Hér koma upplýsingar um desemberuppbót til félagsmanna stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum og sérstakt álag sem samið var um að kæmi til greiðslu í desember 2011og febrúar 2012. Álagið í febrúar kemur aðeins til starfsmanna sveitarfélaga. Hér er miðað við þá sem eiga rétt á fullum rétti. Desemberuppbót miðast við starfstíma og starfshlutfall eftir ákvæðum kjarasamninga. Ef frekari upplýsinga er þörf, endilega hafið þá samband við Skrifstofu stéttarfélaganna.
Desemberuppbót 2011:
Almenni kjarasamningurinn milli Framsýnar/VÞ og SA
Desemberuppbót kr. 48.800
Sérstakt álag 2011 kr. 15.000
Samtals kr. 63.800
Kjarasamningur Framsýnar/VÞ við Bændasamtök Íslands
Desemberuppbót kr. 48.800
Sérstakt álag 2011 kr. 15.000
Samtals kr. 63.800
Kjarasamningur Framsýnar/VÞ við Landsamband smábátaeigenda vegna vinnu við línu og net
Desemberuppbót kr. 48.800
Sérstakt álag 2011 kr. 15.000
Samtals kr. 63.800
Kjarasamningur LÍV og SA sem Framsýn er aðili að
Desemberuppbót kr. 55.400
Sérstakt álag 2011 kr. 15.000
Samtals kr. 70.400
Kjarasamningur Framsýnar/VÞ og Landsvirkjunar
Desemberuppbót kr. 82.775
Sérstakt álag 2011 kr. 15.000
Samtals kr. 97.775
Kjarasamningur Framsýnar/VÞ og fjármálaráðherra fh. ríkisjóðs
Desemberuppbót kr. 48.800
Sérstakt álag 2011 kr. 15.000
Samtals kr. 63.800
(Ath. Þar sem sérákvæði gilda fyrir starfsmenn á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga sem voru við störf 4. apríl 2004 geta þeir átt rétt á hærri desemberuppbót en hér greinir)
Kjarasamningur Framsýnar/VÞ og Launanefndar sveitarfélaga
Desemberuppbót kr. 75.500
Eingreiðsla 1. feb. 2012 kr. 25.500
(Ath. Sérákvæði varðandi desemberuppbótina gilda um starfsmenn sveitarfélaga sem voru við störf fyrir 29. maí 2005. Þeir eiga rétt á 50% desemberuppbót samkvæmt nánari skilgreiningu. Sama á við um starfsmenn Hvamms sem voru við störf fyrir 1. maí 2004. Þeir halda 50% desemberuppbót samkvæmt ákveðnum reglum.)
Kjarasamningur Samiðnar og SA sem Þingiðn er aðili að
Desemberuppbót kr. 48.800
Sérstakt álag 2011 kr. 15.000
Samtals kr. 63.800
Kjarasamningur Samflotsins og Launanefndar sveitarfélaga sem STH er aðili að
Desemberuppbót kr. 75.500
Eingreiðsla 1. feb. 2012 kr. 25.500
(Ath. Sérákvæði varðandi desemberuppbótina gilda um starfsmenn Norðurþings sem voru við störf fyrir 29. maí 2005. Þeir eiga rétt á 50% desemberuppbót samkvæmt nánari skilgreiningu.)
Kjarasamningur Samflotsins og fjármálaráðherra fh. ríkisjóðs sem STH er aðili að
Desemberuppbót kr. 48.800
Sérstakt álag 2011 kr. 15.000
Samtals kr. 63.800
(Ath. Þar sem sérákvæði gilda fyrir starfsmenn á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga geta þeir átt rétt á hærri desemberuppbót en hér greinir.)