Stéttarfélögin vilja vekja athygli ykkar á því að Stapi hefur opnað Facebook síðu þar sem ætlunin er að vera með reglubundna upplýsingagjöf og fræðslu. Þessi ráðstöfun er liður í framkvæmd markaðsáætlun sjóðsins sem snýr að því að gera sjóðinn sýnilegri meðal sjóðfélaga og miðla fræðslu um flókin mál á mannamáli til þeirra. Á næstu mánuðum verða fræðandi færslur settar inn reglulega og því ætti að vera úr nægu að moða fyrir áhugasama sjóðfélaga.
https://www.facebook.com/people/Stapi-l%C3%ADfeyrissj%C3%B3%C3%B0ur/61595867935299