Bjarg íbúðafélag er sjálfseignarstofnun rekin án hagnaðarmarkmiða. Félaginu er ætlað að tryggja tekjulágum einstaklingum og fjölskyldum á vinnumarkaði, sem eru fullgildir félagsmenn aðildarfélaga ASÍ eða BSRB, aðgengi að öruggu íbúðarhúsnæði í langtímaleigu. Félagsmönnum Famsýnar, STH og Þingiðnar stendur m.a. til boða að taka íbúðir á leigu á vegum Bjargs enda aðilar að þessum samtökum. Um er að ræða svokölluð leiguheimili að norænni fyrirmynd. Fyrstu íbúðir voru afhentar leigutökum í júní 2019. Bjarg byggði í samstarfi við Norðurþing sex 4ra herbergja íbúðir í raðhúsi á einni hæð að Lyngholti 42-52, 640 Húsavík. Áður hafði Framsýn barist fyrir því að hentugt húsnæði fyrir félagsmenn yrði byggt á Húsavík og reyndar austan Húsavíkur líka sem og í Þingeyjarsveit. Um er að ræða sérbýli með litlum garði og allar íbúðir með tveimur bílastæðum. Allar íbúðirnar eru 4ra herbergja (3 svefnherbergi). Fyrsta skóflustunga var tekin í október 2024. Íbúðirnar voru tilbúnar í apríl 2025. Húsavík, Lyngholt 42-52 | Bjarg íbúðafélag
Nú ber svo við að ein íbúð er að losna, um er að ræða endaíbúð. Upphaf leigu er 15. mars 2027. Íbúðin er 95,7 m² og er endaíbúð í raðhúsi á einni hæð. Íbúðin skiptist í anddyri, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og alrými með eldhúsi. Geymslurými innan íbúðar og fataskápur er í hjónaherbergi. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar um íbúðina inn á heimasíðu Bjargs íbúðafélags https://www.bjargibudafelag.is/ eða með því að hafa samband í síma 510-8104.