 2.569 | 9% | 8% | 11,7% |
*16-29 ára í fullu atvinnuleysi og 15-29 ára í starfandi **Samkvæmt skráargögnum